Fleiri Íslendingar fluttu frá landinu í fyrra en þeir sem komu til baka

Þrátt fyrir að fleiri hafi flutt til Íslands árið 2019 en frá land­inu þá var flutn­ings­jöfn­uður meðal íslenskra rík­is­borg­ara nei­kvæður, þ.e. brott­fluttir Íslend­ingar voru fleiri en aðfluttir.

Fleiri flutt­ust til Íslands en frá land­inu á árinu 2019 eða 4.961 ein­stak­lingar. Það eru nokkuð færri en árið 2018 þegar aðfluttir umfram brott­flutta voru 6.556 og mun færri en metárið 2017 þegar aðfluttir umfram brott­flutta voru 8.240. Þetta kemur fram á vef Hag­stof­unnar í dag.

Þá kemur fram hjá Hag­stof­unni að í sögu­legu sam­hengi hafi flutn­ings­jöfn­uður verið mik­ill síð­ustu ár en ein­ungis árin 2006 og 2007 kom­ist nálægt þeim í fjölda þegar um 5.200 fleiri flutt­ust til lands­ins en frá því.

Samtals flutt­ust 12.006 manns til lands­ins 2019 sam­an­borið við 14.275 á árinu 2018. Alls flutt­ust 7.045 manns frá Íslandi á síð­asta ári borið saman við 7.719 árið 2018. Ef ein­ungis er litið til erlendra rík­is­borg­ara var flutn­ings­jöfn­uður 5.136 manns. Flutn­ings­jöfn­uður meðal íslenskra rík­is­borg­ara var aftur á móti nei­kvæður, brott­fluttir voru 175 fleiri en aðfluttir.

Norðurlöndin vinsælust

Af þeim 2.635 íslensku rík­is­borg­urum sem fluttu af landi brott árið 2019 fóru 1.686 til Dan­merkur, Sví­þjóðar eða Noregs. Flestir fluttu til Dan­merkur, eða 913, en næst flestir til Sví­þjóðar (500). Flestir aðfluttir íslenskir rík­is­borg­arar komu einnig frá þessum löndum eða 1.709 af 2.460. Flestir komu frá Danmörku eða 804, segir í vef Hag­stof­unnar.

Flestir erlendir rík­is­borg­arar flutt­ust á sama tíma til Póllands eða 1.436 af 4.410. Þaðan komu líka 2.642 erlendir rík­is­borg­arar á síð­asta ári.

Eins og síð­ustu ár var fjöl­menn­asti hópur aðfluttra og brott­fluttra árið 2019 á aldr­inum 20 til 29 ára. Tæplega 42 pró­sent brott­fluttra var á þessu ald­urs­bili og rúm­lega 42 pró­sent aðfluttra. Af ein­stökum árgöngum var 26 ára fjöl­menn­asti hóp­ur­inn af brott­fluttum en 27 ára af þeim sem flutt­ust til lands­ins.

Fleiri karlar fluttu til landsins en konur

Enn fremur kemur fram hjá Hag­stof­unni að árið 2019 hafi 2.974 fleiri karlar flutt til lands­ins en frá því og 1.987 konur. Fram til árs­ins 2003 flutt­ust að jafn­aði fleiri konur til lands­ins en karlar. Þessi þróun sner­ist við á tíma­bil­inu frá 2004 til 2008. Á þeim árum flutt­ust til lands­ins sam­tals 4.215 fleiri karlar en konur.

Árin 2009 til 2012 flutt­ust hins vegar sam­tals 4.114 fleiri karlar en konur úr landi umfram aðflutta. Árið 2019 bar svo við að 987 fleiri karlar en konur flutt­ust til lands­ins sem er umtals­verð fækkun frá fyrra ári þegar 1.720 fleiri karlar flutt­ust til lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár