Hörmungar útaf heitum sjó

Á mið­baugs­belt­inu í Kyrra­haf­inu er sjór­inn þremur gráðum heit­ari en í með­al­ári. En hvað þýðir það fyrir líf á jörð­inni? Herdís Sig­ur­gríms­dóttir kaf­aði undir yfir­borðið og skoð­aði ógn­væn­legar sviðs­myndir nátt­úru­ham­fara.

Á mið­baugs­belt­inu í Kyrra­haf­inu er sjór­inn þremur gráðum heit­ari en í með­al­ári. Það þýðir að millj­ónir manna munu þjást vegna hung­ursneyðar og nátt­úru­ham­fara og margir neyð­ast til að flýja heim­ili sín. Áhrif­anna gætir allt frá Perú til Papúa Nýju Gíneu; og jafn­vel í Afríku, sem þó er þús­undum kíló­metra frá Kyrra­haf­inu. Allt út af veðra­kerf­inu El Niño.

Núver­andi hita­stig þýðir að styrkur og eyði­legg­ing­ar­máttur veðra­kerf­is­ins gæti orðið sá mesti í 65 ár, síðan 1950. Þessum Niño er líkt við skrímslið Godzilla, sem veldur tor­tím­ingu hvar sem það kemur.

Mæli­kvarð­inn á styrk El Niño fyr­ir­bær­is­ins er þriggja mán­aða með­al­tal yfir­borðs­hita á stóru svæði í Kyrra­haf­inu, þannig að end­an­legar tölur um styrk þessa Niños munu ekki liggja fyrir fyrr en á nýju ári.

Þó dylst engum að þrjár gráður yfir með­al­hita á mæl­i­svæð­inu Niño 3.4 er með því hæsta sem nokkurn tíma hefur mælst. Hámark­inu er ekki náð enn. Hitinn mun að öllum lík­indum hækka enn meira næstu vik­urnar. Neðar í pistl­inum reynum við að útskýra hvers vegna þetta ger­ist.

Því rauð­ari litur, þeim mun stærra frá­vik frá með­al­hita­stigi. Rauða beltið fylgir mið­baugi. Myndin er fengin að láni hjá climate.gov.

Hungursneyð og fólksflótti

Áhrifin af El Niño eru mis­mun­andi á milli staða. Sums staðar verður hlýrra og blaut­ara. Sums staðar hlýrra og þurr­ara. Sums staðar verður jafn­vel kald­ara í veðri. El Niño nær jafnan hámarki á tíma­bil­inu októ­ber-jan­úar en áhrif­anna gætir bæði fyrir og eftir þann tíma.

Áhrif El Nino á veð­ur­far eru mis­mun­andi milli staða. Þessi skýr­ing­ar­mynd á við vetr­ar­mán­uð­ina des­em­ber-febr­úar meðan áhrifa El Nino gætir sem sterkast. Myndin er fengin að láni frá banda­rísku veð­ur­stof­unni NOAA.

Í Ástralíu er nú þegar hita­bylgja og miklir þurrkar. Hætta á kjarr­eldum er að nálg­ast efsta hættu­stig í suð­aust­an­verðu land­inu, þar sem allar stærstu borgir lands­ins eru. Þó er sum­arið rétt að byrja þeim megin á hnett­inum.

Á Kyrra­hafs­eyj­unum eru miklir þurrkar og upp­skeru­brestur. Áætlað er að 4,7 millj­ónir manna muni finna fyrir áhrifum El Niño á því svæði. Þar af þarf á að giska ein milljón fólks á hásléttum Papúa Nýju Gíneu á neyð­ar­að­stoð að halda.

Á Kyrra­hafs­strönd Suður-Ameríku má búast við miklum rign­ingum og flóðum. Í Perú og Ekvador má búast við gíf­ur­legri eyði­legg­ingu, upp­skeru­bresti, mann­falli og tjóni á innviðum. Forseti Ekvador hefur lýst yfir neyð­ar­á­standi næstu tvo mán­uð­ina vegna þess sem koma má.

Í Afríku magnar El Niño upp ein­kenni hverrar árs­tíðar, sér­stak­lega yfir mið­bik Afríku, sunnan Sahara. Þurrka­tíma­bil verða heit­ari og regn­tím­inn úrkomu­meiri. Í ofaná­lag koma póli­tískir þættir, ofbeldi og spill­ing. Í Eþíópíu líða 8 millj­ónir manna hungur eftir langvar­andi þurrka og nauðin verður meiri vegna El Niño. Hins vegar er erfitt að greina þar hversu mikið vægi veðra­kerf­is­ins er, á móti öðrum þáttum. Í ofaná­lag má stór hluti Austur-Afríku, m.a. Eþíópía, Sómalía, Kenía og Tansanía, eiga von á flóðum og skriðum sem eru bein­tengd El Niño, þegar regn­tíma­bilið byrjar eftir ára­mót.

Ofureinföld útskýring á El Niño

Auðvitað er ein­földun að segja að hörm­ung­arnar eigi sér stað út af heitum sjó, eins og gert er í fyr­ir­sögn þessa pistils. Heitur yfir­borðs­sjór er eitt af meg­in­ein­kennum El Niño veðra­kerf­is­ins, en aðeins ein af mörgum sam­þættum orsökum. Frétta­mið­ill­inn Vox gerir ágæta til­raun til að útskýra flókið sam­spilið með góðum skýr­ing­ar­myndum. Hér að neðan er stytt og ein­földuð útgáfa.

Á Kyrra­haf­inu er aust­an­áttin ríkj­andi vind­átt í námunda við mið­baug­inn, og blæs að jafn­aði heitum yfir­borðs­sjó frá austri til vest­urs, í átt að Ástralíu og Indónesíu. Þannig mynd­ast hringrás haf­strauma. Kaldur og nær­ing­ar­ríkur sjór leitar upp á yfir­borðið við Suður-Ameríku, yfir­borðs­straum­arnir fylgja vind­inum í vest­ur­átt að Indónesíu og Ástralíu, og þaðan leitar heitur sjór­inn niður á við og svo til baka í aust­urátt, yfir hafið og aftur upp á yfir­borðið við Suður-Ameríku. Í með­al­ári er yfir­borð sjávar um 8 gráðum heit­ara og hálfum metra hærra við Indónesíu en við Suður-Ameríku.

En stundum slaknar á aust­an­átt­inni og snýst jafn­vel í vestan. Þá ýtir þyngd­ar­aflið heita yfir­borðs­vatn­inu aftur í átt að Suður-Ameríku. Þetta er kallað El Niño, svein­barnið. Af því þetta nær oft hámarki um jóla­leytið fóru kaþ­ólikkar í Suður-Ameríku að nefna veðra­kerfið eftir jesú­barn­inu.

Af því Kyrra­hafið er svo risa­stórt hefur það gríð­ar­leg áhrif á jafn­vægið milli veðra­kerfa heims­ins. Sér­stak­lega á þetta við um heita sjó­inn við Indónesíu og úrkomu­hringrás­ina sem hann nærir. Þegar þetta jafn­vægi riðl­ast, hefur það meðal ann­ars áhrif á hrað­skreiða loft­strauma í háloft­unum (e. jet str­eams), og víð­feðma haf­strauma í Kyrra­hafi, sem aftur tengj­ast öðrum höfum eins og Ind­lands­hafi.

Í ár fer El Niño einnig saman við annað laustengt og sam­bæri­legt veðra­kerfi sem oft hefur verið kallað Niño Ind­lands­hafs­ins, eða Indian Ocean Dipole á ensku. Þetta eru sér­stak­lega vondar fréttir fyrir Ástralíu og Indónesíu. Þegar þetta tvennt fer saman verða þurrk­arnir og hita­bylgj­urnar enn heift­ar­legri. Samkvæmt áströlsku veð­ur­stof­unni var októ­ber­hit­inn í Ind­lands­hafi vestan Ástralíu mesta frá­vik frá með­al­hita sem mælst hefur.

Tugmilljónir flýja náttúruhamfarir

Þessar nátt­úru­ham­farir munu án efa reka enn fleiri á flótta en þá sem þegar hafa flúið heim­ili sín. Norska flótta­manna­hjálpin áætlar að um 26 millj­ónir manna á ári hafi flúið heim­ili sín síðan árið 2008. Það er um 62,000 á dag. Þar er reyndar einnig bent á að það er ekki ein­ungis stærð nátt­úru­ham­far­anna sem ræður því hversu margir flýja heim­ili sín. Aðrir þættir, margir þeirra af manna­völdum, hafa einnig mikið að segja: fram­taks­lítil og spillt stjórn­völd, hröð og óskipu­lögð borg­ar­myndun og fólks­fjölgun á hættu­svæðum eða við­kvæmum svæðum.

Þar að auki má finna bein og óbein orsaka­tengsl á milli lofts­lags­breyt­inga og stríðs­á­taka, sem reka enn fleiri á flótta. Oft atvikast það á þessa leið: Fólk sem lifir af land­bún­aði missir lífs­við­ur­væri sitt, t.d. vegna þurrka eða flóða, og verður að flytja sig úr stað með kvik­fénað sinn. Það kemur í nýtt hérað, oft í nágrenni við fyrri heim­kynni en þar er fólk fyrir, sem einnig lifir af land­inu og finnur líka fyrir áhrifum lofts­lags­breyt­inga.

Sam­keppnin um gæði jarðar getur þró­ast út í vopnuð átök í hér­að­inu. Þetta hefur gerst í Malí. Það var í það minnsta einn af skýr­ing­ar­þátt­unum í Darfur fyrir nokkrum árum. Einnig getur óánægja í sam­fé­lag­inu magn­ast upp eftir langvar­andi upp­skeru­brest og leitt til bylt­ingar, eins og gerð­ist í hinni frægu frönsku bylt­ingu árið 1789.

Þetta er það sem gerð­ist í Sýrlandi. Þar urðu miklir þurrkar og upp­skeru­brestur á árunum 2007-2010 sem aftur leiddu af sér mikla óánægju í sam­fé­lag­inu. Í einni umfangs­mestu rann­sókn sem gerð hefur verið á tengslum stríðs­á­taka og lofts­lags­breyt­inga hafa vís­inda­menn kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þurrk­ana megi rekja til lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum og að bein orsaka­tengsl séu á milli þurrkanna og þeirra stríðs­á­taka sem nú geisa í Sýrlandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár