Engir Sjálfstæðismenn með á frumvarpi gegn stafrænu kynferðisofbeldi

Helgi Hrafn Gunn­laugs­son, fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins, segir að Sjálf­stæð­is­mönnum hafi verið boðið að vera með­flutn­ings­menn en hann geti ekki útskýrt hvers vegna eng­inn tók boð­inu.

Hefur ekki skýringu
Hefur ekki skýr­ingu Helgi Hrafn seg­ist ekki hafa á því skýr­ingu hvers vegna eng­inn þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins vildi vera með­flutn­ings­maður á frum­varpi gegn staf­rænu kyn­ferð­is­of­beldi. Mynd: Pressphotos.biz - (RosaBraga)

Frumvarp um breyt­ingu á almennum hegn­ing­ar­lögum er varðar staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi hefur verið lagt fram af 23 þing­mönnum allra flokka á Alþingi nema Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Fyrsti flutn­ings­maður þess er Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Björt Framtíð flutti svipað frum­varp í tvígang, en þá var talað um hefnd­arklám. 

Í frum­varp­inu er lagt til að dreif­ing af ásetn­ingi á mynd- eða hljóð­efni sem sýnir nekt eða kyn­ferð­is­lega hegðun ein­stak­lings án hans, hennar eða háns sam­þykkis verði refsi­vert með sektum eða allt að sex ára fang­elsi. Einnig er ákvæði um að dreif­ing fals­aðs efnis sem sýnir kyn­ferð­is­lega hegðun ein­stak­lings verði refsi­verð.

Athygli vakti að eng­inn þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks er með­flutn­ings­maður frum­varps­ins. Gísli Marteinn Bald­urs­son deildi frétt RÚV um frum­varpið á Twitter aðgangi sínum og spurði þar Helga Hrafn hvort Sjálf­stæð­is­mönnum hafi yfir höfuð verið boðið með.

„Já, ég bauð öllum þing­mönnum. Get ekki svarað því af ábyrgð hví eng­inn þeirra vildi vera með,“ svarar Helgi. „Seinast þegar ég lagði þetta fram byggði gagn­rýni xD á þeim mis­skiln­ingi að þetta væri sama frum­varp og BF lagði fram á sínum tíma. Kannski sáu þau ekki að við höfum brugð­ist vel og mikið við umsögnum og telja því eldri gagn­rýni enn gilda. Bara ágiskun, samt.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár