Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Heidelberg

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Frídagur í gær og við eyddum honum í Berlín. Eftir bug­un­ina dag­inn áður og stuttan svefn vökn­uðum við snemma og héldum niður í bæ með lest­inni. Þegar mið­svæðis kom skildum við við Þráinn sem hélt upp í reisu til Heidel­berg á undan okkur en hér á hann alls­konar fólk sem hann heim­sótti sem svo aftur kom á tón­leik­ana í kvöld. Hann skil­aði sér svo bara hreinn, strok­inn, sof­inn og vel ilm­andi með hreint lín í tösku í sánd­tékk í dag. Lúxus.

Við byrj­uðum þetta á því að fá okkur árbít á ein­hverjum gervi-Starbucks. Það var svona líka ljóm­andi og hollt. Svo bara röltum við um í skíta­kulda og skoð­uðum þetta helsta í Berlín. Ég kemst betur og betur að því að ég veit ekki rass­gat um sögu ver­ald­ar­innar. Hér er allt fullt af stórum hliðum og veggjum sem ég veit ekk­ert um. Mér er hætt að vera alveg sama. Ég hafði engan áhuga á svona dóti fyrir nokkrum árum en það er að breyt­ast. Ég þarf að lesa sögu heims­ins. Kannski er það verk­efnið fyrir næsta túr. Þetta var frekar stefnu­laust hjá okkur og eng­inn asi á neinu. Seinni­part­inn end­uðum við svo á ein­hverjum Mexík­ó­veit­inga­stað sem var alveg sér­lega ljóm­andi ljóm­andi. Síðasta verk­efni fyrir brott­för var svo að finna hljóð­færa­búð og kaupa hljóm­borðs­sta­tíf. Það gekk sem betur fer, en mátti engu muna. Statífið sem okkur vant­aði var ekki til en góði mað­ur­inn í búð­inni lét sig ekki muna um að púsla þessu saman úr alls­konar hlutum og við end­uðum með nákvæm­lega það sem þurfti. Einu vanda­mál­inu færra og Halli getur þá tekið rétta stöðu á ný. Við tókum svo bara lest­ar­kerfið í rút­una og lögðum af stað. Mikið var nú gott að drulla sér örlítið í menn­ing­una og slæp­ast, fá loft í lungun og aðeins horfa upp úr klof­inu á sér. Mjög mik­il­vægt.

Ég blogg­aði þarna í gær og þá var klukkan sirka hálf8. Böbbi stakk upp á einum bjór sem ég tók vel í. Þá voru hinir svona að kíkja í og úr kojum, flestir tóku smá kríu þar sem við höfðum jú sofið frekar lítið og farið snemma af stað. Þegar ég var kom­inn niður í hálfan bjór hugs­aði ég með mér að ég ætti nú senni­lega bara að fara í koj­una og láta hrein­lega ráð­ast hvað gerð­ist næst. Þá stopp­aði Robert í sjoppu. Tólf tímum síðar fór ég að sofa.

Á þessum tólf tímum tókst mér að drekka alveg voða­legt magn af alls­konar sem var bæði gott og gaman. Í fyrsta skipti á túrnum tókum við fram spila­stokk og spil­uðum Kana í erg og gríð. Ég var léleg­astur af okkur fjórum, en með mér spil­uðu Halli, Böbbi og Flex. Það fór minna í taug­arnar á mér en ætla mætti. Ég er góður í Kana. En í gær var ég of ákafur. Ég sagði of oft og of mikið. Ég fer fram á rímadds í kvöld. Gaman að spila Kana.

Ég man nú ekki alveg í hvaða röð menn fóru til svefns en við komum á leið­ar­enda kannski svona fimm. Held ég. Og þá var Robert alveg til í bjór. Og svo drukkum við viskí. Og spjöll­uðum tveir um öll heims­ins mál til sirka hálf8. Þá fór ég að sofa. Og svaf til fimm, vakn­aði merki­lega óþunnur og drull­aði mér inn á tón­leika­stað­inn hér í Heidel­berg.

Upp­haf­lega áttu tón­leik­arnir að vera í Darm­stadt sem hlýtur þá að vera hér skammt frá, en sökum góðrar miða­sölu voru þeir fluttir hingað. Þetta er nú eig­in­lega ekki tón­leika­staður. Hér er allt í hálf­fok­heldum skemmum, gas­hitarar og hrá­leik­inn alls­ráð­andi. En hér er nú allt til alls svo sem pláss og alveg sér­lega geðs­legur matur. Laxa-lasagne er eitt­hvað sem maður hefði kannski ekki veðjað á að væri gott en var svona djöf­ull mikið ágætt. Ég hef kosið að kalla þennan rétt laxagne. Eitthvað sem and­meist­ara­kokk­ur­inn ég bið aðra um að elda fyrir mig þegar ég kem heim. Sánd­tékkið var alveg stór­kost­lega venju­legt, sviðið með­al­stórt og tækja­kostur í ljóma. Einhver hljóð­draugur elti okkur þó á svið­inu og allt varð voða­lega þungt og grautað. Eitthvað sem við erum samt vanir að tækla.

Svo gerðum við okkur klára og gerðum það sem maður gerir. Ég er fyrir löngu búinn að missa sjónar af Manager-mönnum. Ég man að Böbbi er að brill­era með Dortmund, Halli var rek­inn held ég þrisvar á fyrsta tíma­bili sínu, Þrási dólar þetta af öryggi með Manchester United, Flex er svo hel­sjúkur að hann er með tvo leiki í gangi í einu, annan í spjald­inu og hinn í sím­anum og Jón gerir held ég bara eitt­hvað. Partýin eru oft frekar súr en þetta styttir stundir. Ég er svo oft­ast bara að keyra tví­víðan bíl frá vinstri til hægri og Baldur fann sér ein­hvern fugla­leik. En já, í gall­ann og á svið.

[caption id="attachment_13410" align="alignnone" width="4193"] „Þjóð­verjar. Óttalega eru þeir þýskir,“ skrifar Bibbi.[/caption]

Þjóð­verjar. Óttalega eru þeir þýskir. Salurinn var ljóm­andi stór og allt eins og best verður á kosið. Mjög margir mættir að sjá og heyra og útlit fyrir frá­bært gigg. En svo bara stóðu þau. Alveg graf. Þeim fannst alveg gaman og brostu og klöpp­uðu og svo­leiðis en þetta var svoldið eins og kamm­er­tón­leika­stemn­ing. Ég náði nú alveg að klúðra einu all­harka­lega. Til að stilla bass­ann er ég með þar til gert tæki, í dag­legu tali nefnt tjúner, sem ég kveiki á með fæt­inum, slæ á streng­ina og þá fæ ég upp­lýs­ingar um hvort allt sé í lagi eða hverju ég þurfi að breyta, hífa eða slaka. Tækið rýfur í leið­inni hljóð­merkið svo áhorf­endur þurfi ekki að hlusta á þessa leið­in­legu aðgerð. Þegar maður gleymir að kveikja aftur fyrir lag hefur maður klunnað. Þegar maður er staddur á sviði þar sem maður heyrir ekki neitt í neinu og fattar ekki neitt fyrr en eftir heilt lag hefur maður klunnað miklu meira. Með fuglum en án bassa. Þetta var bara eitt af þessum giggum, Flexi eitt­hvað örlítið ósáttur við sína frammi­stöðu og allt hálf­þungt. En þetta slapp allt fyrir horn þótt erfitt sé að öskra á fólk sem öskrar ekki til baka.

Núna er klukkan 23.23, ég er í rútu og horfi kringum mig á allan þann djöf­ul­dóm af tusku­dýrum sem Baldur er búinn að safna að sér smám saman og gefa Robert. Þetta verða bráðum tíu kvik­indi. Flestir eru bara fyndnir og krútt­legir en risa­bangs­inn sem situr hér í örygg­is­belti gerir ekk­ert annað en taka pláss. Voðalegt er þetta.

Ég er búinn að vera að þessu bloggi í örugg­lega einn og hálfan tíma, með hléum þó því hér náum við smá inter­neti. Smá búinn að spjalla heim og bara slæp­ast. Ég er þreyttur, ég ætla ekki að ljúga öðru. Ég ætla bara að láta það ráð­ast hvað gerst næst. Á morgun spilum við í Lúx­em­búrg og þangað hef ég aldrei komið. Akst­ur­inn ku víst stuttur og við leggjum í hann senni­lega um fimm, jafn­vel síðar.

Meist­ara­legt dags­ins: Laxagne.

Sköll dags­ins: Án bassa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár