37 ára heimsmethafi í maraþoni vill veita ungu fólki innblástur

Eliud Kipchoge, heims­met­hafi í mara­þoni, hljóp dag­lega í skól­ann sem barn í Kenía, þrjá kíló­metra. Um helg­ina hljóp hann mara­þon á tveimur klukku­stundum, einni mín­útu og níu sek­úndum. Það er eins og að stilla hlaupa­bretti á 21. Í rúmar tvær klukku­stundir.

Eliud Kipchoge hefur hlaupið maraþon hraðast allra, á tveimur klukkustundum, einni mínútu og níu sekúndum.
Eliud Kipchoge hefur hlaupið mara­þon hrað­ast allra, á tveimur klukku­stundum, einni mín­útu og níu sek­úndum. Mynd: EPA

Eliud Kipchoge, tvö­faldur Ólymp­íu­meist­ara í mara­þon­hlaupi, bætti eigið heims­met í mara­þoni um 30 sek­úndur um helg­ina þegar hann kom í mark við Brand­en­borg­ar­hliðið í Berlín­ar­m­ara­þon­inu á tveimur klukku­stundum, einni mín­útu og níu sek­úndum.

2:01:09.

Það þýðir að með­al­hraði hans í hlaup­inu var 21,02 kíló­metra hraði á klukku­stund. Ein­kunn­ar­orð Kipchoge eiga því vel við eftir Berlín­ar­m­ara­þonið: „Impossi­ble is Nothing“, eins konar fram­þróun á fra­s­anum „Nothing is impossi­ble“ eða „ekk­ert er ómögu­legt“.

Kipchoge er fæddur 5. nóv­em­ber 1984 í Nande-sýslu í Kenía og verður því 38 ára síðar á þessu ári. Sem barn æfði hann hlaup ekki sér­stak­lega en hljóp í og úr skól­ann á hverjum degi, 3,2 kíló­metra hvora leið. Kipchoge er yngstur fjög­urra systk­ina og ólst upp hjá móður sinni, sem var ein­stæð, en hann þekkti föður sinn aðeins af myndum. Kipchoge var 16 ára þegar hann kynnt­ist þjálf­ar­anum sínum, Patrick Sang, ólymp­íu­meist­ara í hindr­un­ar­hlaupi.

Metavæn hlaupaleið í Berlín

Sang er enn hans aðal­þjálf­ari í dag og fagn­aði heims­met­inu inni­lega með honum í Berlín um helg­ina. Kipchoge, sem hóf lang­hlaupa­fer­il­inn sem 5.000 metra hlaup­ari, hefur nú sigrað 15 af 17 mara­þon­hlaupum sem hann hefur tekið þátt í. Þriðj­ungur sigr­anna hafa komið í Berlín og ljóst er að hlaupa­leiðin í borg­inni er hentug til meta­bæt­inga, hvort sem um er að ræða heims­met eða ekki. Heims­metið sem hann sló setti hann einmitt í Berlín fyrir fjórum árum, þegar hann hljóp á tveimur klukku­stundum, einni mín­útu og 39 sek­úndum.

Kipchoge var þakk­læti efst í huga þegar hann kom í mark á sunnu­dag­inn og þakk­aði hann liðs­fé­lögum sínum fyrir hversu hrað­skreiður hann var. „Allt snýst um sam­vinnu,“ sagði hann. „Það sem hvetur mig áfram er fjöl­skyldan mín og ég vil veita ungu fólki inn­blástur. Íþróttir sam­eina fólk og það er það sem hvetur mig áfram.“

Um klukkutíma bæting á 126 árum

Saga mara­þon­hlaups er mörg hund­ruð ára gömul og nær allt aftur til árs­ins 490 f.Kr. þegar Grikkir áttu í stríði við Persa í orr­ust­unni um Maraþon. Sagan segir að þegar Grikkir höfðu betur í stríð­inu hafi maður nokkur, Þersippos, verið sendir til Aþenu til að greina frá sigrinum. Hlaupa­leiðin var um 42 kíló­metrar og þegar Þersippos komst á leið­ar­enda hneig hann niður.

Fyrst var keppt í mara­þoni á fyrstu nútíma­ólymp­íu­leik­unum sem fram fóru í Aþenu árið 1896. Það var við­eig­andi að Grikki sigr­aði í hlaup­inu, á tím­anum tveimur klukku­stundum, 58 mín­útum og 50 sek­úndum. Vega­lengdin var reyndar aðeins styttri en hún er í dag, aðeins 40 kíló­metrar. En frá og með Ólymp­íu­leik­unum í París árið 1924 hefur vega­lengd mara­þons verið 24 kíló­metrar og 195 metrar.

Fyrsta skráða heims­metið í karla­flokki í við­ur­kenndri mara­þon­lengd er að öllum lík­indum 2 klukku­stundir, 26 mín­útur og 14 sek­úndur, sett af hinum jap­ansk-kóreska Sohn Kee-chung, í Tókýó árið 1935. Japanir og Bretar skipt­ust á að setja heims­met á árunum eftir seinni heim­styrj­öld­ina þar til árs­ins 1964 þegar Eþíóp­íu­mað­ur­inn Abebe Bikila hljóp heilt mara­þon á tveimur klukku­stundum, 12 mín­útum og 11 sek­úndum. Síðan þá hefur metið nálg­ast tveggja klukku­stunda markið, mark­miðið sem fremstu mara­þon­hlaupararnir láta sig dreyma um að ná. Meira um það síðar.

Aldrei hlaupið hálfmaraþon í maraþoni jafn hratt

Hlaupið á sunnu­dag var hratt, eins og við mátti búast, enda voru aðstæður til lang­hlaups eins og best verður á kosið: 11 gráður, logn og úrkomu­laust. Hlaupið byrj­aði gríð­ar­lega hratt. Kipchoge hljóp fimm kíló­metra á 14 mín­útum og 14 sek­úndum og tíu kíló­metra á 28 mín­útum og 23 sek­úndum. Hálf­mara­þon hljóp hann á 59:51 og með sama hraða í síð­ara hlut­anum hefði hann því náð að hlaupa á undir tveimur klukku­tímum. Hann hefur aldrei hlaupið fyrri helm­ing mara­þons jafn hratt, en í sama hlaupi í fyrra hljóp hann fyrri 21,1 kíló­met­er­inn á 60:48.

Kipchoge hafði sam­keppni í fyrri hluta hlaups­ins og það hjálp­aði lík­lega til við að halda hrað­anum uppi. Eþíóp­íu­mað­ur­inn Andamlak Belihu, sem var að hlaupa sitt annað mara­þon á ferl­inum, var rétt á eftir honum. Kipchoge hafði aðeins hægt á sér við 25 kíló­metra sem hann hljóp á 1:11:08 og fljót­lega eftir það stakk hann Belihu af. Kipchoge hljóp 35 kíló­metra á 1:40:10. Með­al­hraði á hvern kíló­metra var samt sem áður 2 mín­útur og 52 sek­úndur og ljóst að heims­metið var í hættu með þessu áfram­haldi.

Stöldrum aðeins við.

Með­al­hrað­inn sem Kipchoge hljóp á, þegar hann var búinn að hlaupa 35 kíló­metra, var 2 mín­útur og 52 sek­úndur á hvern kíló­metra. Það er eins og að stilla hlaupa­brettið á 21,2.

Nið­ur­staðan varð svo, sem fyrr segir, 30 sek­úndna bæt­ing, 2:01:09. Næstur á eftir Kipchoge var landi hans Mark Korir á 2:05:58. Eþíóp­íu­mað­ur­inn Tadu Abate var þriðji á 2:06:40 og Belihu varð fjórði, fimm og hálfri mín­útu á eftir Kipchoge, á tím­anum 2:06:40.

Kipchoge sagði eftir hlaupið að hann ætl­aði sér að hlaupa fyrri helm­ing­inn á 60 mín­útum og 50 sek­úndum. „En fæturnir mínir voru að hlaupa mjög hratt og ég hugs­aði með mér að reyna að hlaupa á tveimur tímum sléttum. En ég er ánægður með frammi­stöð­una.“

Hann við­ur­kenndi að seinni helm­ingur hlaups­ins reynd­ist honum erf­iður þar sem fyrri hlut­inn var svo hraður. „Við fórum of hratt og það tók orku frá vöðv­unum.“

Undir tveimur tímum í París 2024?

Kipchoge er hrað­skreið­asti mara­þon­hlaup­ari í heimi með tvo bestu tím­ana í sög­unni. Heims­metið sem hann setti á laug­ar­dag og tím­ann frá því í sama hlaupi fyrir fjórum árum. Næstur á eftir honum kemur Eþíóp­íu­mað­ur­inn Kenenisa Bekele sem hefur hlaupið mara­þon á tveimur klukku­stundum, einni mín­útu og 41 sek­úndu.

Kipchoge verður 38 ára í nóv­em­ber en hann er hvergi nærri hættur. Markmið hans eru háleit. Hann ætlar að hlaupa hraðar. Undir tveimur klukku­stundum.

Það hefur hann raunar gert. Fyrstur allra í heim­inum í Vín­ar­borg árið 2019 þegar hann hljóp mara­þon á einni klukku­stund, 59 mín­útum og 40 sek­úndum. Tíminn var ekki skráður sem opin­bert heims­met þar sem ekki var um hefð­bundið mara­þon­hlaup að ræða heldur helj­ar­innar teym­is­vinnu.

Hlaupið og allt umstangið í kringum það var þaul­skipu­lagt. Kipchoge hljóp 9,4 kíló­metra langan hring, rúm­lega fjórum sinnum, í kringum garð í mið­borg Vínar og naut aðstoðar 41 „héra“ sem hlupu með honum, sjö og sjö í einu. Þá fékk hann einnig hjálp frá þjálf­urum sínum sem fylgdu honum á reið­hjóli og gáfu honum vatn og orkugel svo hann þyrfti ekki að teygja sig eftir því sjálfur eins og gera þarf í keppn­is­hlaupum.

Næsta stóra verk­efnið er Ólymp­íu­leik­arnir í París 2024 þar sem Kipchoge gæti náð þeim árangri að ná þriðja Ólymp­íugull­inu í röð, fyrstur mara­þon­hlaupara. Hvort hann reyni að hlaupa mara­þon á undir tveimur klukk­stundum þá, eða jafn­vel fyrr, til að mynda í Berlín að ári liðnu, sagði Kipchoge: „Ég ætla að fagna þessu meti og átta mig á hvað ger­ist næst. Bara halda áfram og sjá hvað ger­ist.“

Aðspurður hvort honum líði ennþá eins og hann sé ungur svar­aði hrað­skreið­asti mara­þon­hlaup­ari í heimi: „Það býr meira í fót­unum mínum og ég vona að fram­tíðin verði frá­bær. Hugurinn er skyn­samur og lík­am­inn er enn að drekka í sig allar æfing­arnar og keppn­is­hlaupin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Maraþon

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár