Fordæma hatur og rasisma gagnvart Lenyu Rún

„Allt frá kjöri sínu hefur hún þurft að sitja undir rætnum per­són­u­árásum, ras­isma og hat­urs­orð­ræðu vegna upp­runa síns,“ segir í yfir­lýs­ingu þing­flokks Pírata, sem sett er fram til stuðn­ings vara­þing­mann­inum Lenyu Rún Taha Karim.

Lenya Rún Taha Karim tók sæti á Alþingi fyrir Pírata í fyrsta sinn á milli jóla og nýárs.
Lenya Rún Taha Karim tók sæti á Alþingi fyrir Pírata í fyrsta sinn á milli jóla og nýárs. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Þing­flokkur Pírata seg­ist for­dæma „það hatur og þann ras­isma“ sem Lenya Rún Taha Karim, vara­þing­maður flokks­ins, hefur orðið fyrir síðan hún hóf feril sinn í stjórn­málum. Þing­flokk­ur­inn seg­ist for­dæma hverskyns hat­urs­orð­ræðu í sam­fé­lag­inu.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá þing­flokknum í dag, sem send er út til stuðn­ings Lenyu Rún. Þar segir að allt frá upp­hafi stjórn­mála­fer­ils Lenyu hafi hún „þurft að mæta óvægnum áróðri og ras­isma fyrir það eitt að taka þátt í stjórn­málum“.

Á und­an­förnum vikum hefur Lenya Rún sjálf birt dæmi um hat­urs­full skila­boð sem henni hafa borist á sam­fé­lags­miðlum eða hafa verið látin falla um hana í opin­berri umræðu á sam­fé­lags­miðlum í kjöl­far þess að hún var kjörin vara­þing­maður.

„Í lýð­ræð­is­ríki er mik­il­vægt að allir þjóð­fé­lags­hópar hafi rödd og að Alþingi end­ur­spegli sem best þver­skurð af sam­fé­lag­inu sem það þjónar. Hvers kyns ras­ismi, hat­urs­orð­ræða og mis­munun gagn­vart fólki með erlendan bak­grunn er til þess fall­inn að grafa undan lýð­ræð­inu og má ekki við­gang­ast átölu­laust,“ segir í yfir­lýs­ingu þing­flokks Pírata.

[adspot]

Fjölmiðlar hafi gert sér mat úr haturfullri umræðu án athugasemda við rasisma

Þar segir að Lenya Rún sé rétt­kjör­inn vara­þing­maður á Alþingi og mik­il­væg rödd ungs fólks og fólks með erlendan bak­grunn. „Allt frá kjöri sínu hefur hún þurft að sitja undir rætnum per­són­u­árásum, ras­isma og hat­urs­orð­ræðu vegna upp­runa síns. Sumir fjöl­miðlar hafa jafn­vel gengið svo langt að gera sér mat úr þeirri hat­urs­fullu orð­ræðu sem Lenya Rún hefur orðið fyrir án þess að gera nokkra athuga­semd við ras­is­mann sem í henni felst,“ segir í yfir­lýs­ingu þing­flokks­ins, en ekki er til­tekið til hvaða fjöl­miðlaum­fjöll­unar er vísað.

„Þing­flokkur Pírata hvetur stjórn­mála­hreyf­ingar á Íslandi til þess að for­dæma alla hat­urs­orð­ræðu og ras­isma í póli­tískri umræðu. Þá biðlar þing­flokk­ur­inn til fjöl­miðla að sýna ábyrgð í frétta­flutn­ingi um hat­urs­full ummæli með hlið­sjón af þeim skaða sem gagn­rýn­is­laus dreif­ing slíkra ummæla getur haft í för með sér. Loks lýsir þing­flokk­ur­inn yfir fullum stuðn­ingi við Lenyu Rún og harmar það mis­rétti sem hún hefur þurft að þola á sínum stutta en öfl­uga stjórn­mála­ferli,“ segir í yfir­lýs­ingu þing­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár