Barist um valdaþræðina

Flokks­menn hafa rætt mikið saman eftir að slitn­aði upp úr stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna í gær.

Mikil sam­skipti eru nú á milli flokks­manna flokk­anna átta á Alþingi og ekki aug­ljóst í hvaða far­veg stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­urnar fara. Eftir að slitn­aði upp úr við­ræðum milli stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna Vinstri grænna, Sam­fylk­ing­ar­innar, Fram­sóknar og Pírata - einkum vegna and­stöðu Fram­sókn­ar­flokks við að mynda stjórn sem hefði aðeins eins manns meiri­hluta, 32 þing­menn af 63.

Í Morg­un­blað­inu í dag kemur fram að Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafi hvatt Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann Vinstri grænna, til þess að hafa sam­band við Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og kann hug hans til stjórn­ar­mynd­unar.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hafa tölu­verð sam­skipti átt sér stað á milli fólks í flokk­unum und­an­far­inn sól­ar­hring, en innan Fram­sókn­ar­flokks­ins er nokkuð víð­tækur stuðn­ingur við myndun stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Vinstri grænna. Þær áherslur mátti greina í máli Sigurðar Inga í Kast­ljósi í gær­kvöldi.

Sá meiri­hluti hefði sterka stöðu í þing­inu, eða 35 þing­menn. Auk þess væri stjórn­ar­and­staðan, með 28 þing­menn, með „dreifða krafta“, eins og einn við­mæl­andi komst að orði, þar sem 28 þing­menn kæmu úr fimm flokkum; Mið­flokki, Flokki fólks­ins, Sam­fylk­ingu, Pírötum og Viðreisn. Þetta gæti skapað meiri stjórn­festu fyrir þá flokka sem væru við völd, þó erfitt sé að full­yrða um það.

Fleiri mögu­leikar eru þó á borð­inu, og sagði Eiríkur Bergmann Ein­ars­son, pró­fessor, í við­tali við RÚV í gær­kvöldi, að það væri „mann­legt“ í þessum aðstæðum, að for­menn flokk­anna reyndu að koma saman stjórn þar sem áherslur þess sem vildi vera við stýrið yrðu settar á odd­inn.

Það mun skýr­ast í dag og á næstu dögum, í hvaða far­veg stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður munu fara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið undanfarið ár