Rússar juku dróna- og flugskeytaárásir á Úkraínu í nóvember

Árásir Rússa hafa valdið raf­magns­leysi hjá tug­þús­undum íbúa Úkraínu, en Rússar hafa beint spjótum sínum að raf­orku­kerfi lands­ins fjórða vet­ur­inn í röð.

Daglegt brauð
Daglegt brauð Árásir rúss­neska hers­ins á inn­viði Úkraínu eiga sér stað dag­lega. Mynd: AFP

Rússar juku dróna- og flug­skeyta­árásir sínar á Úkraínu í nóv­em­ber, sam­kvæmt grein­ingu AFP sem birt var í dag. Á sama tíma þrýsti Hvíta húsið á stjórn­völd í Kænu­garði að sam­þykkja frið­ar­sam­komu­lag sem talið er hag­stætt fyrir rúss­nesk stjórn­völd.

Yfirvöld í Moskvu skutu alls 5.660 flug­skeytum og lang­drægum drónum á Úkraínu í síð­asta mán­uði, að því er fram kemur í dag­legum skýrslum frá úkra­ínska flug­hernum. Það er tveggja pró­senta aukn­ing frá fyrri mán­uði.

Árásir Rússa hafa valdið raf­magns­leysi hjá tug­þús­undum íbúa Úkraínu, en Rússar hafa beint spjótum sínum að raf­orku­kerfi lands­ins fjórða vet­ur­inn í röð. Úkraínsk stjórn­völd og banda­menn þeirra segja það vera mark­vissa aðferð til að brjóta niður almenna borg­ara í Úkraínu.

Úkra­ínski flug­her­inn sagði að Rússar hefðu skotið 5.445 lang­drægum drónum og 215 flug­skeytum, sem er þriggja pró­senta aukn­ing á ómönn­uðum loft­förum, en tveggja pró­senta fækkun á flug­skeyta­árásum.

Volody­myr Zelensky, for­seti Úkraínu, sagði í …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár