Sveitarfélögum mun fækka um fjórðung

Verði frum­varp Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra sam­þykkt verður lág­mark­s­í­búa­fjöldi sveit­ar­fé­laga lög­bundin við 1.000 manns ekki síðar en 2026.

Vill sameina sveitarfélög með valboði
Vill sam­eina sveit­ar­fé­lög með val­boði Verði frum­varp Sigurðar Inga að lögum verður ráð­herra skylt að hlut­ast til um að sam­eina sveit­ar­fé­lög þar sem íbúa­fjöldi er undir 1.000 íbúar við önnur nær­liggj­andi sveit­ar­fé­lög. Mynd: Framsókn

Fjöldi sveit­ar­fé­laga á Íslandi mun lækka veru­lega á næstu árum verði nýtt frum­varp Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra sam­þykkt á Alþingi. Samkvæmt frum­varp­inu verður lág­mark­s­í­búa­fjöldi hvers sveit­ar­fé­lags að vera eitt þús­und íbúar og skal ráð­herra hlut­ast til um að sam­eina þau sveit­ar­fé­lög þar sem íbúa­fjöldi er undir mörkum öðru eða öðrum sveit­ar­fé­lögum. Í dag er yfir helm­ingur sveit­ar­fé­laga á land­inu undir eitt þús­und íbúa mörk­unum, 35 tals­ins.

Frumvarp Sigurðar Inga er stjórn­ar­frum­varp og má því gera ráð fyrir að stuðn­ingur sé við frum­varpið, sem lagt var fram 30. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, innan þing­liðs rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Lengi hefur verið til umræðu að fara við­líka leiðir til að sam­eina sveit­ar­fé­lög á land­inu en fallið hefur verið frá því að sam­eina sveit­ar­fé­lög með vald­boði og hafa sam­ein­ingar því verið sjálf­sprottnar, þó stjórn­völd hafi hvatt til þeirra. Um miðja síð­ustu öld voru sveit­ar­fé­lög á Íslandi um 250 tals­ins en eru í dag 69.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár