Loftslagsvandinn leystur?

Ted Halstead seg­ist vera búinn að finna lausn­ina á lofts­lags­vanda heims­ins.

Ted-fyrirlestur Teds Halstead síðan í maí síðastliðnum
Ted-fyr­ir­lestur Teds Halstead síðan í maí síð­ast­liðnum

... Í það minnsta fyrir stjórn­mála­menn og stefnu­mótendur.

Lausnin gengur út á að beita við­ur­kenndum efna­hags­legum hvötum mark­aðs­hag­kerf­is­ins til þess að dragar úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Ef hægt er að inn­leiða þessa mark­aðs­lausn í reglu­verk ríkja heims er hér um að ræða snjalla lausn á vanda­máli sem mark­aðs- og stjórn­mála­fræð­ingar hafa velt fyrir sér um nokk­urt skeið.

Lofts­lags­vand­inn hefur verið skil­greindur sem „mesti og víð­tæk­asti mark­aðs­brestur allra tíma“ í lofts­lags­skýrslu Nicolas Stern sem hann skil­aði breskum stjórn­völdum árið 2006. Þar er meðal ann­ars lagt til að hið opin­bera grípi inn í, til þess að leið­rétta þennan mark­aðs­brest, með skatt­lagn­ingu á kolefni. Þannig sé hægt að setja verð á kolefnið sem sam­fé­lag manna blæs út í and­rúms­loftið.

Lausn Hal­steads er af svip­uðum toga, nema að opin­beru gjöldin eiga ekki að enda í sam­fé­lags­sjóðum heldur skapa hvata fyrir fyr­ir­tæki til þess að fjár­festa í lofslagsvænni eignum og þjón­ustu.

Fjórir punktar

Halstead stofn­aði The Climate Leaders­hip Council ásamt mörgum mik­ils­metnum ein­stak­lingum og stór­fyr­ir­tækjum árið 2016. Meðal stofn­fé­laga eru fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herrar og fjár­mála­ráð­herrar Banda­ríkj­anna, sem nær allir eiga það sam­eig­in­legt að hafa starfað undir íhalds­sam­ari for­setum Repúblikana­flokks­ins þar í landi.

Svo ein­hver nöfn séu nefnd: fyrr­ver­andi stjórn­mála­menn­irnir James A. Baker, George P. Shultz, Steven Chu og Michael Bloomberg, hag­fræð­ing­arnir Gregory Mankiw og Martin Feld­stein, og eðl­is­fræð­ing­ur­inn Stephen Hawking.

[adspot]

Lausnin sem lofts­lags­ráðið kynnti í febr­úar á þessu ári er í fjórum liðum og miðar að því að búa til virði úr umhverfis- og sam­fé­lags­vænni vörum og þjón­ustu, á kostnað þeirra sem menga meira.

Þær hindr­anir sem koma í veg fyrir lofts­lagsvænni þróun af hálfu stjórn­valda eru, að mati lofts­lags­ráðs­ins: Sál­fræði­legar hindr­anir, hindr­anir í alþjóða­stjórn­málum og inn­an­rík­is­flokksá­tök.

Þessi lausn varð til í Banda­ríkj­unum og miðar að því að bæta banda­rískt reglu­verk með til­liti til lofts­lags­mála. Kjarninn vill hins vegar benda á að þessar lausnir má auð­veld­lega heim­færa á önnur ríki, þar með talið Ísland.

Á vef lofts­lags­ráðs­ins má lesa um fjórar stoðir áætl­un­ar­innar um það sem kalla má í laus­legri þýð­ingu kolefn­is­mót­fram­lag (e. carbon dividends plan).

1. Vaxandi kolefnisskattar

Grunn­stoð þess­arar lausnar felst í því að kolefn­is­skattar séu inn­heimtir sem hafa engin áhrif á rík­is­sjóð (e. revenue-neutral). Þannig er hægt að setja verð­miða á útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og bæta upp fyrir bresti mark­að­ar­ins; þessa með að mark­að­ur­inn tekur hvorki til­lit til sam­fé­lags­þátta eða umhverf­is­ins.

Gert er ráð fyrir að kolefn­is­skatt­arnir hækki á milli ára til fram­tíðar, sem ætti að mynda hvata fyrir fjár­fest­ingu í umhverf­is­vænni tækni hraðar en ella.

2. Kolefnismótframlag til skattgreiðenda

Hér er rús­ínan í pylsu­end­anum. Með þess­ari stoð eru kolefn­is­skatt­arnir gerðir vin­sælir því allir inn­heimtir kolefn­is­skattar eru greiddir aftur til skatt­greið­enda. Með þessu verður það auð­veld­ara fyrir stjórn­mála­menn og stefnu­mót­un­ar­valdið að koma kolefn­is­skött­unum til leiðar.

Um væri að ræða flata end­ur­greiðslu á inn­heimtum kolefn­is­sköttum; sem sagt sam­an­lögð fjár­upp­hæð deilt í fjölda skatt­greið­enda. Hægt er að ímynda sér að Rík­is­skatt­stjóri mundi skrá mót­fram­lagið á álagn­ing­ar­seð­il­inn, þar sem útvarps­gjöldin eru til dæmis inn­heimt.

3. Loftslagstollar

Til þess að gera þessa mark­aðs­lausn við lofts­lags­vand­anum „smit­andi“ verða settir upp kolefn­is­tollar á inn­flutn­ing og útflutn­ing til og frá löndum sem hafa ekki komið sér upp sam­bæri­legu kerfi.

Vegna þess­arar stoðar skiptir í raun engu hvar þessi lausn verður inn­leidd fyrst, því hún er smit­andi.

4. Óþarfa löggjöf felld úr gildi

Þetta er sá punktur sem á helst við í Banda­ríkj­unum og rímar vel við orð­ræðu full­trúa Repúblikana­flokks­ins. Í grunn­inn gengur þessi punktur út á að vegna nýrra, síhækk­andi og vin­sælla kolefn­is­skatta eru aðrar lofts­lags­reglu­gerðir óþarfar. Það er hins vegar álita­mál hversu rót­tækar reglu­gerða­hreins­an­irnar ættu að vera.

Fáar gagnrýnisraddir

Lausn Climate Leaders­hip Council er að mörgu leyti mjög góð og sem kenn­ing hljómar þetta eins og vinn­andi verk. Það eru þó fáein atriði sem ekki hafa verið skil­greind nógu vel.

Sem dæmi má nefna að hvergi er skil­greint hverjir munu eiga rétt á kolefn­is­mót­fram­lag­inu. Í þess­ari umfjöllun er gert ráð fyrir að um flata end­ur­greiðslu til ein­stak­linga sé að ræða, þe. sama hversu mikið þú kaupir af elds­neyti á bíl­inn þinn, þá mundu alltaf fá jafn mikið og sú sem á ekki bíl og kaupir aldrei elds­neyti.

Einnig hefur sú gagn­rýni heyrst að ekki sé minnst einu orði á að skattar á vörur og þjón­ustu eiga það til að hækka verð til neyt­enda. Það er rétt að það á við um kolefn­is­skatta eins og virð­is­auka­skatt, en ekki má gleyma að þetta er einmitt eitt mark­mið kolefn­is­skatta. Skatt­arnir eiga að hækka verð á meng­andi hluti og skapa hvata fyrir þróun stað­gengla sem menga minna. Hugs­an­lega þurfa að fylgja íviln­anir á vörur sem menga minna, sam­hliða kolefn­is­skatt­inum.

Lausnin er eflaust ekki full­komin (fæstar lausnir hafa enga fylgi­kvilla) en hér hefur verið sett fram heild­stæð áætlun til að beita mark­að­inum til lausnar lofts­lags­vand­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár