Landsvirkjun spyr hvort Norðurál sé að þvinga niður raforkuverð

Lands­virkjun hafnar ásök­unum Norð­ur­áls um mis­notkun á mark­aðs­stöðu og segir þær keim­líkar hót­unum sem móð­ur­fyr­ir­tæki þess hefur beitt orku­sölum í Banda­ríkj­unum.

Hörður Árnason forstjóri Landsvirkjunar
Hörður Árnason for­stjóri Lands­virkj­unar Mynd: Bára Huld Beck

Lands­virkjun vísar ásök­unum frá Norð­ur­áli um mis­notkun á mark­aðs­stöðu sinni á bug seg­ist hafa farið eftir lögum í einu og öllu í starf­semi sinni, sam­kvæmt til­kynn­ingu sem fyr­ir­tækið sendi frá sér rétt í þessu.

[links]Kjarninn fjall­aði fyrr í dag um til­kynn­ingu frá Norð­ur­áli, þar sem álfyr­ir­tækið sagð­ist hafa sent erindi til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og óskað íhlut­unar þess, vegna þess sem það telur vera mis­notkun Lands­virkj­unar á mark­aðs­ráð­andi stöðu á skamm­tíma­mark­aði með raf­orku.

Samkvæmt Norð­ur­áli var verðið sem Lands­virkjun rukk­aði fyrir orku­notkun álfyr­ir­tæk­is­ins hærra en það sem það hafði keypt frá minni orku­fram­leið­anda, auk þess sem það var yfir verði á Norræna skamm­tíma­mark­aðnum, Nord Pool.

Lands­virkjun segir hins vegar í til­kynn­ingu sinni að fyr­ir­tækið fari ávallt eftir ákvörðun sam­keppn­islaga í starf­semi sinni, m.a. þeim ákvæðum sem banna mark­aðs­ráð­andi fyr­ir­tækjum að selja orku undir kostn­að­ar­verði og hafa þannig nei­kvæð áhrif á sam­keppni.

Enn fremur bætir Lands­virkjun við að erindi Norð­ur­áls hald­ist í hendur við til­kynn­ingu móð­ur­fé­lags þess, Century Alu­minium, í gær þar sem til­kynnt var að álveri fyr­ir­tæk­is­ins í Suður-Karólínu yrði lokað í des­em­ber nk. ef ekki feng­ist lægra raf­orku­verð. Að mati orku­fyr­ir­tæk­is­ins vekur það óneit­an­lega spurn­ingu um hvort erindið sé liður í áætlun móð­ur­fé­lags­ins um að þvinga niður raf­orku­verð á starfs­svæðum sínum.

Til­kynn­ingu Lands­virkj­unar má lesa í heild sinni hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár