Leiguverð hækkað um 95 prósent á síðustu 8 árum

Leigu­verð á höfuð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði hlut­falls­lega meira en íbúðaverð árið 2018. Á síð­ustu átta árum hefur íbúða­verð aftur á móti hækkað að með­al­tali meira en leigu­verð. Íbúða­verð hefur hækkað um 103 pró­sent frá árinu 2011 en leigu­verð 95 pró­sent.

Leigu­verð á höfuð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði hlut­falls­lega meira en íbúðaverð á síð­asta ári. Árs­hækkun vísi­tölu leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mæld­ist 9,2 pró­sent í nóv­em­ber en til sam­an­burðar hækk­aði vísi­tala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 6 pró­sent. Það er níundi mán­uð­ur­inn í röð sem árs­hækkun leigu­verð mælist meiri en árs­hækkun íbúða­verðs. Ári áður blasti önnur mynd við en í nóv­em­ber 2017 hafði íbúða­verð hækkað um 15 pró­sent á einu ári en leigu­verð um 11,5 pró­sent. Leigu- og íbúða­verð er því að hækka mun hægar nú en fyrir ári síðan. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs.

Íbúðaverð hækkað um 103 prósent á átta árum

Frá því að mæl­ingar hófust hjá Íbúða­lána­sjóði, árið 2011, hefur leigu­verð að með­tali hækkað minna en íbúða­verð. Frá 2011 hefur leigu­verð hækkað um 95 pró­sent á meðan íbúða­verð hefur hækkað um 103 pró­sent. Til sam­an­burðar hafa laun á landsvísu hækkað um 75 pró­sent sé horft til sama tímabils.

Frá árinu 2018 hefur leigu­verð að með­al­tali hækkað um 8,6 pró­sent á ári á meðan íbúða­verð hefur hækkað um 9,7 pró­sent a ári að með­al­tali. Til sam­an­burðar var árs­hækkun á vísi­tölu leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 9,2 pró­sent en vísi­tala íbúða­verðs hækk­aði ein­ungis um 6 pró­sent. 

Mun minni hækkun á meðalverði íbúða í fyrra

Meðalverð íbúða hækkaði á árinu 2018 um 2,1 prósent á höfuðborgarsvæðinu og 2 prósent í kjörnum utan höfuðborgarsvæðisins. Á öðrum landsvæðum nam meðalhækkun viðskiptaverðs fasteigna milli ára um 5,2 prósent. Í skýrslunni segir að töluverð breyting var því í þróun meðalverðs á milli ára en árið 2017 var árshækkun meðalverðs á bilinu 16 prósent til 22 prósent á umræddum svæðum.

[links]Meðalviðskiptaverð með íbúðarhúsnæði á Íslandi árið 2018 nam um 44 milljónum. Á höfuðborgarsvæðinu var það 50,1 milljónir en um 39,1 milljónir í þéttbýliskjörnunum næst höfuðborgarsvæðinu auk Akureyrar. Á öðrum svæðum á landinu var meðalviðskiptaverðið um 20,6 milljónum yfir árið.

Velta með íbúðir nam rúmlega 482 milljörðum króna á árinu 2018 sem er um 6,8 prósent veltuaukning frá fyrra ári. Tekið skal fram að í skýrslunni er aðeins litið til viðskipta með íbúðir í fjölbýli og sérbýli en öðrum eignum sleppt.

Heildarfjöldi kaupsamninga jókst um 3 prósent

Heild­ar­fjöldi kaup­samn­inga vegna íbúðarhúsnæðis jókst um 3 pró­sent á milli ára. Meðalfjöldi kaup­samn­inga hvers mánaðar var um 913 á land­inu öllu árið 2018 sam­an­borið við 887 samn­inga árið 2017. Þar af stóð höfuð­borg­ar­svæðið undir um 607 samn­ingum að með­al­tali á mánuði, sem er 5,3 pró­sent aukn­ing frá árinu áður.

Meðalfjöldi kaup­samn­inga í þéttbýliskjörnum næst höfuð­borg­ar­svæð­inu auk Akur­eyrar var um 188 samn­ingar á mánuði, sem er 7,4 pró­sent aukn­ing frá fyrra ári, og á öðrum svæðum á land­inu voru að með­al­tali und­ir­rit­aðir um 119 kaup­samn­ingar í hverjum mánuði ársins en það 12,4 pró­sent samdráttur frá árinu áður.

Leigumarkaðurinn virkastur í vesturhluta höfuðborgarsvæðisins

Í skyr­sl­unni segir að leigu­mark­aður reyn­ist vera hvað virkastur í vest­ur­hluta höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins . Í nóv­em­ber var 19 pró­sent allra þing­lýstra leigu­samn­inga á land­inu öllu vegna leigu­samn­inga á svæð­inu vestan við Kringlu­mýr­ar­braut að Sel­tjarn­ar­nesi. Flestir samn­ingar á því svæði voru vegna tveggja her­bergja íbúða og var með­al­fer­metra­verð slíkrar íbúðar rúm­lega þrjú þús­und krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húsnæðismarkaður

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár