Landsréttur frestar málum út vikuna

Lands­réttur hefur ákveðið að fresta dóms­málum þar sem ein­hver hinna fjög­urra dóm­ara eiga sæti út þessa viku. Ákvörð­unin er tekin í kjöl­far dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

Lands­réttur hefur ákveðið að fresta dóms­málum þar sem ein­hver hinna fjög­urra dóm­ara, sem Sigríður Á. Andersen skip­aði í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt í stað þeirra fjög­urra sem sér­stök dóm­nefnd mat hæf­asta, eiga sæti í út þessa viku. Þetta stað­festir Björn L. Bergsson, skrif­stofu­stjóri Lands­réttar, í sam­tali við frétta­stofu RÚV. Máls­að­ilum hefur verið til­kynnt um ákvörð­un­ina.

Landsréttur rýnir í dóminn

[links] Greint var frá því í fréttum fyrr í dag að Ísland hefði tapað Lands­rétt­ar­mál­inu fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum en Ísland braut gegn 6. grein mann­rétt­inda­sátt­­mála Evr­­ópu sem fjallar um rétt til rétt­látrar máls­­með­­­ferðar fyrir dómi í máli gegn manni sem dæmdur var í 17 mán­aða fang­elsi í Lands­rétti. Ástæðan er sú að mað­­ur­inn fékk ekki rétt­láta máls­­með­­­ferð fyrir Lands­rétti vegna þess að Arn­­fríður Ein­­ar­s­dótt­ir, sem er dóm­­ari við rétt­inn, hafi ekki verið skipuð í hann með lög­­­mætum hætt­i. Sig­ríður til­­­nefndi dóm­­ar­ana sem skip­aðir voru í Lands­rétt og Alþingi sam­­þykkti þá skip­­an.

Arn­­­fríður var einn fjög­­­urra umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt sem dóms­­­mála­ráð­herra lagði til að yrði skipuð í stað þeirra fjög­­­urra sem sér­­­­­stök dóm­nefnd mat hæf­asta. Hæsti­réttur Íslands komst svo að þeirri nið­ur­stöðu í des­em­ber 2017 að dóms­mála­ráð­herra hefði brotið stjórn­sýslu­lög með því að sinna ekki rann­sókn­ar­skyldu sinni með nægj­an­legum hætti þegar hún ákvað að skipta út þeim umsækj­endum sem metnir höfðu verið hæf­astir af dóm­nefnd­inni.

Skrif­stofu­stjóri Lands­réttar sagði í sam­tali við RÚV að engar frek­ari ákvarð­anir hafi verið teknar innan Lands­réttar en verið sé að rýna í dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins.

Helga Vala Helga­dóttir, for­maður stjórn­skip­unar-og eft­ir­lits­nefndar sagði í sam­tali við Kjarnann í morgun að Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra verði að víkja. Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir hins vegar dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu breyta engu um stöðu dóms­mála­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár