Stjórnvöld, með Sigmund Davíð Gunnlaugsson í broddi fylkingar, eiga heiður skilinn fyrir að taka vel á móti flóttamönnum frá Sýrlandi og öðrum stríðshrjáðum svæðum. Það er manneskjulegt þegar ráðamenn þjóðarinnar taka á móti fólki, sem hefur gengið í gegnum miklar raunir, og hyggst byggja upp líf sitt á Íslandi. Einkar ánægjulegt, satt best að segja, að sjá góðan vilja í verki, og var greinilegt á fólkinu að það kunni að meta þetta.
Akureyringar geta líka verið stoltir af því hvernig þeir hafa rétt út hjálparhönd til flóttafólks í gegnum tíðina. Hinn 18. janúar bætti
st í hóp Akureyringa flóttafólk frá Sýrlandi, og var Eiríkur Björgvinsson, bæjarstjóri, mættur að taka á móti fólkinu
í Viðjulundi, húsnæði Rauða Krossins á Akureyri, ásamt stuðningsfjölskyldum og fleirum. Skapti Hallgrímsson, sá vandaði og góði blaðmaður á Morgunblaðinu, fangaði þessi tímamót
vel,
með myndum og texta
.
Akureyrarbær getur verið stoltur því frumkvæði sem hann sýndi, þegar málefni flóttamanna voru til umræðu fyrir nokkrum misserum, og hin hrikalega staða sem blasti við heimsbyggðinni, í stríðshrjáðum löndum, einkum Sýrlandi, Írak og Afganistan, var að verða skýrari fyrir okkur á Íslandi. Þá sögðust bæjaryfirvöld
tilbúin
að taka á móti fleiri flóttamönnum, enda væri reynslan af því að fá flóttafólk til bæjarins góð, hvernig sem á það væri litið. Fólkið hefði fundið sér heimasvæði á Akureyri og lagt ríkulega til samfélagsins, eins og aðrir.
Ánægjulegt að sjá nýja Akureyringa bætast í hóp heimamanna, alla leið frá Sýrlandi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir