Verslað með fasteignir á Íslandi fyrir 550 milljarða á árinu 2018

Um 74 pró­sent allra pen­inga sem skiptu um hendur vegna fast­eigna­við­skipta á árinu sem var að líða, gerðu það vegna slíkra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Með­al­verð á fast­eign var 44 millj­ónir króna á land­inu öllu, en 51 milljón króna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Alls námu heild­ar­við­skipti með fast­eignir um 550 millj­örðum króna á árinu sem var að líða. Árið 2017 voru þau rúm­lega 507 millj­arðar króna og því jókst heild­ar­velta um tæp­lega 8,5 pró­sent milli ára. Þetta kemur fram í frétt frá Þjóðskrá Íslands.

Uppi­staðan af þeim fast­eigna­við­skiptum sem eiga sér stað á Íslandi eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þar voru fast­eignir keyptar fyrir um 405 millj­arða króna á árinu 2018 sem þýðir að um 74 pró­sent allra pen­inga sem skiptu um hendur í slíkum við­skiptum gerðu það vegna fast­eigna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

[adspot]Heild­ar­veltan þar jókst lít­il­lega meira á milli ára en á lands­vísu, eða um 8,9 pró­sent, en hún var 372 millj­arðar króna á árinu 2017.

Dýrara að versla á höfuðborgarsvæðinu

Það var ekki bara umfang fast­eigna­við­skipta í krónum talið sem jókst milli ára, kaup­samn­ingum fjölg­aði einnig. Alls var um 12.500 kaup­samn­ingum þing­lýst á árinu 2018 en þeir voru 12.108 á land­inu öllu árið 2017. Því fjölg­aði þeim um rúm­lega 3,2 pró­sent.

Með­al­upp­hæð á hvern samn­ing í fyrra var um 44 millj­ónir króna en hafði verið um 42 millj­ónir króna árið áður. Verðið er hæst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem með­al­upp­hæð kaup­samn­ings á árinu 2018 var 51 milljón króna.

Bólan eftir einkavæðingu

Ótrú­legur við­snún­ingur hefur orðið á fast­eigna­mark­aði á und­an­förnum árum. Árin fyrir hrun náði hann sögu­legum hæðum sam­hliða því að aðgengi almenn­ings að láns­fjár­magni jókst gríð­ar­lega við einka­væð­ingu rík­is­bank­anna og aukið aðgengi bank­anna að ódýrri fjár­mögnun á alþjóða­mörk­uðum.

Á árunum 1999-2001 var heild­ar­velta á fast­eigna­mark­aði á Íslandi til að mynda stöðug, eða milli 113 og 115 millj­arðar króna á verð­lagi hvers árs. Árið 2007 var hún 407 millj­arðar króna og hafði þá rúm­lega þre­fald­ast frá árinu 2002, árinu sem sölu­ferli Lands­banka Íslands og Bún­að­ar­bank­ans fór að mestu fram.

Eftir banka­hrunið varð gríð­ar­legur sam­dráttur í fast­eigna­við­skiptum og hálf­gert frost ríkti á þeim mark­aði árum saman. Árið 2009 fór heild­ar­velta á mark­aðnum til að mynda undir 100 millj­arða króna í fyrsta sinn frá árinu 1998, og þá er veltan ekki upp­reiknuð með til­liti til þeirra verð­lags­breyt­inga sem orðið höfðu á þeim rúma ára­tug.

Mikil veltuaukning á allra síðustu árum

Staðan var lítið skárri 2010 en mark­að­ur­inn tók síðan aðeins við sér árið eftir. Frá 2012 má segja að hann hafi verið á gríð­ar­legri sigl­ingu og fast­eigna­verð hækkað feyki­lega hratt. Frá lokum árs 2010 hefur það raunar tvö­fald­ast í krónum talið.

Árið 2016 náði veltan því í fyrsta sinn frá hruni að verða meiri en árið 2007, en á því ári jókst veltan um 25 pró­sent, 92 millj­arða króna, á milli ára.

[adspot]Síðustu tvö árin hefur veltu­aukn­ingin verið mjög svipuð, eða yfir átta pró­sent. Á árinu 2017 fór hún í fyrsta sinn yfir 500 millj­arða króna í krónum talið og á árinu sem var að líða var enn eitt metið sett í fast­eigna­við­skiptum þegar Íslend­ingar versl­uðu fast­eignir fyrir 550 millj­arða króna.

2005 á enn metið yfir flesta gerða samninga

Enn eigum við þó nokkuð í land með því að ná þeim fjölda kaup­samn­inga sem gerðir voru á árunum eftir einka­væð­ingu bank­anna og fram að hruni. Flestir kaup­samn­ingar á einu ári voru gerðir árið 2005, eða 15.836. Magn gerðra samn­inga var á svip­uðum slóðum bæði 2004 og 2007.

Þetta vekur athygli þar sem lands­menn voru mun færri á þeim tíma en þeir eru í dag, en í lok árs 2005 bjuggu 299.891 manns á land­inu. Í lok sept­em­ber 2018 var sá fjöldi 355.620 og lands­mönnum hefur því fjölgað um 18,6 pró­sent á tíma­bil­inu. Samt voru 27 pró­sent fleiri kaup­samn­ingar gerðir árið 2005 en í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár