Segir leiðinlegt að ákvörðun sín sé túlkuð sem valdaránstilraun

Hildur Sverr­is­dóttir segir það leitt að ákvörðun hennar um að fresta þing­fundi um mið­nætti, hafi verið túlkuð sem valda­ránstil­raun.

Hildur Sverrisdóttir var fjarverandi á þingfundi í morgun.
Hildur Sverr­is­dóttir var fjar­ver­andi á þing­fundi í morgun. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Mér þykir inni­lega leið­in­legt að fund­ar­stjórn mín sem vara­for­seti í gær­kvöldi sé túlkuð sem til­raun til valda­ráns eða hvað það er sem ég heyri víða þennan morg­un­inn. Í stuttu màli var það að sjàlf­sögðu alls ekki ætlun mín,“ skrifar Hildur Sverr­is­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Facebook á tólta tím­anum. 

„Fyrir áhuga­sama um þetta fyr­ir­komu­lag þá eru langir þing­fundir almennt til mið­nættis. Vara­for­seti á ekki að gefa ræðu­manni orðið heldur slíta fundi þegar fullur ræðu­tími hans með andsvörum myndi ekki nást fyrir þann tíma. For­sætis­nefnd hefur ekki verið kölluð saman í vik­unni og for­seti hefur ekki haft sam­ráð við vara­for­seta um lengd þing­fund,“ skrifar hún sér til varnar.

Kristrún Frosta­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, ávarp­aði þingið í morgun og sagði þörf á að verja lýð­ræðið og ljóst af umræðum að slit Hildar á þing­fund­inum …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár