Storytel kaupir 70 prósent í Forlaginu

Storytel AB, móð­ur­fé­lag Storytel á Íslandi, hefur keypt 70 pró­sent hlut í stærstu bóka­út­gáfu lands­ins, For­lag­inu.

Storytel AB, móð­ur­fé­lag Storytel á Íslandi, hefur keypt 70 pró­sent hlut í stærstu bóka­út­gáfu lands­ins, For­lag­inu. Selj­and­inn, bók­mennta­fé­lagið Mál og menn­ing, mun áfram fara með 30 pró­sent hlut í félag­inu sem mun starfa áfram sem sjálf­stætt bóka­for­lag, aðskilið frá streym­isveitu Storytel á Íslandi.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá For­lag­inu í dag.

Forlagið bæt­ist þannig í hóp þriggja ann­arra nor­rænna útgáfu­fé­laga í eigu Storytel AB, Nor­stedts För­lags­grupp í Svíþjóð, People’s Press í Danmörku og Gummerus Publ­is­hers í Finn­landi.

Kaupverð ekki gefið upp

„Forlagið er ein virtasta bóka­út­gáfa lands­ins og á Norð­ur­lönd­unum og jafn­framt sú stærsta hér á landi. Félagið var stofnað árið 2007 af Jóhanni Páli Valdi­mars­syni, Agli Erni Jóhanns­syni og bók­mennta­fé­lagi Máls og menn­ingar sem hefur farið með ráð­andi hlut frá árinu 2017. Forlagið gefur árlega út um 150 titla, marga hverja eftir virt­ustu höf­unda lands­ins. Félagið hefur allt frá stofnun gegnt mik­il­vægu hlut­verki í bók­mennta­sam­fé­lag­inu og reynst öfl­ugur málsvari íslenskra rit­höf­unda á erlendum vett­vangi,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni munu Forlagið og Storytel á Íslandi starfa sjálf­stætt áfram eftir kaupin og stefna For­lags­ins verður áfram sú „að efla íslenska útgáfu og stuðla að því að raddir íslenskra rit­höf­unda ber­ist sem víð­ast“.

Velta For­lags­ins var um 8 millj­ónir evra árið 2019, eða 1.100 millj­ónir íslenskra króna. Samn­ings­að­ilar hafa sam­mælst um að kaup­verðið sem verður stað­greitt, verði ekki gefið upp. Samn­ing­ur­inn er gerður með fyr­ir­vara um sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Sannfærð um að þetta verði gæfuspor fyrir íslenskan bókamarkað

„Við erum gríð­ar­lega ánægð með þessa nýj­ustu við­bót við Storytel fjöl­skyld­una og öfl­ugt net útgáfu­fé­laga okkar á norð­ur­lönd­unum. Forlagið sómir sér þar vel meðal virtra félaga á borð við Nor­stedts För­lags­grupp, Gummerus Publ­is­hers og People’s Press. Við erum spennt að hefja sam­starf með reynslu­miklum útgef­endum For­lags­ins sem deila ástríðu okkar fyrir góðum sögum,“ segir Jonas Tellander, for­stjóri og stofn­andi Storytel.

Hann segir að Íslend­ingar séu mikil bóka­þjóð og séu þau sann­færð um að þetta muni reyn­ast mikið gæfu­spor fyrir íslenskan bóka­markað. „Þekking Storytel á staf­rænni þróun ásamt öfl­ugri reynslu For­lags­ins í bóka­út­gáfu mun stór­auka aðgengi lands­manna að vönd­uðum bók­menntum og kaupin munu treysta sér­stöðu beggja félaga enn frekar,“ segir Jonas.

Mun styrkja rekstrargrunn Forlagsins

„Forlagið byggir á ald­ar­gam­alli hefð útgef­enda sem hafa gert það að ævi­starfi sínu að koma íslenskum bók­menntum á fram­færi. Við erum afskap­lega ánægð og hlökkum til sam­starfs­ins með Storytel sem er kraft­mikið nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki á sviði staf­rænnar útgáfu. Sam­starfið mun opna margar dyr fyrir höf­undum For­lags­ins og færa okkur skrefi nær inn í fram­tíð­ina og nær nútíma les­endum og hlust­endum,“ segir Egill Örn Jóhanns­son, fram­kvæmda­stjóri For­lags­ins.

Kaupin muni styrkja rekstr­ar­grunn For­lags­ins og tryggja for­ystu í staf­rænni þróun til fram­tíðar. „Þetta skref rammar einnig vel inn fram­tíð­ar­sýn félags­ins sem snýr að því að gefa út bestu verk íslenskra bók­mennta og gera þau aðgengi­leg öllum les­endum, hvaðan og hvernig sem þeir vilja njóta þeirra.“

Stofna sjóð

„Við erum sann­færð um að ávinn­ing­ur­inn verður mik­ill fyrir íslenska les­endur, hlust­endur og höf­unda. Þegar litið er til þró­unar útgáfu á alþjóð­legum vett­vangi blasir við að sam­starf við öfl­ugan útgef­anda og dreif­ing­ar­að­ila sem byggir á traustum staf­rænum grunni mun tryggja fjöl­skrúð­ugt bók­mennta­líf á Íslandi til fram­tíðar. Það má því segja að sam­band Storytel og For­lags­ins sé í raun fjár­fest­ing íslenskrar útgáfu í fram­tíð­inni. Kaupin munu tryggja áfram­hald­andi útgáfu á íslenskum bók­mennta­perlum og gera okkur kleift að styðja betur við nýja höf­unda. Mál og menn­ing mun í þessu skyni nýta stóran hluta kaup­verðs­ins til stofn­fjár sjóðs sem mun hafa það hlut­verk að efla íslenskar bók­menntir með stuðn­ingi við rit­höf­unda og bóka­verslun,“ segir Halldór Guð­munds­son, stjórn­ar­for­maður Máls og menn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár