Sameina starfsemi Air Iceland Connect og Icelandair

Staða fram­kvæmda­stjóra Air Iceland Connect verður lögð niður og starf­semi margra sviða þess sam­einuð Icelandair.

Ákveðið hefur verið að sam­þætta rekstur Air Iceland Connect og Icelandair. Air Iceland Connect er dótt­ur­fé­lag Icelandair Group og sinnir inn­an­lands­flugi og áætl­un­ar­flugi til Græn­lands.

Air Iceland Connect hét áður Flug­fé­lag Íslans.

Í frétta­til­kynn­ingu kemur fram að starf­semi félag­anna verði sam­einuð, svo sem flug­rekstr­ar­svið, sölu- og mark­aðs­mál, mannauðs­mál, fjár­mála­svið og upp­lýs­inga­tækni.

Félögin verða þó áfram með aðskilin flug­rekstr­ar­leyfi og áhafnir Air Iceland Connect verða áfram starfs­menn þess félags. Staða fram­kvæmda­stjóra Air Iceland Connect verður sam­hliða lögð niður.

Árni Gunn­ars­son, núver­andi fram­kvæmda­stjóri Air Iceland Connect, mun taka við sem fram­kvæmda­stjóri Iceland Travel á næstu vikum, en Björn Víglunds­son mun láta af störfum, segir í til­kynn­ing­unni.

„Árni mun vinna náið með stjórn­endum Icelandair að sam­þætt­ingu rekstrar flug­fé­lag­anna og mun Björn áfram stýra Iceland Travel á meðan á þess­ari vinnu stendur.“

Árni Gunn­ars­son hefur starfað hjá Air Iceland Connect frá árinu 1999, fyrst sem sölu- og mark­aðs­stjóri, og sem fram­kvæmda­stjóri félags­ins frá árinu 2005. Hann hefur ára­tug­a­reynslu af stjórn­un­ar­störfum í ferða­þjón­ustu, bæði á Íslandi og í Þýska­landi, og er með M.Sc. gráðu í hag­fræði frá Háskól­anum í Augsburg í Þýska­landi. Iceland Travel er dótt­ur­fé­lag Icelandair Group og sér­hæfir sig í skipu­lagn­ingu ferða fyrir erlenda ferða­menn á Íslandi.

„Í því ástandi sem nú ríkir erum við að leita allra leiða til hag­ræð­ingar í rekstri Icelandair Group og teljum við mikil tæki­færi í því að sam­þætta flug­rekstur okkar enn frekar,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, for­stjóra Icelandair Group í til­kynn­ingu. „Um leið og ég þakka Árna Gunn­ars­syni fyrir mik­il­vægt fram­lag við upp­bygg­ingu Air Iceland Connect á síð­ustu 15 árum, býð ég hann vel­kom­inn til starfa á nýjum vett­vangi innan félags­ins. Á sama tíma vil ég þakka Birni Víglunds­syni fyrir mjög gott starf og mikið fram­lag til Icelandair Group sam­stæð­unnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár