Enginn ríkisráðsfundur á gamlársdag

Ríkisráð kemur ekki saman á síð­asta degi árs­ins vegna smita í ráð­herra­liði rík­is­stjórn­ar­innar. Þetta er í fyrsta sinn í rúma þrjá ára­tugi sem ekki er fundað á þessum degi. Nýr fundur rík­is­ráðs verður boð­aður eftir ára­mót.

Ríkisráð kemur ekki saman til fundar á Bessa­stöðum gaml­árs­dag, 31. des­em­ber 2021, eins og venja hefur verið und­an­farna ára­tugi. Ástæðan sem gefin er upp í frétta­til­kynn­ingu frá skrif­stofu for­seta Íslands er sú að í það minnsta þrír ráð­herrar verða í ein­angrun um ára­mótin vegna kór­ónu­veirusmits. Í rík­is­ráði eiga sæti ráð­herrar og for­seti Íslands.

Sú hefð að hafa fund í rík­is­ráði á gaml­árs­dag hefur verið við lýði frá því að Kristján Eldjárn tók við emb­ætti for­seta Íslands. Á því hafa orðið þrjár und­an­tekn­ingar fram til þessa, segir í til­kynn­ing­unni.

Fyrsta und­an­tekn­ingin var árið 1978 þegar rík­is­ráðs­fundur var hald­inn degi fyrr og mun það hafa verið vegna þess að gaml­árs­dag það ár bar upp á sunnu­dag. Árið 1980, á fyrsta ári Vigdísar Finn­boga­dóttur á for­seta­stóli, var fundur boð­aður en honum frestað á síð­ustu stundu vegna spennu og vanda í stjórn­ar­sam­starfi. Árið 1989 var rík­is­ráðs­fundur hald­inn laug­ar­dag­inn 30. des­em­ber, aftur vænt­an­lega svo að hann skar­að­ist ekki á við messu­tíma á sunnu­degi.

Allar götur síðan hefur rík­is­ráð komið saman á gaml­árs­dag og verður þetta því í fyrsta sinn í rúma þrjá ára­tugi sem það er ekki gert. Næsti fundur í rík­is­ráði verður boð­aður á nýju ári en dag­setn­ing verður ákveðin síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár