Fyrrverandi fréttastjóri vinnur að samantekt um Al-Thani málið

Freyr Ein­ars­son, fyrr­ver­andi frétta­stjóri hjá 365, vinnur nú að gerð sam­an­tektar fyrir Almenna bóka­fé­lagið um Al-Thani málið. Ekki er ljóst hvort úr verði bók eða skýrsla.

Sigurður Einarsson og Ólafur Ólafsson fyrir dómi í Al-Thani málinu.
Sigurður Ein­ars­son og Ólafur Ólafsson fyrir dómi í Al-Thani mál­inu. Mynd: RÚV/Skjáskot.

Freyr Ein­ars­son, fyrr­ver­andi yfir­maður sjón­varps, frétta og íþrótta hjá 365, vinnur nú að því að taka saman gögn tengd Al Thani-mál­inu fyrir Almenna bóka­fé­lagið. Að sögn Freys er ekki búið að ákveða hvort úr verði bók eða skýrsla.

„Ég hef verið að safna saman upp­lýs­ingum tengdu þessu máli og það liggur ekk­ert fyrir ennþá hvað verður úr því,” segir Freyr. „Ég hef bara verið að taka saman gögn og reyndar taka við­töl við menn sem tengj­ast mál­inu. Þetta er á algjöru frum­stigi og er algjör­lega ómótað. Kannski verður þetta ljós­rituð skýrsla í fáeinum ein­tökum eða bók.”

Aðspurður hvort hann sé að vinna að mál­inu fyrir þá Kaup­þings­menn sem nú sitja í fang­elsi á Kvía­bryggju eftir Al-Thani málið, þver­tekur Freyr fyrir það. Hann sé að vinna fyrir Almenna bóka­fé­lagið.

Hann er búinn að taka við­tal við Ragnar H. Hall, sem var lög­maður Ólafs Ólafs­sonar, eins stærsta eig­anda Kaup­þings, en sagði sig frá mál­inu þar sem hann taldi að réttur Ólafs til rétt­látrar máls­með­ferðar og jafn­ræðis við ákæru­valdið við með­ferð máls­ins fyrir dómi hafi ítrekað verið þver­brot­inn. Það sama gerði Gestur Jónsson, verj­andi Sigurðar Ein­ars­sonar, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns Kaup­þings.

Freyr er búinn að vera að skanna dóms­skjölin í mál­inu, sem eru um 10.000 tals­ins. „Þau eru ótrú­lega áhuga­verð og skemmti­leg. Það er auð­velt að gleyma sér í þessu,” segir hann.

For­stöðu­maður útgáfu Almenna bóka­fé­lags­ins er Jónas Sig­ur­geirs­son, fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi Kaup­þings. Jónas skrif­aði grein í Frétta­blaðið fyrr í mán­uð­inum þar sem hann gagn­rýndi dóms­kerfið fyrir dóma yfir for­stöðu­mönnum föllnu bank­anna og spyr hvort um væri að ræða skipu­lagða aðför. „Engum ætti að koma á óvart að þessi hópur muni ekki sætta sig við þessa fang­els­is­dóma og með­ferð­ina sem hann hefur fengið innan rétt­ar­kerf­is­ins. Í raun hljóta þeir einnig, sem hópur, að kom­ast að þeirri einu rök­réttu nið­ur­stöðu að þeir séu fórn­ar­lömb skipu­legrar aðfarar.”

Aðrir eig­endur útgáf­unnar eru Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son pró­fessor, Baldur Guð­laugs­son, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, Kjartan Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Þórdís Edwald, en eig­in­maður hennar, Ármann Þor­valds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í London, tók þátt í stofnun útgáf­unnar í byrjun árs 2012.

Meðal bóka sem Almenna bóka­fé­lagið hefur gefið út eru „Í krafti sann­fær­ingar - saga lög­manns” eftir Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ara, „Andersen skjölin: Rann­sóknir eða ofsóknir?” eftir Eggert Skúlason, rit­stjóra DV, „Icesave samn­ing­arnir - afleikur ald­ar­innar?” eftir Sigurð Má Jónsson, upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar, og „Bús­á­halda­bylt­ingin: Sjálf­sprottin eða skipu­lögð?” eftir Stefán Gunnar Sveins­son, blaða­mann á Morg­un­blað­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár