Tæpum helmingi íslenskra blaðamanna verið ógnað eða hótað á síðustu fimm árum

Samkvæmt frum­nið­ur­stöðum úr nýrri rann­sókn um þær ógnir sem steðja að blaða­mönnum kemur fram að helm­ingur blaða­manna hafi ekki orðið fyrir hót­unum á síð­ustu fimm árum. Töluvert um að sið­ferði blaða­manna sé dregið í efa.

Tæplega helm­ingur íslenskra blaða- og frétta­manna segir að sér hafi verið ógnað eða hótað í starfi. Þetta er meðal nið­ur­staðna í nýlegri könnun rann­sókn­ar­hóps í verk­efn­inu Worlds of Journalism Study (WJS). Um 40 pró­sent svar­enda sögðu að þeim hefði stundum eða sjaldan verið ógnað og sjö pró­sent svar­enda sögðu að þeim hefði oft eða mjög oft verið ógnað. Því hefur rétt rúm­lega helm­ingur, eða 53 pró­sent, blaða­manna aldrei verið ógnað eða hótað í starfi.

Fjallað er um rann­sókn­ar­verk­efni WJS í nýjasta hefti Blaða­manns­ins sem nú er í prentun. Þar segir að í rann­sókn­ar­verk­efn­inu sé sjónum beint að örygg­is­málum og stefnt sé að því að bera saman stöð­una í hinum ýmsu löndum heims. Rann­sókn­ar­hópur lagði ítar­lega könnun fyrir íslenska blaða- og frétta­menn þar sem spurt var um hvers kyns ógnir sem steðja að íslenskum blaða­mönnum. Nú hafa frum­nið­ur­stöður rann­sókn­irnar verið birtar sem byggja á íslenskum hluta hennar.

Einnig er nokkuð um það að sið­ferði blaða­manna sé dregið í efa en innan við 40 pró­sent svar­enda segja það aldrei hafa gerst á und­an­förnum fimm árum. Tæpur helm­ingur segir að sið­ferði við­kom­andi hafi verið dregið í efa sjaldan eða stundum og ell­efu pró­sent svar­enda segja það ger­ast oft eða mjög oft.

Ástandið sambærilegt í nágrannalöndunum

„Aðrar teg­undir ógnar eða árása virð­ast ekki eins algengar, en þó kemur það satt að segja á óvart hversu algengt ýmis konar ofbeldi er, s.s. að dreift sé um fólk per­sónu­upp­lýs­ingum eða að fólk sé beitt þving­unum í orðum eða gerðum. Rétt er að hafa í huga að þær pró­sentur sem hér er miðað við eru reikn­aðar af heild­arsvörum 248 svar­enda, þannig að það að 13% hafi verið lög­sótt í starfi síð­ustu fimm ár þýðir í raun 32 ein­stak­lingar. Eins þýðir það að 12% hafi verið beitt kyn­ferð­is­legri áreitni/ofbeldi að um er að ræða um 30 ein­stak­linga, og þar af er mik­ill meiri­hluti konur,“ segir um nið­ur­stöð­urnar í grein­inni.

Frum­nið­ur­stöð­urnar eru sagðar benda til þess að ástandið í örygg­is­málum blaða­manna sé í eðli sínu nokkuð sam­bæri­legt við það sem ger­ist í lönd­unum í kringum okkur. Því sé full ástæða til að horfa til þess hvernig fjöl­miðla­fólk í lönd­unum í kringum okkur bregst við slíkum ógnum og draga af þeim lær­dóma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár