Íslendingar streyma til Parísar

Miðasala á leik Íslands og Frakk­lands hefst í hádeg­inu. Flug­fé­lög kepp­ast nú við að finna lausar flug­vélar til að koma flestum sem vilja til Parísar fyrir sunnu­dag­inn.

Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, er orðinn heimsfrægur eftir ótrúlegt gengi liðsins.
Aron Einar Gunn­ars­son, fyr­ir­liði íslenska lands­liðs­ins, er orð­inn heims­frægur eftir ótrú­legt gengi liðs­ins. Mynd: EPA

Miðasala á leik Íslands og Frakk­lands hefst í hádeg­inu í dag á heima­síðu UEFA, evr­ópska knatt­spyrnu­sam­bands­ins. Leik­ur­inn fer fram á Stade de France í París klukkan 19 að íslenskum tíma á sunnu­dag­inn næst­kom­andi, 3. júlí. Eftir ótrú­legan sigur íslenska lands­liðs­ins gegn Englandi í gær­kvöld komust Íslend­ingar í átta liða úrslit og spila fyrsta leik­inn gegn gest­gjöfum EM, Frökkum. Stade de France tek­ur rúm­lega 81 þús­und áhorf­end­ur, en Alli­anz Ri­viera-leik­vang­ur­inn í Nice, sem leikið var á í kvöld, tek­ur ein­ung­is rúm­lega 35 þús­und.

Búist er við því að Íslend­ingar streymi til Parísar til að verða vitni að þessum sögu­lega við­burði, en flug selj­ast hratt upp. Ferða­skrif­stofan Heims­ferðir opn­aði fyrir bók­anir klukkan 9:30 en vegna álags er hún afar hæg. Heims­ferðir ætla að bjóða upp á kvöld­flug til Par­ís­ar laug­ar­dag­inn 2. júlí og heim aft­ur til Íslands þriðju­dag­inn 5. júlí.

Icelandair reynir að finna fleiri vélar

Guðjón Arn­gríms­son, upp­lýs­inga­full­trúi Icelandair, segir í sam­tali við mbl.is að stefnt sé að því að koma flestum sem vilja til Parísar. Úrslit gær­kvölds­ins hafi reyndar ekki verið eitt­hvað sem Icelanda­ir hafði al­mennt reiknað með, eins og gef­ur að skilja. En brugð­ist verði við stöð­unni og lík­lega verða þær þrjár flug­ferðir til Parísar sem boðið er upp á dag hvern fljótar að fyll­ast. Hægt er að kom­ast til Par­ís­ar í gegn­um London, Brus­sel, Amster­dam, Kaup­manna­höfn og ýms­ar aðrar borg­ir. Guðjón und­ir­strikar við MBL að reynt verði að finna fleiri flug­vélar í beint flug, þó að það sé ekki ein­falt á þess­um árs­tíma.

Heimasíða WOW Air hrundi vegna álags

Heima­síða flug­fé­lags­ins WOW Air hrundi í gær­kvöldi vegna álags þegar fólk hóp­að­ist inn á síð­una til að finna sér flug til Parísar. Hún komst þó fljótt í lag. Klukkan 9:30 í dag voru örfá sæti laus til Parísar, en búist er við því að þau selj­ist fljótt upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

em2016

Fréttirem2016

Starfs­fólk KSÍ fær bón­us­greiðslur vegna EM

Starfs­fólk Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) fær greitt launa­upp­bót sökum álags í tengslum við þátt­töku A-lands­liðs karla á EM í Frakk­landi í sumar, þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Uppbótin mun sam­svara mán­að­ar­launum hvers starfs­manns. Stjórn KSÍ sam­þykkti þetta á fundi í júlí. Frá mál­inu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, bar fram til­lög­una þegar hún...
Fréttirem2016

Eft­ir­spurn eftir gist­ingu í Frakk­landi jókst mest meðal Íslend­inga

Tífalt fleiri Íslend­ingar leit­uðu eftir gist­ingu í Frakk­landi á fyrri hluta þessa árs en í fyrra á vef Hotels.com, enda náði íslenska landsiðið í knatt­spyrnu langt á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sem fram fór í Frakk­landi í júní. Sam­an­borið við önnur lið sem náðu jafn langt og Ísland í keppn­inni juk­ust leitir Íslend­inga mest. Að jafn­aði fjölg­aði leitum að hót­el­her­bergjum í Frakk­landi um...
Pistillem2016

Þórður Snær Júlíusson

Þegar Arnór Ingvi tryggði Portú­gölum Evr­ópu­meist­ara­titil

Úrslita­leikir hafa til­hneig­ingu til að vera leið­in­legir. Þeir sem hafa ekki verið það eru telj­andi á fingrum ann­arar handar. Mexíkó 1986, kannski úrslita­leikur EM 2000, úrslita­leikur meist­ara­deild­ar­innar í Istanbúl árið 2005 koma upp í hug­ann. Þótt ýmsir leikir hafi inni­haldið hádramat­ísk augna­blik, t.d. magn­aður sigur Manchester United á Bayern Munich árið 1999, þá var leik­ur­inn sjálfur að mestu hund­leið­in­legur. Úrslita­leikur...
Erlentem2016

Portúgal Evr­ópu­meist­arar eftir sigur á Frökkum

Portúgal er Evr­ópu­meist­ari eftir að hafa sigrað Frakk­land 1-0 í úrslita­leik EM 2016. Eina mark leiks­ins var skorað af vara­mann­inum Eder, sem á 109 mín­útu leiks­ins. Heima­menn í Frakk­landi höfðu þótt mun sig­ur­strang­legri fyrir leik­inn og sig­ur­líkur þeirra þóttu ekki minnka þegar Cristiano Ronaldo, einn besti knatt­spyrnu­maður sög­unnar, þurfti að fara meiddur af velli um miðjan fyrri hálf­leik. Fyrir leik­inn...
Erlentem2016

Kolbeinn við það að verða kos­inn leik­maður EM á vef Sky

Kolbeinn Sig­þórs­son, fram­herji íslenska lands­liðs­ins og franska liðs­ins Nantes, er í efsta sæti í kosn­ingu á leik­manni EM hjá Sky. Kolbeinn hefur fengið yfir 20 þús­und atkvæði en Antoine Griezmann, helsta stjarna franska lands­liðs­ins, situr í öðru sæti með um 18 þús­und atkvæði. EM lýkur síðar í dag með úrslita­leik heima­manna í Frakk­landi gegn liði Portúgal. Íslenska lands­liðið datt sem...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár