Margrét Bjarna­dóttir og flautuleik­ar­arnir Berglind María Tóms­dóttir og Þuríður Jóns­dóttir. Mynd: Golli

Hvernig hreyfir tónlist sig?

Árið 2016 kom hópur flautu­leikara saman þegar Björk var að gera plötuna Utopia og varð flautu­septettinn viibra árið 2018. Í fimm ár ferðaðist viibra með Björk um heiminn. Sjö flautuleik­arar eru í viibra og síðastliðinn sunnudag héldu þær tónleika í Hörpu í tilefni útgáfu fyrstu plötu þeirra: viibra. Dans­höfundurinn Margrét Bjarna­dóttir vinnur með ólík form og miðla en hefur starfað með viibra að sviðs­hreyfingum síðan í Utopiu. Hún sviðsetur tónleikana.

Nú er viibra búin að vera til lengi því frá árinu 2018 höfum við verið að túra með Björk og þar áður vorum við að vinna með henni á plötunni Utopia. Túruðum með henni og fyrst var túrinn kenndur við plötuna Utopia en síðan Cornucopia ...“ segir Berglind María, ein af flautu­leikurunum í viibru.

Tónleika­sýningin Cornucopia, sprottin upp úr plötunni Utopia, var frumsýnd í menningar­miðstöð á Manhattan og leikstýrt af argentínska kvikmynda­leik­stjóranum Lucrecia Martel. Fjölmargir komu að sýningunni; þar á meðal Hamrahlíðar­kórinn og þó nokkrir hljóðfæra­leikarar.

Samstarfið með Björk má rekja til 2016 þegar þær hittust reglulega. Þá var þetta stærri hópur en þær spiluðu inn á plötuna Utopia sem kom út haustið 2017. Í kjölfarið fylgdu allir tónleikarnir.

„Við hittumst alltaf á föstu­dögum í sumar­bústað Bjarkar veturinn 2016–2017,“ minnist Þuríður, annar flautu­leikari viibru. En Margrét hóf samstarfið með viibru og Björk …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár