Vefsíðan Dagsljós á að varpa frekara ljósi á Al Thani málið

Áhuga­menn um rétt­læti í Al Thani mál­inu hafa opnað síðu sem nefn­ist Dagsljós. Sak­born­ing­arnir eru á bak við síð­una en Freyr Ein­ars­son er verk­efn­is­stjóri. „Við ætlum að setja inn öll gögn máls­ins til að þau komi fram í dags­ljósið,“ segir Freyr.

Dagsljós er titlað sem verkefni áhugamanna um réttlæti í Al Thani málinu. Kaupþingsmenn standa að baki verkefninu.
Dagsljós er titlað sem verk­efni áhuga­manna um rétt­læti í Al Thani mál­inu. Kaup­þings­menn standa að baki verk­efn­inu. Mynd: RÚV/Skjáskot.

Fjór­menn­ing­arnir sem sitja inni fyrir Al Thani málið hafa sett af stað verk­efni „áhuga­manna um rétt­læti í svo köll­uðu Al Thani máli sem nú er til rann­sóknar hjá Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu.“ Verk­efnið ber heitið Dagsljós og hefur Facebook síða verið stofnuð. Vefsíðan opnar með haustinu.

Hugsað sem gagnaveita

Freyr Ein­ars­son, fyrr­ver­andi yfir­maður sjón­varps, frétta og íþrótta hjá 365, sér utan um verk­efnið fyrir fjór­menn­ing­ana, þá Ólaf Ólafsson, Sigurð Ein­ars­son, Hreiðar Má Sig­urðs­son og Magnús Guð­munds­son.

„Þetta verður hugsað sem gagna­veita. Við erum að byggja upp ákveð­inn gagna­grunn með þeim mikla fjölda gagna sem til­heyra í mál­inu og von­ast til þess í leið­inni að ný gögn líti dags­ins ljós,“ segir Freyr í sam­tali við Kjarnann. „Það er ljóst að sak­born­ingar fengu aldrei aðgengi að öllum gögnum máls­ins, eins og spurt er í spurn­inga­lista frá Mann­rétt­inda­dóm­stólnum. Við ætlum að setja inn öll gögn máls­ins til að þau komi fram í dags­ljósið.“ Þaðan komi heiti síð­unnar, Dagsljós.

Facebook-síðan mun bara birta fréttir tengdar mál­inu

„Frétta­flutn­ingur af mál­inu hefur alla tíð verið rangur,“ segir Freyr. „Það er algengur mis­skiln­inugr að ein­hver hafi tapað, það tap­aði eng­inn á þessu. Bankinn græddi. Það tap­aði eng­inn nema sjeik­inn, Al Thani.“

[adspot]

Vann að samantekt um málið í janúar

Að sögn Freys opnar síðan með haustinu. Í jan­úar greindi Kjarninn frá því að Freyr væri að vinna að sam­an­tekt um Al Thani málið fyrir Almenna bóka­fé­lagið. Þá var ekki ljóst hvort úr verði bók eða skýrsla, en Freyr þvertók fyrir það þá að vera að vinna fyrir Kaup­þings­menn og und­ir­strik­aði að sam­an­tektin væri fyrir Almenna bóka­fé­lagið.

Lénið www.dagsljos.is var skráð þann 24. febr­úar síð­ast­lið­inn og á nafni Freys.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár