Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Vín

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Ég fór bara að sofa í gær. Ég var senni­lega í pínu fýlu. Ég horfði á hálfa bíó­mynd, bíll­inn fór af stað, ég meik­aði ekki meira, tók af mér hedd­fón­ana og fór að sofa. Það síð­asta sem ég heyrði var að Flexi sagði „Kani!“ með þjósti. Ég fékk svo að vita í dag að hann hefði fallið með einum slag. Halli greyið fékk óverð­skuldað á daskinn.

Ég vakn­aði við umrót rétt um tíu í morgun. Ég hafði heyrt ávæn­ing af því að Halli ætl­aði að leiða þá sem vildu í borg­ar­kirkju­garð­inn. Ég vakn­aði fyrir slysni, búinn að sofa nógu lengi og reif mig upp. Því betur. Við héldum fimm á vit ævin­týr­anna, ég, Halli, Jón, Þráinn og Baldur. Við höfum spilað hér áður og þekktum því leið­ina niður í sið­menn­ing­una. Svo sem ekki mið­bæ­inn en nánastu versl­un­ar­göt­una í það minnsta. Það var það eina sem ég hafði séð af Vín­ar­borg. Þangað til í dag.

Við fengum okkur kaffi á lókal konditorí. Það var alveg ljóm­andi og ég enn að vakna. Eftir það fundum við út úr sam­göngum og tókum spor­vagn­inn til kirkju­garðs­ins. Þar röltum við svo inn til að hitta meist­ar­ana. Við þurftum ekki að labba lengi. Þarna lágu þeir í hnapp, Strauss, Brahms og auð­vitað meist­ari Beethoven. Og mitt á milli þeirra minn­is­varði um Mozart sem var graf­inn í fjölda­gröf og öllum týndur. Fyr­ir­fram hefði ég ekki talið að þetta yrði svona áhrifa­mikið en þetta var eig­in­lega alveg osom. Senni­lega hefur það eitt­hvað með upp­eldið að gera því á æsku­heiml­inu var heil­mikið gert með þessa kalla, og þetta varð heil­mikil andakt. Ekki skemmdi fyrir að Halli er útlærður í þessu öllu saman og gat sagt okkur svona upp og ofan. Skammt frá voru allir hinir Strauss­arnir og svo alls­konar menn sem ég get ekki nefnt núna en leið­ang­urs­stjóri fræddi okkur um jafn­óðum. Vissu­lega bara risa­stórir steinar á gras­bölum en í senn yfir­þyrm­andi hluti af sög­unni. Þetta var gaman.

Og svo heim­sóttum við Falco. Aust­ur­ríska popp­stirnið sem lét lífið svip­lega rétt fyrir alda­mót. Rock Me Amadeus og Der Kommisar eru kannski svona fljótt á litið ekki á pari við níundu sin­fón­í­una en heima­menn eru ekk­ert endi­lega sam­mála. Afskap­lega stíliserað leiði sem senni­lega kemur ekki til með að stand­ast tím­ans tönn, en engu að síður gaman. Ég not­aði tæki­færið og klæddi mig í sokka sem ég hafði keypt skammt frá bak­arí­inu. Ég er full­bú­inn fyrir þessa fáu daga sem eftir eru.

[caption id="attachment_14614" align="alignnone" width="3264"] Jón Geir trommari, kom­inn upp við vegg.[/caption]

Eftir þessa stór­kost­legu menn­ing­ar­ferð tókum við spor­vagn­inn til baka og síðan neð­an­jarð­ar­lest­ina niður í bæ. Við stigum upp hjá voða­legri kirkju sem við skoð­uðum í svip, bæði að innan og utan. Og þá vorum við orðnir svangir. Halli átti þennan dag skuld­lausan og leit­aði uppi mat á Trip Advisor. Rif. Aftur rif. Og núna bestu rif í heimi. Við fórum á rifja­stað­inn í Vín og þar voru rif. Ég pant­aði mér metra af rifjum. Jájá, það var á mat­seðl­inum. Metri. Og ég át hann allan. Strák­arnir fóru aðeins flókn­ari leið að þessu sama en við höfum senni­lega étið fimm metra í heild­ina. Og almátt­ugur hversu gott þetta var. Rifin í gær voru djók miðað við þessa meist­ara­snilld. Ég væri alveg til í að koma aftur hingað bara vegna rifj­anna. Við bræður héldum svo upp á venjú og hinir komu í humátt.

Þegar við spil­uðum hér í fyrra fóru tíma­setn­ingar út um þúfur. Tón­leik­arnir voru sum sé aug­lýstir hálf­tíma eftir að við byrj­uðum að spila. Og svo ég drepi á bloggi síð­asta árs:

„Á gigg­inu sjálfu voru nokkur vin­veitt and­lit, þar á meðal Stefán nokkur Jónsson, Jabbar blaks­ins eins og hann hefur verið kall­aður. Stefán er Aðal­dæl­ingur og er á flakki um álf­una einn síns liðs, frétti af ferðum okkar og tíma­setti dvöl sína hér í sam­hengi við það. Afbragðs­menni og gaman að hitta hann. Að því sögðu voru ekki mikið fleiri í salnum þegar við hófum leika, kannski á að giska 7 manns. Það heldur skán­aði þegar á leið og örugg­lega um 100 manns þegar giggi lauk, en lang­fá­mennastu tón­leikar okkar til þessa. Þetta kom mönnum á óvart því for­sala hafði gengið ágæt­lega og von á hús­fylli. Þetta skýrð­ist þó áðan þegar í ljós kom að tón­leik­arnir, sem við byrj­uðum klukkan 19.30, voru aug­lýstir klukkan 20.00. Við hittum ansi marga sársvekkta sem misstu af okkur vegna þessa.“

Þetta var ekki vanda­mál núna. Við klárðum þetta gigg með stór­heitum frammi fyrir fullum sal. Við vorum graðir, spil­uðum af festu og svo­lítið hratt. Það var alls ekk­ert verra því við vorum í stuði. Flautug­arg­ans­maður Arkona, hann Vladimir, óskaði eftir að fá að lýsa giggið okkar og gerði það alveg ljóm­andi vel held ég. Þetta var allt saman ljóm­andi vel heppnað.

Eftir giggið drakk ég meira. Ég bland­aði geði við gull­fal­legan pöp­ul­inn, drakk og skál­aði. Eftir að öllu lauk varð svo svona mini-partý hjá túr­með­limum. Baldur bauð upp á rest­ina af hákarl­inum sem fór mis­vel í fólk. Við drukkum eins lengi og við gátum en svo héldu rútur af stað.

Klukkan er núna 2.48 og við vorum rétt í þessu að stoppa á bens­ín­stöð. Böbbi, Jón og Flexi eru í koju en við hinir erum þéttir hér frammí. Ég veit ekki hversu lengi ég end­ist en þeir hinir þrír eru í stuði og hlusta á þung­arokk. Stað­reyndin er að við eigum ekki nema eitt gigg eftir, annað kvöld í Salzburg. Þangað eru skilst mér sirka 300 kíló­metrar sem Robert afgreiðir örugg­lega á sirka fjórum tímum. Nú stytt­ist, nú stytt­ist heldur betur. Eins gott að við klárum þetta með offorsi á morgun. Ég fékk af því fregnir að Elu­veitie-parið hafi beðið um að fá að spila aftur með okkur á morgun og svo gæti einni farið að Baldur öskri eins og eitt við­lag með Arkona. Hefðin segir að maður eigi að flippa á loka­degi túrs­ins. Loka­blogg síð­asta túrs segir til dæmis:

„Að þessu sögðu ein­kennd­ist dag­ur­inn af fífla­skap eins og verða vill í loka­sýn­ingap­artýjum. Þegar við stigum á svið var til að mynda búið að þekja helstu mónitora og græjur með síðum úr grófum, og heldur óhefð­bundnum, klám­ritum. „Gamla klám­trikkið“ eins og ég kýs að kalla það. Eftir því sem á kvöldið leið dund­uðu menn sér við álíka fífla­skap, ein­hverjir ber­uðu kyn­færi sín hlið­ar­sviðs, þeir sem spila með In Ear (mónitora­kerfi sem stungið er í eyrun líkt og hedd­fónum) fengu alls­konar skila­boð og trufl­andi hljóð til sín frá tæknilið­inu og svona er hægt að telja áfram. Það var galsi í öllum, svo mikið er víst.“

Sjáum til hvað ger­ist á morgun. Þetta var í það minnsta góður dagur.

Meist­ara­legt dags­ins: Grafir og rif.

Sköll dags­ins: Stað­ur­inn var afskap­lega illa tækjum búinn. Ég fékk ekki minn eigin mónitór og heyrði því afskap­lega tak­markað í mér á svið­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár