Kröfuganga gegn kapítalisma

Mótmælin Nuit Debout, Úti alla nóttina, hófust formlega 31. mars og hafa staðið yfir í heilan mánuð. Boðað er til þeirra á samfélagsmiðlum.
Mótmælin Nuit Debout, Úti alla nótt­ina, hófust form­lega 31. mars og hafa staðið yfir í heilan mánuð. Boðað er til þeirra á sam­fé­lags­miðlum. Mynd: EPA

„Þetta er algjör­lega komið úr bönd­unum, ég for­dæmi þetta öfga­fólk sem getur ekki mót­mælt frið­sam­lega“ – segir Bernard Cazeneuve, inn­an­rík­is­ráð­herra Frakk­lands um Nuit Debout mót­mælin í Frakk­landi. 

Nuit Debout (Úti alla nótt­ina) hófust form­lega 31. mars síð­ast­lið­inn og hafa því staðið yfir í heilan mánuð. Rík­is­stjórn sós­í­alista, undir for­ystu François Hollande, þykir ekki standa undir nafni og vera of hægri sinnuð. Það hefur komið til alvar­legra átaka, lög­reglan hefur beitt táragasi, alls 214 hand­tökur, 78 lög­reglu­menn hafa særst, þar af þrír alvar­lega, sömu­leiðis fjöl­margir mót­mæl­endur. Það hefur verið kveikt í lög­reglu­bílum, Odeon-leik­húsið í mið­borg Parísar var yfir­tekið síð­ustu helgi af mót­mæl­endum sem hugð­ust nota húsið fyrir funda­höld. Þegar mest hefur látið hefur fjöldi mót­mæl­enda farið yfir 500.000 manns.

Hvað er að ger­ast og hverju er verið að mót­mæla? Það er kannski ekki alveg ljóst. Í fyrstu sner­ust mót­mælin um fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar stjórn­valda á vinnu­lög­gjöf­inni, en nú snú­ast þau um allt kerfið, stjórn­málin, efna­hags­lífið. Ungt og rót­tækt fólk, sem leitt hefur mót­mælin, vill alls­herjar þjóð­fé­lags­breyt­ingar. Sumir tala um bylt­ingu. Búast má við kröft­ugum mót­mælum í dag á bar­áttu­degi verka­lýðs­ins.

Ákall um allsherjar breytingar

Lög­reglan í París hand­tók í síð­ustu viku fjöl­marga mót­mæl­endur á Lýð­veldis­torg­inu, Place de la Republique, og beitti táragasi þegar hóp­ur­inn reyndi að kom­ast í gegnum lög­reglu­tálma við torgið. Mót­mæl­endur hafa komið saman við torgið á hverri nóttu und­an­farin mánuð. Hreyf­ing­unni Nuit Debout hefur verið líkt við Occupy Wall Street-mót­mæl­inn í Banda­ríkj­unum og Indigna­dos-hreyf­ing­una gegn nið­ur­skurði á Spáni.

Það hefur lengi verið talað um nauð­syn þess að breyta vinnu­lög­gjöf­inni í Frakk­landi til þess að sporna gegn atvinnu­leysi og koma ungu fólki inn á vinnu­mark­að­inn. Lögin hafa þótt of ströng og atvinnu­rek­endur segja það nán­ast óbæri­legt fyrir lítil fyr­ir­tæki að ráða fólk til starfa. Það sé erfitt að segja upp fólki, rétt­indi laun­þega séu of víð­tæk og völd verka­lýðs­fé­laga alltof mikil í Frakk­landi. 35 stunda vinnu­vikan gangi ekki upp og sé öllum óhag­stæð.

Þess vegna kom við­skipta­ráð­herr­ann, Emmanuel Macron, fram með nýtt laga­frum­varp um breytta vinnu­lög­gjöf á síð­asta ári. Löngu tíma­bært – sögðu helstu sér­fræð­ingar lands­ins í efna­hags­málum. Fáir áttu von á þess­ari öldu mót­mæla. Skipu­leggj­endur þeirra eru að mestu leyti ungt fólk, stúd­entar og rót­tæk­lingar með tengsl við verka­lýðs­fé­lög, sem kenna sig við sós­í­al­isma og marx­isma. Þau segja nýju vinnu­lög­gjöf­ina tæta niður sjálf­sögð rétt­indi laun­þega, en þau mót­mæla líka TIP frí­versl­un­ar­samn­ing­unum, spill­ingu og skattaund­anskotum í við­skipta­líf­inu (hávær umræða í kjöl­far Panama-lek­ans), þau mót­mæla mis­skipt­ingu auðs, aðbún­aði og rétt­indum flótta­fólks. Þetta er í raun ein alls­herjar kröfu­ganga gegn kap­ít­al­isma.

Merci patron!

Þann 24. febr­úar síð­ast­lið­inn var frum­sýnd heim­ild­ar­myndin Merci patron! sem er sögð kveikjan að öllu þessu báli. Myndin er afar gagn­rýnin á efna­hags­kerfi Frakk­lands og Evrópu; hvernig verk­smiðjur hafa verið lagðar niður og störf flutt til ann­ara landa í hag­ræð­ing­ar­skyni. Myndin tekur sér­stak­lega fyrir Bernard Arnault, rík­asta mann Frakk­lands, sem hefur m.a. auðg­ast á lúxus- og merkja­vörum. Merci Patron! fylgir eftir hjón­unum Jocelyn og Serge Klur sem eru atvinnu­laus, berj­ast í bökkum og eru við það að missa íbúð­ina sína eftir að hafa verið sagt upp hjá tísku­fata-fram­leið­and­anum Kenzo, sem er í eigu Arnault. Bernard Arnault ákveður að flytja alla fram­leiðsl­una til Póllands til þess að draga úr launa­kostn­aði með fyrr­greindum afleið­ingum. Myndin er í stíl við verk Michael Moore, per­sónu­leg en um leið afar gagn­rýnin. 

Merci Patron! er vin­sælasta heim­ild­ar­kvik­mynd sem sýnd hefur verið í Frakk­landi, slegið öll aðsókn­ar­met, um 320.000 manns hafa nú séð kvik­mynd­ina, en fyrst og fremst hefur hún haft gríð­ar­leg áhrif. Vakið reiði og mikil við­brögð. Það er fyrst og fremst þessi kvik­mynd sem hefur komið af stað Nuit Debout mót­mæl­unum. Leik­stjór­inn, Francois Ruffin, vinstri rót­tæk­lingur og aktí­visti, segir Bernard Aurault og aðra auð­men vera eyði­leggja líf fólks og sömu­leiðis helstu gildi franska lýð­veld­is­ins um frelsi, jafn­rétti og bræðra­lag. Auð­söfnun og aukin mis­skipt­ing sé að rústa sam­fé­lag­inu og kröfu um mannúð.

Bernard Arnaualt, sem fær það óþvegið í mynd­inni hefur tjáð sig um þessa mynd­ina opin­ber­lega. Honum finnst hún ósann­gjörn árás á hann og hans fyr­ir­tæki – kallar for­svars­menn mynd­ar­innar vinstri-öfga­fólk sem ekki sé mark á tak­andi.

Mótmælin skipulögð á Twitter og Facebook

Öll þessu hörðu við­brögð, gegn þessu frum­varpi um nýja vinnu­lög­gjöf, hafa komið stjórn­völdum á óvart. Hollande, for­seti Frakk­lands, sagð­ist í fyrstu til­búin að setj­ast niður með þessu fólki, ræða málin og hlusta á sjón­ar­mið þeirra. Þetta eru hans kjós­endur, vinstri sinnað fólk sem hann þarf að treysta á í kom­andi kosn­ingum á næsta ári. Hann berst við miklar óvin­sældir og hefur marg­vegis sagt að ef honum tak­ist ekki að draga úr atvinnu­leysi muni hann ekki bjóða sig fram aftur sem for­seti. Hin nýja vinnu­lög­gjöf átti að vera svarið gegn atvinnu­leys­inu – þess vegna hefur for­set­inn í raun staðið ráð­þrota gagn­vart öllum þessum mót­mælum.

Allur þessi fjöldi um allt land hefur söm­leiðis komið yfir­völdum í opna skjöldu. Í öllum helstu borgum: París, Nantes, Lyon, Marseille og Toulouse, hafa verið Nuit Debout kröfu­göngur. Mótmælin eru skipu­lög á Facebook og Twitter; á slóðum eins og @OnVautMieuxQueCa fara fram umræður um breytt sam­fé­lag og rót­tækar breyt­ingar á efna­hags­líf­inu, mis­skipt­ingu auðs og spill­ingu í við­skipta­líf­inu.

Þetta er margradda og margs­konar mót­mæli en flestir sem þar kom að eiga það sam­eig­in­legt að hafa horn í síðu kap­ít­al­ism­ans; þau vilja efla rík­is­valdið, auka rétt­indi launa­fólks, atvinnu­lausra og inn­flytj­enda.

For­svars­menn rík­is­stjórn­ar­innar hafa sömu­leiðis verið dug­legir að nýta sér sam­fé­lags­miðl­ana. Manuel Valls, for­sæt­is­ráð­herra, hefur oft tístað um Nuit Debout og kallað suma mót­mæl­endur öfga-vinstri­fólk, harmað slysin og átökin við lög­regl­una. Hann hefur gagn­rýnt þá litlu hópa og þá svörtu sauði sem hafa hleypt öllu upp í bál og brand; sagt það hættu­legt fólk sem beri að stöðva. „Þetta fólk mun þurfa gjalda fyrir gjörðir sínar – styðjum frekar lög­regl­una“ – segir hann á Twitter-síðu sinni.

Námsmenn og ungt fólk hafa leitt mót­mælin allt frá byrjun. Þau eru orðin lang­þreytt á atvinnu­leysi sem er komið upp í 25% hjá ungu fólki. William Martinet, for­maður stúd­enta­sam­tak­ana UNEF, tekur að ein­hverju leyti undir gagn­rýni Valls og harmar ofbeldið og leið­indin – en segir enn fremur að aðgerðir lög­regl­unnar oft hafa farið úr bönd­unum. Hann og aðrir skip­leggj­endur segja Nuit Debout aðeins vera byrj­un­ina – framundan séu alls­herjar breyt­ingar á efna­hahags­lífi heims - bylt­ingin sé hafin!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár