Samkomulag í augsýn - Auðmenn skattlagðir og VSK hækkaður

Efna­hags­ráð­herra Grikk­lands, Giorgos Stathakis, sagði í við­tali við BBC í dag að lán­ar­drottnar Grikk­lands hefðu sam­þykkt til­lögur þeirra að umbótum. Það þýði að nú stytt­ist í að hægt verði að ganga frá sam­komu­lagi um áfram­hald­andi neyð­ar­lán til Grikkja frá Seðla­banka Evrópu, fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum.

Nýr skattur á auðmenn


Nýr skattur verður lagður á fyr­ir­tæki og auð­ugt fólk og virð­is­auka­skattur verður hækk­aður á ýmsa hluti, sam­kvæmt nýju til­lög­unum. Stathakis sagði við Robert Peston á BBC að hann væri sann­færður um að til­lögur Grikkja hefðu bundið endi á þrá­teflið. Samkvæmt nýju til­lög­unum yrði ekki ráð­ist í frek­ari lækk­anir á líf­eyri eða launum í opin­bera geir­anum og virð­is­auka­skattur á raf­magn verður ekki hækk­aður.

Þá sagði Stathakis að stjórn­völd hefðu ákveðið í sam­ráði við AGS og stjórn­völd í evru­ríkj­unum að stefna á að afgangur af fjár­lögum verði eitt pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu á þessu ári, tvö pró­sent á næsta og þrjú pró­sent árið 2017.

Ekki samið um loforð Syriza


Þrátt fyrir að stjórn­ar­flokk­ur­inn í Grikk­landi, Syriza, hafi barist fyrir því að skuldir rík­is­ins verði lækk­aðar, verður ekki samið um það. Stathakis sagði þó í við­tal­inu að hann hefði trú á því að skulda­nið­ur­fell­ingar yrðu á dag­skránni á næstu mán­uðum.

Lítið hefur þok­ast í við­ræðum Grikkja við lán­ar­drottna sína und­an­farna fimm mán­uði, sem þýðir að Grikkir hafa ekki fengið síð­ustu greiðsl­una frá þeim upp á 7,2 millj­arða evra.

Grikkir sendu frá sér nýjar til­lögur að umbótum í nótt, og þeim var almennt vel tekið og þær sagðar vera í átt­ina að því sem lán­ar­drottnar vilja. Vegna þess hversu seint þær komu fram höfðu fjár­mála­ráð­herrar evru­ríkj­anna þó ekki getað kynnt sér þær vel fyrir fund sinn í Brussel í dag, og Jeroen Dijsselbloom, for­seti evru­hóps­ins svo­kall­aða, sagði til­lög­urnar umfangs­miklar en það ætti eftir að reikna út hversu mikil áhrif þær hefðu efna­hags­lega. Búist er við því að fjár­mál­ar­ráð­herrar evru­ríkj­anna hitt­ist aftur á fimmtu­dag til að ræða málin.

Meeting now with the Pres­ident of the European Council, Mr. Tusk. @eucopresident #Greece #EuroS­ummit #EUCO pic.twitter.com/f9TiinSsm9

— Alexis Tsipras (@tsipras_eu) June 22, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár