Skipuleggjendur loftslagsverkfallanna hlutu viðurkenningu Amnesty

Fjögur sam­tök hlutu við­ur­kenn­ingu Íslands­deildar Amnesty International fyrir for­ystu hér­lendis í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum. Alls­herj­ar­verk­fallsvika fyrir lofts­lagið hefst núna á föstu­dag­inn.

Fjögur samtök hlutu viðurkenningu Íslandsdeidlar Amnesty.
Fjögur sam­tök hlutu við­ur­kenn­ingu Íslands­deidlar Amnesty. Mynd: Amnesty

Íslands­deild Amnesty International veitti fjórum sam­tökum, Lands­sam­tökum íslenskra stúd­enta, Stúd­enta­ráði Háskóla Íslands, Sambandi íslenskra fram­halds­skóla­nema og Ungum umhverf­issinnum, sem staðið hafa að skipu­lagn­ingu lofts­lags­verka­fall­anna á Íslandi við­ur­kenn­ingu fyrir störf í þágu lofts­lags­mála í gær. Greta Thunberg hlaut æðstu við­ur­kenn­ingu Amnesty International sam­tak­anna í gær og var val­inn sam­visku­sendi­herra sam­tak­anna í ár.

Greta valin samviskusendiherra Amnesty

[links]Hreyf­ingin skóla­verk­fall fyrir lofts­lagið, Fridays for Future, hófst með hinni 16 ára gömlu Gretu Thunberg frá Svíþjóð sem ákvað í ágúst 2018 að hætta að mæta í skól­ann á föstu­dögum og þess í stað að mót­mæla fyrir utan sænska þing­húsið þar til þingið gripi til aðgerða til þess að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í sam­ræmi við Par­ís­ar­sam­komu­lagið. Mótmælin hafa vakið gríð­ar­lega athygli og hefur Greta meðal ann­ars verið til­nefnd til frið­ar­verð­launa Nóbels.

Í gær, þann 16. Sept­em­ber, hlaut Greta æðstu við­ur­kenn­ingu Amnesty International þegar hún var valin sam­visku­sendi­herra sam­tak­anna árið 2019 fyrir bar­áttu sína gegn lofts­lags­breyt­ingum.

Heið­ursverð­launin voru fyrst veitt árið 2002 til að heiðra ein­stak­linga og hópa sem hafa stuðlað að mann­rétt­indum með því að fylgja sam­visku sinni. Á meðal fyrri heið­urs­hafa eru Nelson Mandela, Malala Yousafzai, Alicia Keys og Colin Kaepernick.

„Þessi verð­laun eru ekki mín heldur okkar allra. Það er magnað að verða vitni að þeirri við­ur­kenn­ingu sem við höfum fengið og finna að við erum að hafa áhrif á það sem við erum að berj­ast fyrir,.“ sagði Greta þegar hún tók á móti verð­laun­unum.[adspot]

Unga kynslóðin mun vekja pólitíkusana upp úr sameiginlegum doða

Frá því í febr­úar á þessu ári hafa íslenskir nem­endur einnig tekið þátt í skóla­verk­fall­inu. Krakkar á öllum skóla­stigum hafa safn­ast saman á Aust­ur­velli í hádeg­inu á föstu­dögum og kraf­ist þess að íslensk stjórn­völd bregð­ist við neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum.

Þau fjögur sam­tök sem hafa staðið að skipu­legg­ingu verk­fall­anna hlutu við­ur­kenn­ingu Íslands­deilar Amnesty International í gær fyrir for­ystu hér­lendis í bar­átt­unni gegn loft­lags­breyt­ingum. Það eru Lands­sam­tök íslenskra stúd­enta, Stúd­enta­ráð Háskóla Íslands, Samband íslenskra fram­halds­skóla­nema og Ungir umhverf­is­sinnar.

„Mér sýn­ist að það sé unga kyn­slóðin sem með for­ystu sinni og áræðni muni vekja póli­tíkusa upp úr sam­eig­in­legum doða. En já, það þarf bylt­ingu í hvaða ákvarð­anir eru teknar og hvaða lausnir eru fundnar. Og mér sýn­ist reyndar svo að bylt­ingin á skiln­ingi á hætt­unni sem fylgir lofts­lags­breyt­ingum sé hafin hjá ungu fólki víða um heim. Með allt þetta flotta unga fólk sem hefur leitt lofts­lags­verk­föllin hér á landi held ég að við þurfum ekki að ótt­ast hvaða ákvarð­anir verða teknar í fram­tíð­inni þegar það hefur tekið við völdum, en það þarf að taka réttar ákvarð­anir núna fyrir fram­tíð­ina,“ segir Anna Lúð­víks­dóttir, fram­kvæmd­ar­stjóri Íslands­deildar Amnesty International.

Kalla eftir að allir kynslóðir mæti og mótmæli

Á föstu­dag­inn næsta hefst alls­herj­ar­verk­fallsvika sem stendur til 27. sept­em­ber. Klukkan 17:00 á föstu­dag­inn verður stór ganga allra kyn­slóða frá Hall­gríms­kirkju á Aust­ur­völl þar sem fundur verður hald­inn og lögð verður fram áskorun til stjórn­valda og und­ir­skrift­ar­söfnun vegna hennar sett í loftið. Mótmælt verður síðan í hádeg­inu á hverjum degi þessa vik­una.

„Ung­menna­sam­tökin sem hafa skipu­lagt verk­föll fyrir lofts­lagið á Aust­ur­velli und­an­farið hálft ár skora nú á for­eldra, ömmur og afa, frændur og frænkur að fylkja liði með börnum sínum og mæta með þeim á Aust­ur­völl föstu­dag­inn 20.sept­em­ber.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Amnesty

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár