Samstarfsflokkarnir stoppuðu áherslumál Pírata

Píratar vildu tekju­tengja gjöld til að koma til móts við tekju­lága Reyk­vík­inga en náðu ekki fram því mark­miði sínu vegna and­stöðu sam­starfs­flokk­anna í meiri­hlut­anum. Stundin hefur und­an­farið spurt flokka borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans út í efndir á síð­ustu kosn­inga­lof­orðum þeirra.

Lýðræði og gagnsæi
Lýðræði og gagn­sæi Dóra Björt og Halldór Auðar segja að opnun bók­halds Reykja­vík­ur­borgar hafi verið mik­il­vægt aðhalds­tæki, bæði hvað varðar efna­hag og lýð­ræði. Mynd: Heiða Helgadóttir

Píratar lögðu fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2014 áherslu á að koma betur til móts við tekju­lágt fólk, meðal ann­ars með því að tekju­tengja ýmis gjöld sem leggj­ast á íbúa Reykja­vík­ur­borgar. Þannig var sér­stak­lega til­tekið að end­ur­skoða ætti gjald­töku í skólum og frí­stundum til að koma betur til móts við tekju­lágt fólk. Þessar áherslur náðu ekki fram að ganga vegna and­stöðu sam­starfs­flokk­anna í meiri­hluta borg­ar­stjórnar, að því er borg­ar­full­trúi Pírata segir.

Píratar settu einnig fram ítar­leg mark­mið um að ein­falda stjórn­kerfi borg­ar­innar, auka aðkomu borg­ar­anna að ákvarð­ana­töku og bæta aðgengi þeirra að borg­ar­kerf­inu. Sömu­leiðis vildu Píratar að bók­hald borg­ar­innar yrði opnað almenn­ingi. Segja má að í stórum dráttum hafi Pírötum tek­ist að ná fram þessum áherslu­at­riðum á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili.

Kosið verður til borg­ar­stjórnar á morgun. Píratar hafa setið í meiri­hluta síð­ustu fjögur ár ásamt Sam­fylk­ingu, Bjartri fram­tíð og Vinstri grænum. Halldór Auðar Svansson sæk­ist ekki eftir áfram­hald­andi setu í borg­ar­stjórn fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár