Kópavogur leitar hugmynda að loki ofan á Reykjanesbraut

Hug­mynda­sam­keppni stendur yfir á vegum Kópa­vogs­bæjar og Arki­tekta­fé­lags Íslands, þar sem meðal ann­ars er von­ast eftir að fram komi hug­myndir um lok ofan á Reykja­nes­braut­ina. Einnig er kallað eftir hug­myndum að stað­setn­ingu borg­ar­línu­stöðvar við Smára­lind.

Reykjanesbrautin gerir í dag ferðir gangandi og hjólandi á milli Smára og Glaðheimahverfis fremur torfærar.
Reykja­nes­brautin gerir í dag ferðir gang­andi og hjólandi á milli Smára og Glað­heima­hverfis fremur tor­færar. Mynd: Af vef Kópavogsbæjar

Kópa­vogs­bær og Arki­tekta­fé­lag Íslands standa þessa dag­ana fyrir hug­mynda­sam­keppni, þar sem vonir standa til að fram komi hug­myndir að teng­ingu yfir Reykja­nes­braut­ina í nágrenni Smára­lindar, eins­konar „loki“ sem þá myndi setja Reykja­nes­braut­ina í stokk.

Bæj­ar­stjórnin í Kópavogi ákvað á fundi sínum í maí að ráð­ast í þessa hug­mynda­sam­keppni og henni var hrundið af stað í upp­hafi mán­aðar.

Í keppn­is­lýs­ingu segir að mark­miðið sé að kalla eftir hug­myndum sem styrkja svæð­iskjarn­ann í Smára og efla tengsl á milli svæða innan hans fyrir alla ferða­máta og stuðla „sann­fær­andi teng­ingu“ milli íbúða­hverf­anna í Glað­heimum og Smára, til dæmis með „byggð ofan á og/eða við lok yfir Reykja­nes­braut“ sem stuðli að skap­andi umhverfi og ýti undir virka ferða­máta“.

[adspot]

Á meðal mark­mið­anna með keppn­inni er einnig að fá fram hug­myndir að stað­setn­ingu tengi­stöðvar fyrir almenn­ings­sam­göngur; Borg­ar­línu og Strætó, auk teng­inga við alþjóða­flug­völl­inn í Keflavík.

Sundurslitið af stofnæðum og bílastæðum

Í keppn­is­lýs­ing­unni segir að svæðið sem um ræðir sé eitt helsta þjón­ustu­hverfi lands­ins, en að í dag ein­kenn­ist það af „bíla­notkun og stórum bíla­stæða­flákum sem gera það að verkum að það er erfitt yfir­ferðar fyrir gang­andi og hjólandi veg­far­endur.“

Í aðal­skipu­lagi Kópavogs sé gert ráð fyrir því að svæðið haldi áfram að þró­ast sem fjöl­breytt mið­svæði fyrir verslun, þjón­ustu og íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og að í svæð­is­skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sé gert ráð fyrir að svæðið þró­ist í átt að „sam­göngu­mið­uðu þró­un­ar­svæði“ þar sem mikil áhersla verði á „gott aðgengi að almenn­ings­sam­göngum, göngu- og hjóla­vænt umhverfi og bland­aða byggð“ þar sem hvatt verði til notk­unar vist­vænna ferða­máta.

Sex milljónir í fyrstu verðlaun

Skila­frestur til­lagna í þess­ari hug­mynda­sam­keppni er þann 7. febr­úar næst­kom­andi og búist er við því að dóm­nefnd skili af sér nið­ur­stöðu um miðjan mars­mánuð. Verð­launafé í keppn­inni eru alls 12 millj­ónir króna, 6 millj­ónir fyrir fyrsta sætið, fjórar fyrir annað sæti og tvær fyrir það þriðja.

Hrafn­kell Ásólfur Proppé skipu­lags­fræð­ingur er for­maður dóm­nefndar, en hann er full­trúi Kópa­vogs­bæjar í nefnd­inni ásamt bæj­ar­full­trú­unum Berg­ljótu Krist­ins­dóttur og Hjördísi Ýri Johnson. Einnig sitja þeir Birkir Ein­ars­son lands­lags­arki­tekt og Hans-Olav Andersen arki­tekt í dóm­nefnd­inni að til­efn­ingu Arki­tekta­fé­lags Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár