Kamilla er fædd 1979, en Júlía 1987. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Það er ekkert kúl að vera rithöfundur“

Rithöf­und­arnir Júlía Margrét Einars­dóttir, Kamilla Einars­dóttir og Einar Kárason eru sammála þegar kemur að stóru málunum, treysta hvert öðru fullkomlega og segja sögur við öll tilefni. Þau eru öll með nýja skáldsögu um jólin.

„Ég hef engan frið fyrir þeim. Þær koma þrisvar í viku og drekka allan bjórinn minn,“ segir Einar Kárason þegar hann er spurður út í sambandið við dætur sínar, Júlíu Margréti og Kamillu. Feðginin hafa öll notið mikilla vinsælda fyrir bækur sínar og standa nú í ströngu við að fylgja eftir nýjum skáldsögum. Júlía gefur út bókina Guð leitar að Salóme, Einar er með Þung ský og Kamilla sendir frá sér Tilfinningar eru fyrir aumingja.

„Mér þætti gaman að það kæmi fram að síðast kom ég með kassa af bjór,“ flýtir Júlía sér að árétta. „Það var nú bjór sem bara þú drekkur, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár