164 sagt upp hjá Bláa lóninu

Bláa lónið ætlar að setja meiri­hluta þeirra starfs­manna sem eftir verða hjá fyr­ir­tæk­inu á hluta­bóta­leið­ina.

Alls var 164 starfs­mönnum Bláa lóns­ins sagt upp í dag. Auk þess ætlar fyr­ir­tækið að bjóða yfir 400 starfs­mönnum af þeim 600 sem eftir verða að nýta sér hluta­bóta­leið­ina sem er hluti af aðgerð­ar­pakka stjórn­valda, og gerir það að verkum að ríkið greiðir allt að 75 pró­sent launa þeirra úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði.

Frá þessu er greint á mbl.is. Þar segir að í til­kynn­ingu sem Grím­ur Sæ­mund­sen, for­stjóri Bláa lóns­ins, sendi til starfs­fólks fyrr í dag segi hann aðgerð­ina þung­bæra en óhjá­kvæmi­lega í ljósi aðstæðna. Bláa lónið lok­aði fyrir þremur dögum síðað og verður lokað til 30. apríl hið minnsta.

Rekstur Bláa lóns­ins hefur gengið afar vel síð­ustu ár. Á aðal­fundi Bláa lóns­ins í fyrra var sam­þykkt að greiða út um 30 millj­ónir evra, þá alls tæp­lega 4,3 millj­arða króna, í arð­greiðslu vegna frammi­stöðu árs­ins 2018. Það var næstum því tvö­falt hærri greiðsla en var greidd út árið 2018 í arð, þegar slík greiðsla nam 16 millj­ónum evra, eða tæp­lega 2,3 millj­arðar króna á núvirð­i.

Í árs­reikn­ingi Bláa lóns­ins fyrir árið 2018 kom fram að rekstr­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins hefðu verið 122,6 millj­ónir evra, um 17,4 millj­arðar króna miðað við gengið þegar síð­asti aðal­fundur fór fram, á því ári. Það var aukn­ing um 20 pró­sent frá árinu 2017 þegar þær voru 102,3 millj­ónir evra, eða um 14,5 millj­arðar króna á gengi síð­asta sum­ars.

Alls nam hagn­aður Bláa lóns­ins á árinu 2018 26,4 millj­ónum evra, um 3,7 millj­örðum króna. Hann dróst lít­il­lega saman milli ára en hann var 31 milljón evra, um 4,4 millj­arðar króna á gengi síð­asta sum­ars, árið 2017. Það þýðir að arð­greiðslan sem sam­þykkt var á aðal­fundi fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra­sumar var hærri en sem nam hagn­aði Bláa lóns­ins á árinu 2018.

Stærsti eig­andi félags­ins er Hvatn­ing slhf. með eign­ar­hlut upp á 39,1 pró­sent. Eig­andi þess er Kólfur ehf., eign­ar­halds­fé­lag að stærstu leyti í eigu Gríms Sæmund­sen, for­stjóra Bláa lóns­ins, og Eðvard Júl­í­us­son­ar. Kólfur keypti tæp­lega helm­ing í Hvatn­ingu af Horni II, fram­taks­sjóði í stýr­ingu Lands­bréfa, árið 2018.

Næst stærsti eig­and­inn er Blá­varmi slhf., félag í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­­sjóða, sem keypti 30 pró­­sent hlut HS Orku í Bláa lón­inu á tæp­­lega fimm­­földu bók­­færðu virði hlut­­ar­ins í maí síð­ast­liðn­um, eða á 15 millj­arða króna.

Salan á hlutnum í Bláa Lón­inu fór fram eftir að Jarð­varmi slhf., félag í eigu sömu líf­eyr­is­­sjóða, hafði eign­­ast allt hlutafé í HS Orku skömmu áður. Miðað við þessi við­skipti þá var Bláa lónið metið í heild sinni á 50 millj­arða króna.

Þriðji stærsti eig­and­inn með 8,7 pró­sent hlut er Keila ehf., en stærsti eig­andi þess er áður­nefnd Hvatn­ing.

Fjórðu og fimmtu stærstu hlut­haf­arnir er félögin Hof­garðar ehf. og Saffron ehf. með sitt hvorn 6,2 pró­sent eign­ar­hlut. Hof­garðar er eign­ar­halds­fé­lag í eigu Helga Magn­ús­son­ar, aðal­eig­anda fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins Torgs, en Helgi er einnig stjórn­ar­for­maður Bláa lóns­ins.

Saffron er í eigu Sig­urðar Arn­gríms­son­ar, sem á líka hluti í Torgi.

Bog­mað­ur­inn ehf., félag í eigu Ágústu John­son er einnig á meðal stærstu eig­enda með 2,4 pró­sent eign­ar­hlut. Ágústa er eig­in­kona Guð­laugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár