Bjarni hafði betur gegn ríkinu

MDE komst að þeirri nið­ur­stöðu að ríkið hefði brotið á mann­rétt­indum Bjarna Ármanns­sonar með því að gera honum að greiða skatta og skatta­á­lag og síðar ákæra hann og dæma hann fyrir skatta­laga­brot þrátt fyrir að Bjarni hefði þá þegar greitt skuld sína.

Bjarni Ármannsson
Bjarni Ármanns­son Mynd: Aðsend mynd

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ríkið hafi brotið á mann­rétt­indum Bjarna Ármanns­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Glitnis, með því að gera honum að greiða skatta og skatta­á­lag og síðar ákæra hann og dæma hann fyrir skatta­laga­brot þrátt fyrir að Bjarni hafi þá þegar greitt skuld sína við skatt­inn. Frá þessu er greint í frétt RÚV.

Telur dóm­ur­inn að með þessu hafi Bjarna verið refsað tvisvar fyrir sama brot og er rík­inu gert að greiða Bjarna 5.000 evrur í bætur auk vaxta.

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri til­kynnti Bjarna í árs­byrjun 2012 að skattar hans fyrir árin 2007 til 2009 hefðu verið end­ur­á­kvarð­aðir vegna van­tal­inna fjár­magnstekna í tengslum við sölu hans á hluta­bréfum sem hann eign­að­ist við starfs­lok hjá Glitni. Bjarni greiddi skatt­ana auk 25 pró­senta álags sem honum var gert að greiða.

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri til­kynnti síðar málið til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara sem ákærði Bjarna fyrir skatta­laga­brot. Hann var dæmdur í sex mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi í Hér­aðs­dómi fyrir það brot og til að greiða 36 millj­óna króna sekt. Hæsti­réttur stað­festi síðan dóm­inn en þyngdi refs­ing­una í átta mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi.

Bjarni skaut mál­inu til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu þar sem hann taldi að með þessu hefði honum verið refsað tvisvar fyrir sama brot. Dóm­stóll­inn féllst á þetta og hefur nú kveðið eins og áður segir á um að ríkið hafi brotið á Bjarna og verði því að greiða honum bætur.

Dómurinn sambærilegur dómi MDE í máli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar gegn ríkinu

Þann 18. maí 2017 komst Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu að þeirra nið­ur­stöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni og Tryggva Jóns­syni þegar þeir voru dæmdir í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir skatta­laga­brot í rekstri Baugs og fjár­fest­inga­fé­lags­ins Gaums árið 2013, ásamt Krist­ínu Jóhann­es­dótt­ur.

Þeir kærðu þann dóm til Mann­rétt­inda­­dóm­stóls­ins á þeim for­­sendum að þeir hefðu þegar hlotið dóm fyrir sömu brot. Þeir höfðu verið dæmdir til að greiða álag ofan á end­ur­á­kvörðun skatta af yfir­­skatta­­nefnd árið 2007. Málin tvö hefðu verið byggð á sama grunn­i. Og því væri verið að refsa þeim tví­vegis fyrir sama brot­ið.

Fram að þeim tíma hafði það tíðkast hér­lendis að þeir sem sviku stór­fellt undan skatti skyldu greiða hátt álag ofan á þá van­goldnu skatta sem þeir skyldu end­ur­greiða. Ef um meiri­háttar brot var að ræða þá var við­kom­andi einnig ákærður fyrir meiri háttar skatta­laga­brot, en við slíkum brotum liggur allt að sex ára fang­elsi auk þess sem við­kom­andi þarf að að greiða sekt.

Þegar Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn hafði kom­ist að nið­ur­stöðu þá þurfti að falla dómur í Hæsta­rétti um sam­bæri­legt efni til að fram komi hver áhrif nið­ur­stöð­unnar verði á íslenska dóma­fram­kvæmd. Sá dómur féll í lok sept­em­ber 2017.

Nið­ur­staðan hafði áhrif á fjölda­mörg önnur mál og varð til þess að hér­aðs­sak­sókn­ari þurfti að fella niður að að minnsta kosti 66 mál þar sem grunur var um að ein­stak­lingar hefðu framið skatt­svik. Stór hluti mál­anna sner­ist um ein­stak­linga sem geymdu fjár­muni utan Íslands til að kom­ast hjá skatt­greiðslum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár