Liggur ekki fyrir hversu miklu var komið undan í skattaskjól

Gylfi Zoega pró­fessor í hag­fræði fjall­aði um ýmis mál í Vís­bend­ingu sem rædd voru 30. og 31. ágúst á ráð­stefnu í Háskóla Íslands.

„Sú spurn­ing kom fram hvað hefði orðið um þá þús­undir millj­arða sem teknir voru að láni af íslensku bönk­unum. Í ljós kom að ekki hefur verið gerð til­raun til þess að finna þessa pen­inga. Það sem liggur fyrir er að eig­endur bank­anna lán­uðu sjálfum sér og eigin eign­ar­halds­fé­lögum óspart en ekki liggur fyrir hversu mikið af láns­fénu tap­að­ist í erlendum fjár­fest­ingum og hversu miklu var komið undan í skatta­skjól.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legri grein Gylfa Zoega, pró­fess­ors í hag­fræði við Háskóla Íslands, í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ingar.

Þar fjallar hann meðal ann­ars um ráð­stefnu sem fram fór í Háskóla Íslands 30. og 31. ágúst síð­ast­lið­inn. Þar var fjallað um þau tíma­mót að tíu ár eru nú frá hruni fjár­mála­kerf­is­ins á Íslandi og hápunkti hinnar alþjóð­legu fjár­málakreppu.

„Það sjón­ar­mið kom fram að frjálst flæði fjár­magns krefð­ist þess að stofn­anir fjár­mála­mark­aðar væru þroskaðar í þeim skiln­ingi að eft­ir­lit væri í lagi og spill­ing ekki mikil. Ef spillt lönd – spill­ing fæli þá í sér óeðli­leg tengsl eft­ir­lits­að­ila, stjórn­mála og fjár­mála­afla – eða lönd með veikar eft­ir­lits­stofn­anir opn­uðu sig of snemma gagn­vart umheim­inum væri voð­inn vís. Þannig væri unnt að rétt­læta fjár­mála­höft í van­þró­uðum ríkjum eins og t.d. Kína. Frjálst aðgengi að erlendu fjár­magni fæli þá í sér hættu vegna þess að þeir mis­brestir sem væru innan lands væru magn­aðir upp þegar aðilar fá mun meira fjár­magn undir hendur á erlendum mörk­uðum en þeir gætu kom­ist yfir innan lands. Þannig væru höft á flæði fjár­magns það sem á ensku kall­ast „second best“ ef ekki er hægt að gera inn­lendar stofn­anir og fjár­mála­mark­aði virk­ari og upp­ræta spill­ingu.

Í þessu sam­hengi var þeirri spurn­ingu varpað fram hvort hömlum á frelsi í fjár­magns­flutn­ingum hefði verið aflétt of snemma á Íslandi, að „dýr­unum“ hafi verið sleppt of snemma út úr „búr­inu“ eins og ein­hver orð­aði það fyrir mörgum árum síðan,“ segir meðal ann­ars í grein­inni.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár