Ráðherra boðar borgarstjóra á fund út af stúlkunni sem gleymdist

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur óskað eftir fundi með Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra til að fara yfir atvikið þegar átján ára þroska­skert stúlka gleymd­ist í bíl frá Strætó BS og fannst mörgum klukku­tímum síðar fyrir utan heim­ili öku­manns bíls­ins. Stúlkan var að nýta sér ferða­þjón­ustu fatl­aðra sem Strætó sér um.

 




Í bílnum í sjö tíma, Strætó biðst afsökunar

Stúlkan, sem heitir Ólöf Þorbjörg Pét­urs­dóttir, er átján ára og þroska­skert.

Hennar var leitað í

gær­dag og í um kvöldið fannst hún inni í bíl ferða­þjón­ustu fatl­aðra, sem var lagt við heim­ili bíl­stjór­ans.

Rúv greindi frá þessu í

gær. Lýst var eftir stúlkunni þegar upp­götv­að­ist að hún hafði ekki skilað sér í Hitt húsið eftir hádegið í dag. Björg­un­ar­sveitir leit­uðu að henni og hún kom í leit­irnar heil á húfi um klukkan átta í kvöld. Þá hafði hún vænt­an­lega verið inni í bílnum frá því klukkan eitt í gær, eða um sjö tíma.

Smári Ólafsson, sviðs­stjóri akst­urs­þjón­ustu hjá Strætó, sendi frá sér til­kynn­ingu í gær­kvöld þar sem hann biður stúlk­una of fjöl­skyldu hennar afsök­unar. Í til­kynn­ingu Smára segir:

„Í dag átti sér hörmu­legt atvik þar sem ung stúlka varð eftir í bíl fyr­ir­tæk­is­ins. Við hörmum þetta atvik meira en orð geta lýst og viljum biðja stúlk­una og fjöl­skyldu hennar afsök­unar. Málið er nú til rann­sóknar og verður allt gert til að kom­ast til botns í því.

Aftur vil ég taka það fram að okkur starfs­fólki fyr­ir­tæk­is­ins er afar brugðið yfir því að þetta skyldi ger­ast.“

Elsa Lára Arn­ar­dóttir, þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur auk þess óskað eftir auka­fundi í Vel­ferð­ar­nefnd Alþingis til að ræða þá stöðu sem komin er upp í tengslum við ferða­þjón­ustu fatl­aðra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í tölvu­pósti hennar til nefnd­ar­innar segir: „Ég óska eftir því að fá full­trúa úr borg­ar­stjórn Reykja­víkur á fund­inn, aðila frá Þroska­hjálp, Öryrkja­banda­lag­inu og fleiri hlut­að­eig­andi aðilum. Það er fullt erindi að mínu mati að ræða þá alvar­legu stöðu sem komin er upp“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðaþjónusta fatlaðra

PistillFerðaþjónusta fatlaðra

Ritstjórn Kjarnans

Pæling dags­ins: Hreinsið til í Strætó og bætið fyrir virð­ing­ar­leysið

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp. Ferða­þjón­usta fatl­aðs fólks hefur verið mikið í fréttum eftir að Strætó tók við þjón­ust­unni um ára­mót. Fram­kvæmd þjón­ust­unnar hefur verið harð­lega gagn­rýnd, fólk sem þarf að nota þessa þjón­ustu hefur meðal ann­ars...
FréttirFerðaþjónusta fatlaðra

Fannst í bíl ferða­þjón­ustu fatl­aðra við heim­ili bíl­stjór­ans

Átján ára þroska­skert stúlka sem var leitað að í dag og í kvöld fannst inni í bíl ferða­þjón­ustu fatl­aðra, sem var lagt við heim­ili bíl­stjór­ans. Rúv greindi frá þessu í kvöld. Lýst var eftir stúlkunni, Ólöfu Þor­björgu Pét­urs­dóttur, þegar upp­götv­að­ist að hún hafði ekki skilað sér í Hitt húsið eftir hádegið í dag. Björg­un­ar­sveitir leit­uðu að henni og hún kom...
FréttirFerðaþjónusta fatlaðra

Strætó biður stúlk­una afsök­unar, rann­sókn á mál­inu þegar hafin

Smári Ólafsson, sviðs­stjóri akst­urs­þjón­ustu hjá Strætó, hefur sent frá sér til­kynn­ingu þar sem hann biður stúlk­una sem varð eftir í bíl fyr­ir­tæk­is­ins fyrr í dag afsök­unar. Í til­kynn­ingu Smára segir: "Í dag átti sér hörmu­legt atvik þar sem ung stúlka varð eftir í bíl fyr­ir­tæk­is­ins. Við hörmum þetta atvik meira en orð geta lýst og viljum biðja stúlk­una og fjöl­skyldu...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár