Bankarnir geta byrjað að veita brúarlánin

„Bönkunum er nú ekk­ert að van­bún­aði að hefja vinnu á grunni samn­ing­anna með það að mark­miði að fleyta fyr­ir­tækjum yfir erf­ið­asta hjall­ann,“ segir seðla­banka­stjóri. „Þetta úrræði ætti að gefa þjóð­ar­skút­unni ein­hvern byr í seglin á kom­andi miss­erum.“

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Seðla­bank­inn hefur und­ir­ritað samn­inga við íslenku bank­ana um veit­ingu ábyrgða vegna við­bót­ar­lána til fyr­ir­tækja, svo­kall­aðra brú­ar­lána.

Seðla­bank­anum var falið að ann­ast fram­kvæmd á ábyrgð rík­is­sjóðs sam­kvæmt sér­stökum samn­ingi við fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið. Í því skyni hefur bank­inn und­ir­ritað samn­inga við Íslands­banka, Lands­bank­ann, Arion banka og Kviku banka.

Lánin eru ætluð fyr­ir­tækjum, einkum smáum og með­al­stórum, sem orðið hafa fyrir tíma­bundnum rekstr­ar­vanda vegna heims­far­ald­urs af völdum kór­ónu­veiru, COVID-19. Rík­is­sjóður gengst í ábyrgð fyrir allt að 70 pró­sent af fjár­hæð lán­anna sem fyr­ir­tæki geta fengið að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum, m.a. að lán­taki greiði ekki arð eða kaupi eigin hluti á meðan rík­is­á­byrgðar nýtur við. Heild­ar­á­byrgð rík­is­sjóðs í þessum efnum getur numið allt að 50 millj­örðum króna.

„Það er mik­il­vægt að við höfum náð þessum samn­ingum í höfn um við­bót­ar­lán,“ er haft eftir Ásgeiri Jónssyni seðla­banka­stjóra í til­kynn­ingu frá bank­anum. „Nú hefur opn­ast nýr mögu­leiki fyrir aðþrengd fyr­ir­tæki að sækja sér rekstr­arfé í kjöl­far heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Bönkunum er nú ekk­ert að van­bún­aði að hefja vinnu á grunni samn­ing­anna með það að mark­miði að fleyta fyr­ir­tækjum yfir erf­ið­asta hjall­ann. Þetta úrræði ætti að gefa þjóð­ar­skút­unni ein­hvern byr í seglin á kom­andi miss­erum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár