Rafbílavæðing hefur í heildina jákvæð áhrif

Í nýrri grein­ingu á þjóð­hags­legri hag­kvæmni raf­bíla­væð­ingar á Íslandi kemur fram að raf­bíla­væð­ing sé bæði hag­kvæm og dragi veru­lega úr útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi.

Til lengri tíma litið er raf­bíla­væð­ing á Íslandi hag­kvæm fyrir þjóð­ina ásamt því að hún skilar umtals­verðum sam­drætti í útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Aðrir ávinn­ingar raf­bíla­væð­ingar eru til dæmis minni loft­mengun, aukið orkuöryggi, stöðugra verð­lag orku og ýmis annar efna­hags­legur ávinn­ingur. Þetta kemur fram í nýrri grein­ingu á þjóð­hags­legri hag­kvæmni raf­bíla­væð­inga sem hópur úr Háskól­anum í Reykja­vík og Háskóla Íslands vann á vegum Samorku, Atvinnu­vega- og nýsköpun­arráðuneyt­is­ins, Orku­set­urs, Íslenskrar Nýorku og Grænu Orkunnar. Nið­ur­staða grein­ing­ar­innar var kynnt á fundi í Norræna hús­inu í morgun.

Íslensk stjórnvöld hafa skuld­bundið sig til að taka þátt í mark­miði ESB um að draga úr losun gróðurhúsaloft­teg­unda um 40 pró­sent árið 2030 miðað við losun ársins 1990. Slíkur samdráttur kallar á orku­skipti í sam­göngum meðal ann­ars raf­væð­ingu fólks­bíla. Í skýrslu hóps­ins kemur fram að raf­væð­ing fólks­bíla sé eitt stærsta tæki­færi sem Íslend­ingar hafa til að ná mark­miðum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins um minnkun útblást­urs gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Greining er á þjóð­hags­legri hag­kvæmi raf­bíla­væð­ingar en skoðað var hvaða aðgerðir eru hag­kvæm­astar til að flýta fyrir raf­bíla­væð­ingu og hvaða árangri þær geta skilað, einnig var skoðað hvort raf­væð­ing bíla­flot­ans geti verið efna­hags­lega hag­kvæm.

Nýskráning dísil og bensínbíla óheimil árið 2030

Íslensk stjórnvöld settu fram á 146 löggjaf­ar­þingi þingsályktun um aðgerð­aráætlun um orku­skipti. Þar kemur fram að stjórnvöld stefna að 10 pró­sent hlut­deild end­urnýjan­legrar orku í samgöngum á Íslandi árið 2020 og 40 pró­sent árið 2030. Í dag er hlut­deild end­urnýjan­legrar orku í samgöngum um 6 pró­sent. Raf­væð­ing bílaflot­ans er mögulegt skref í átt að þessum mark­miðum. Í sept­em­ber 2018 kynntu síðan stjórnvöld aðgerðaáætlun í lofts­lagsmálum 2018 til 2030 þar sem sett voru fram 34 atriði til að vinna gegn lofts­lags­breyt­ingum, meðal ann­ars að nýskráning dísil- og bensínbíla verði óheimil eftir árið 2030.

Í skýrsl­unni kemur fram að breyt­ingar á orku­kerfum sé dýr og hæg­virk aðgerð. Því er lagt áherslu á að mik­il­vægt sé að hefj­ast handa strax og að ígrunda allar ákvarð­anir vel. Ávinn­ing­ur­inn er þó mik­ill, og ekki aðeins í sam­hengi samdráttar í losun gróðurhúsaloft­teg­unda. Annar ávinn­ingur getur verið margs konar svo sem minni loft­mengun, aukið orkuöryggi, stöðugra verð­lag orku og ýmis annar efna­hags­legur ávinn­ingur.

Virðisaukaskattsívilnanir á hreina rafmagnsbifreiðir virðast bera bestan árangur

Nið­ur­stöður grein­ing­ar­innar gefa til kynna að heild­aráhrif rafbílavæð­ingar séu jákvæð, bæði þegar litið er til þjóðhags­legra stærða og fjárhags­legra hags­muna neyt­enda. Niðurstöður sýna að hlut­fall hreinna raf­magns­bif­reiða (BEV: batt­ery-electric vehicle) og tengilt­vinn­bif­reiða (PHEV: plug-in-hybrid electric vehicle) af bílaflot­anum mun aukast á næstu árum. Hversu mikil aukn­ingin verður er mjög háð ákvörðunum stjórnvalda og aðstæðum á markað, sam­kvæmt skýrsl­unni. Áhrif á afkomu ríkis­sjóðs eru háðar þeim leiðum og stjórntækjum sem verða not­aðar til að hafa áhrif á orku­skipti í samgöngum. Til skemmri tíma fylgir rafbílavæð­ingu kostn­aður, en með réttri notkun á stjórntækjum má stýra hvar sá kostn­aður lendir. Til lengri tíma er rafbílavæð­ing hag­kvæm fyrir þjóðina, til viðbótar við þann umtals­verða árangur sem hún skilar í sam­drætti á útblæstri gróðurhúsaloft­teg­unda.

Skoðaðir voru fjórar sviðs­myndir í grein­ing­unni; óbreytt ástand til­lögur, til­lögur með við­bót og til­lögur með banni. Í nið­ur­stöðum grein­ing­ar­innar er „til­lögur með við­bót“ sú sviðs­mynd sem best styður við þau mark­mið að draga hratt úr útblæstri með hlut­falls­lega litlum kostn­aði fyrir ríkis­sjóð og bif­reiða­eig­endur. Sú til­laga gerðir ráð fyrir var­an­legum virð­is­auka­skattsíviln­unumá hreinum raf­magns­bif­reiðum ásamt því sem gert er ráð fyrir núver­andi íviln­unum varð­andi virð­is­auka­skatt fyrir bif­reiðar með lítinn útblástur, þ.m.t. raf­magns­bif­reiðar falli niður árið 2020, eða þegar 10.000 bif­reiðar af hverjum flokki hafa verið skráðar.

Rafmagnsbílar gætu orðið 80 prósent bílaflotans árið 2050

Meðallíftími bif­reiða er um 12 til 13 ár sem þýðir að það er mikil tregða í bílaflot­anum og breyt­ingar taka langan tíma. Sviðs­myndin „Tillögur með viðbótum“ sem þýðir að stjórn­völd myndu bæta við virð­is­auka­skatt­sí­viln­unum fyrir hreinar raf­magns­bif­reiðir, sem er í raun beinn fjárstuðn­ingur tengdur kaupum á bif­reið. Ef beitt verður til­lög­unni um skattaí­viln­anir þá verður tæp­lega annar hver nýskráður bíll hrein raf­magns­bif­reið árið 2030. Sú til­laga sýnir að hlut­fall hreinna raf­magns­bif­reiða getur farið í allt að 60 pró­sent af bílaflot­anum og allt að 80 pró­sent bílaflot­ans væru ann­að­hvort hreinar raf-magns­bif­reiðar eða tengilt­vinn­bif­reiðar árið 2050. Ef ekki er beitt sakttaí­viln­unum þá má gera ráð fyrir að 27 pró­sent til 42 pró­sent verði hreinir raf­magns­bif­reiðar og um 58 pró­sent til 72 pró­sent bílaflot­ans verði annað hvort hreinar raf­magns­bif­reiðar eða tengilt­vinn­bif­reiðar.

Sviðs­myndin „Tillögur með banni“ nær sam­kvæmt skýrsl­unni miklum árangri eftir árið 2030 þegar bann við sölu bif­reiða sem brenna kolefna­elds­neyti tekur gildi og við lok ársins 2050 er fjöldi raf­magns­bif­reiða sam­bæri­legur við sviðs­mynd­ina „Tillögur með viðbót“, og útblástur hefur einnig dreg­ist álíka mikið saman. Hins­vegar eru þó nokkur ár þangað til árið 2030 rennur upp og því er útblást­ur­inn þangað til tals­vert meiri en í til­lögu með við­bót. Því má draga þá ályktun að bannið sé sterk aðgerð sem hafi jákvæð áhrif en fram að gildistöku þess þurfi aðrar áhrif­aríkar aðgerðir þar sem tíminn frá 2018 til 2030 skiptir miklu máli.

Í skýrsl­unni er tekið fram að áhuga­vert gæti verið að skoða fleiri sviðs­myndir sem blanda saman íviln­unum og banni. Einnig væri áhuga­vert að taka inn í grein­ing­una aðra vist­væna valmöguleika svo sem metan og vetni. Því til viðbótar væri áhuga­vert að greina betur aðgerðir sem taka til þyngri ökutækja til atvinnu­rekstr­ar­nota.

Þarf fleiri aðgerðir en rafbílavæðingu

Í nið­ur­stöðum skýrsl­unnar er tekið fram að breyt­ingar á sam­setn­ingu bílaflot­ans taka langan tíma og því er afar ólíklegt að rafbílavæð­ing ein og sér muni leiða til þess að mark­miðum Parísar­sam­komu­lags­ins verði náð fyrir árið 2030 hvað snýr að sam­drætti í útblæstri gróðurhúsaloft­teg­unda frá samgöngum.

Rafbílavæð­ingin þykir nauð­syn­legur þáttur í þeirri veg­ferð, en til að mark­miðum Parísar­sam­komu­lags­ins verði náð að fullu þarf mun áhrif­aríkari aðgerðir en hafa verið greindar eru í skýrsl­unni. Skýrslan leggur tila ð skoða þarf aðrar kerf­is­legar breyt­ingar eins og til dæmis að greiða fyrir úreld­ingu meng­andi bif­reiða, efl­ingu almenn­ings­sam­gangna og aðgerðir sem stuðla að breyttum ferða­venjum.

Til lengri tíma er rafbílavæð­ing hag­kvæm fyrir þjóðina, til viðbótar við þann umtals­verða árangur sem hún skilar í sam­drætti á útblæstri gróður-húsaloft­teg­unda. Rafbílavæð­ing hefur einnig önnur jákvæð óbein áhrif sem snerta þjóðar­hag, svo sem minni loft­mengun og aukið orkuöryggi, og áhrifin eru jákvæð­ari eftir því sem rafbílavæð­ingin verður dýpri. Þegar þessir þættir eru teknir til greina að auki eru áhrif rafbílavæð­ingar ótvírætt þjóðhags­lega jákvæð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár