Enn sannfærðari en áður um að það hafi verið rétt að mynda ríkisstjórnina

Svandís Svav­ars­dóttir segir að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sé „fanta­góð“ í því að stýra rík­is­stjórn þeirra þriggja ólíku flokka sem nú sitja að völdum á Íslandi. Stundum þurfi að takast á við rík­is­stjórn­ar­borðið.

„Ég er eig­in­lega sann­færð­ari en ég var fyrir rúm­lega ári. Fyrst og fremst vegna þess að nú hef ég reynsl­una við að sitja við rík­is­stjórn­ar­borðið og stýra heil­brigð­is­mál­unum.“

[links]Þetta segir Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra aðspurð um hvort að hún sé enn jafn sann­færð og hún var áður um að það hafi verið rétt ákvörðun hjá Vinstri grænum að mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki.

Sjálf seg­ist hún hafa náð að stíga ákveðin skref sem hún telji mjög mik­il­væg í sínum mála­flokki, sem ein og sér rétt­læti aðkomu Vinstri grænna að stjórn­inni. „Bæði með því að auka fjár­magn inn í kerfið og líka ákveðnum lagaum­bótum sem eru mik­il­væg, eins og þessum lögum um þung­un­ar­rof.“

Svandís var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Svandís segir að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið, sem teygir sig frá hægri, yfir miðju og til vinstri, sé vissu­lega óvenju­legt. Við rík­is­stjórn­ar­borðið sé hins vegar gríð­ar­lega mikil reynsla. „Mesta reynslan á Alþingi safn­ast saman í þessum þremur flokkum sem núna mynda rík­is­stjórn­ina. Það gerir það að verkum að það þarf tölu­vert til að koma þessum hópi úr jafn­vægi. Það er kannski það sem er dýr­mæt­ast í stjórn­mál­unum í dag og hefur verið und­an­farin ár og miss­eri, það er það að missa ekki takt­inn þó að það blási á móti og stundum þarf maður að hnýta undir kverk og labba áfram út í rokið.“

[adspot]Aðspurð hvort að það sé stundum tek­ist á við rík­is­stjórn­ar­borðið eða hvort að við lýði sé sam­komu­lag um að láta aug­ljósa nún­ings­fleti kyrra liggja segir Svandís raun­veru­leik­ann væri beggja blands. „Stundum þarf að takast á og stundum, oft­ast, er það þannig að við vitum nákvæm­lega hvaðan við erum að koma. Þessir flokkar eru þekkt stærð í hugum hinna.

Það sem skipti gríð­ar­lega miklu máli í rík­is­stjórn­inni sé hins vegar verk­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. „Að for­sæt­is­ráð­herra sé með augun á bolt­anum og viti nákvæm­lega hvar nún­ings­flet­irnir liggja í hvaða máli á hverjum tíma. Vinnu­sam­ari for­sæt­is­ráð­herra held ég að sé ekki hægt að finna. Hún er fanta­góð í að stýra þessum þremur ólíku flokkum saman og er lagin í því bæði póli­tískt og mann­legi þátt­ur­inn er líka þar mik­il­vægur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár