Skuldaleiðréttingin eykur verðbólgu og dregur úr ávinningi hækkunar íbúðaverðs

Hröð hækkun á kaup­mætti ráð­stöf­un­ar­tekna heim­il­anna og áhrif aðgerða rík­is­stjórn­ar­innar til lækk­unar á verð­tryggðum lánum heim­ila, hin svo­nefnda Leið­rétt­ing, eru und­ir­liggj­andi ástæður þess að hækkun íbúða­verðs hefur verið hröð und­an­farið. Alls hefur verð íbúða hækkað um 9,4 pró­sent síð­ustu tólf mán­uði að nafn­virði á land­inu öllu og um 7,7 pró­sent að raun­verði. Þessi hækkun hefur einnig valdið auk­inni verð­bólgu og þar með „dregið úr þeim ávinn­ingi mælt í auknu eigin fé heim­il­anna sem hús­næð­is­verð­hækk­unin hefur skilað.“ Þetta kemur fram í morg­un­korni Grein­ingar Íslands­banka í dag.

Eykur verðbólgu og rýrir ávinning


Aðgerðir íslenskra stjórn­valda um að lækka hús­næð­is­skuldir hluta Íslend­inga um 80 millj­arða króna eru því að kynda undir hækkun íbúða­verðs. Sú hækkun kemur fram í vísi­tölu neyslu­verðs sem mælir verð­bólgu í land­inu. Sú neyslu­vísi­tala hækk­aði til að mynda um 1,02 pró­sent í febr­úar síð­ast­liðnum, sem var skarpasta hækkun hennar í langan tíma.

Greining Íslands­banka segir ljóst að hækkun á verði íbúa hafi verið stór áhrifa­þáttur í verð­bólgu­þró­un­inni und­an­farið. „Skýrir hækkun hús­næð­is­verðs þannig alla verð­bólg­una sem nú er og gott betur, enda hefur verð­lag lækkað um 0,1 pró­sent síð­ustu 12 mán­uði skv. vísi­tölu neyslu­verðs án hús­næðis. Hefur þetta dregið úr þeim þeim ávinn­ingi mælt í auknu eigin fé heim­il­anna sem hús­næð­is­verð­hækk­unin hefur skilað. Reiknum við með að hækkun hús­næð­is­verðs verði áfram stór þáttur í verð­bólgu­þró­un­innni á spá­tíma­bil­inu og spáum við því að vístala neyslu­verðs hækka um 0,1 pró­sent á milli mán­aða að jafn­aði á kom­andi mán­uðum vegna þess.“

Áfram miklar hækkanir


Grein­ingin spáir að nafn­verðs­hækkun á hús­næði á land­inu öllu verði 15,5 pró­sent til loka árs 2017, eða 7,7 pró­sent raun­hækkun. „Helstu rök fyrir áfram­hald­andi hækkun íbúð­ar­hús­næðis er dágóð hækkun á kaup­mætti ráð­stöf­un­ar­tekna sem kemur til m.a. vegna þess að laun munu á spá­tíma­bil­inu hækka nokkuð umfram verð­bólgu skv. okkar spá og heild­ar­vinnu­stundum fjölga. Áhrifa aðgerða rík­is­stjórn­ar­innar til lækk­unar verð­tryggðra skulda heim­il­anna mun á spá­tíma­bil­inu gæta mest á þessu ári. Við spáum því að það muni draga úr nafn- og raun­verðs­hækk­unum eftir því sem líður á spá­tíma­bilið sam­hliða því að þessi áhrif skulda­lækk­un­ar­innar fjara út og heldur dregur úr vexti kaup­máttar ráð­stöf­un­ar­tekna.“

Íbúða­verð hefur raunar hækkað nán­ast stans­laust frá því að það náði botni í upp­hafi árs 2010. Síðan þá hefur nafn­verð íbúða hækkað um 39,1 pró­sent og raun­verð um 18,7 pró­sent. „Er þetta umtals­verð verð­hækkun sem hefur bætt hag þeirra heim­ila sem eiga sitt eigið hús­næði, en það eru all­flest íslensk heim­ili eða 73 pró­sent allra heimia á árinu 2013[...]Eru 55 pró­sent heim­il­anna með hús­næð­is­lán, og í flestum til­fellum um verð­tryggt lán að ræða. Eig­in­fjár­staða heim­il­anna hefur í þessum til­fellum auk­ist umtals­vert, en verð­bólgan hefur verið sér­stak­lega lág und­an­farið og mælist nú 1,6 pró­sent.“

Engin bóla en aðstæður fyrir hana til staðar


Það ætti ekki að koma neinum á óvart að íbúða­verð fjöl­býlis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað hraðar en verð sér­býla þar og verð íbúða ann­ars­staðar á land­inu. Greining Íslands­banka telur þó að þær miklu hækk­anir sem átt hafi sér stað séu studdar efna­hags­legum rökum og því sé ekki um verð­bólu að ræða á íbúða­mark­aði „þó svo að aðstæður fyrir slíka bólu séu til staðar þar sem fjár­fest­inga­kostir eru tak­mark­aðri en ella innan gjald­eyr­is­hafta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár