Grænlenskar konur á milli steins og sleggju

Ofbeldi, neysla og vændi bíður margra græn­lenskra kvenna sem vilja byrja nýtt líf í Danmörku. Menn­ing­ar­munur og tungu­mála­örð­ug­leikar gera þeim erfitt fyrir að leita sér aðstoðar.

Græn­lend­ingar eiga margir hverjir erfitt með að fóta sig í Danmörku. Hærra hlut­fall Græn­lend­inga en Dana leitar í áfeng­is­með­ferð, í gisti­mót­tökur fyrir heim­il­is­lausa, eða dúkkar upp á glæpa­töl­fræð­inni, bæði sem fórn­ar­lömb og ger­endur.

Mennt­un­ar­stigið er mun lægra en hjá Dönum, atvinnu­leysið meira, og launin lægri hjá þeim sem þó fá vinnu. Töl­fræðin gildir jafn­vel þegar búið er að taka inn aug­ljósa skýr­ing­ar­þætti, eins og að margir Græn­lend­ingar koma einmitt til Dan­merkur til að mennta sig, og fá þess vegna ekki laun á meðan.

Græn­lenskar konur eru í sér­stökum áhættu­hópi. Ný skýrsla frá dönsku stofn­un­inni Rådet for socialt udsatte grefst fyrir um sögur og bak­grunn græn­lenskra kvenna sem lenda á göt­unni. Margar þeirra koma til Dan­merkur með vondar minn­ingar um ofbeldi og ofneyslu áfengis eða fíkni­efna í fartesk­inu. Þær dreymir um nýtt og betra líf.

Kunna ekki á kerfið – fá ekki aðstoð

Aðrir inn­flytj­endur frá ólíkum menn­ing­ar­heimum geta fengið fræðslu og aðstoð við kom­una til Dan­merkur. Græn­lend­ingar eru hins vegar danskir rík­is­borg­arar og fá þar af leið­andi enga sér­staka aðstoð umfram aðra Dani. Það vantar mikið upp á að félags­þjón­ustan geti komið til móts við Græn­lend­inga sem eiga bágt með að skilja eða tjá sig á dönsku.

Í fyr­ir­heitna land­inu reka græn­lensku kon­urnar sig á að kerfið ætl­ast til að þær sjálfar geti borið sig eftir aðstoð­inni. En þær kunna ekki á kerfið og skilja ekki graut­ar­kennda dönsk­una hjá inn­fæddum.

„Ég skil alveg venju­lega dönsku, en ekki þessa útlensku sem þeir tala á sveit­ar­fé­lags­skrif­stof­unum,” segir Alberte, 39 ára græn­lensk kona sem talað er við í skýrsl­unni.

Um 14.000 Græn­lend­ingar eru búsettir í Danmörku. Þar af er reiknað með að um 1.100-1.400 séu í félags­lega við­kvæmri stöðu (socialt udsatte). Þetta þýðir að hátt í 10% Græn­lend­inga í Danmörku eigi á hættu að lenda á botni hinnar félags­legu fæðu­keðju, á einn eða annan hátt. Það er ansi hátt hlut­fall.

Þó að Grænland til­heyri Danmörku eru félags­leg stuðn­ings­kerfi land­anna aðskilin. Við flutn­ing til Dan­merkur fellur græn­lenski bóta­rétt­ur­inn niður eftir nokkra mán­uði, alls óháð því hvort Græn­lend­ing­arnir hafi fyrir þann tíma náð að sækja um og fá danskar bætur. Óöryggið sem fylgir því að missa greiðsl­urnar sem hingað til hafa haldið fólki á floti, og vita ekki hvert maður á að leita í nýju kerfi, getur verið nóg til að ýta fólki í við­kvæmri stöðu út fyrir brún­ina.

Ósýnilegar í samfélaginu

Jafnvel þær konur sem eru farnar að kunna á kerfið eiga samt erfitt með að sleppa úr víta­hringnum. Minn­ingar um, og sál­rænir örð­ug­leikar tengdir fyrra ofbeldi gera það að verkum að þær beið­ast frekar skjóls hjá vinum og kunn­ingjum en að leita í gisti­skýli fyrir heim­il­is­lausa. Tengsla­netið byggir oftar en ekki á fólki sem einnig er í neyslu, eða mönnum sem áður hafa beitt kon­urnar lík­am­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

„Erna” er önnur græn­lensk kona sem sagði skýrslu­höf­undum sína sögu. Hún kom til Dan­merkur í þeim til­gangi að smygla hassi til­baka til Græn­lands. Hún hætti við þegar til Dan­merkur var komið og finnst hún ekki eiga aft­ur­kvæmt til Græn­lands fyrir vikið. Hún er nán­ast ósýni­leg dönsku sam­fé­lagi. Hún hefur ekk­ert lög­heim­ili og fær enga fjár­hags­að­stoð. Skilur litla dönsku og talar nán­ast enga. Hún forð­ast gisti­skýli fyrir heim­il­is­lausa eftir nauðg­un­ar­til­raun þar.

„[Erna] er hrædd en þorir ekki að biðja um hjálp af því að henni finnst hún ekki vera vel­komin í Danmörku. Hún skilur ekki það sem er sagt, og er hrædd við að leita aðstoðar hjá sveit­ar­fé­lag­inu. ... Eins og er finnst henni betri hug­mynd að safna flöskum og sofa hér og þar, eða að leita aðstoðar hjá græn­lenskum vinum. Þar skilur hún þó það sem er sagt og líður eins og hún sé örlítið á heima­velli.”

Ílendast í vítahringnum

Ofbeld­is­mynstrið sem kon­urnar voru að reyna að flýja frá í Græn­landi endar oft á að fylgja þeim yfir hafið. Margar þeirra hafa til­hneig­ingu til að ganga inn sam­bönd við menn af því þær hafa engin betri úrræði, segir í skýrsl­unni.

Margar þeirra voru í tygjum við danskan mann við kom­una til Dan­merkur og finnst þær vera háðar áfram­hald­andi sam­bandi við hann til að kom­ast af í nýju landi. Þær treysta sér þess vegna ekki til að fara úr ofbeld­is­fullu sam­bandi, því þær hafa ekki trú á eigin getu til að koma undir sig fót­unum. “Þær konur sem ekki eru í föstu sam­bandi hafa margar hverjar neyðst til að fal­bjóða kyn­líf í skiptum fyrir húsa­skjól, áfengi og eit­ur­lyf, og hrein­lega til þess að kom­ast af sem utan­garðs­konur,” segir í skýrsl­unni.

„Ekki spyrja mig hvernig ég hef lifað af á göt­unni. Af því ég veit vel... að vera kona... Það eru sumir menn­irnir sem hafa tekið mig. Ég hef notað lík­amann til að kom­ast í skjól þar sem var hlýtt”, segir Lisa, 57 ára, á brot­inni dönsku.

Einnig hinir sem áttu gott

Þó nokkrir af þeim Græn­lend­ingum sem koma til Dan­merkur hafa átt örð­ugt líf. En ekki allir. Margir Græn­lend­ingar upp­lifa að sú félags­lega staða sem þeir hafa notið í heima­land­inu, þar sem allt gekk vel og þeir kunnu á lífið, verði að engu í nýju landi. Gildin eru önnur, for­dómar miklir gegn Græn­lend­ingum, og græn­lensk menntun ekki metin jafn­mik­ils og dönsk menntun.

Jafnvel krakkar sem hafa verið klárir í skóla á Græn­landi geta farið hall­oka þegar þeir fara til náms í Danmörku. Þeir kunna ekki tungu­málið nægi­lega vel til að standa jafn­fætis inn­fæddum. Það hefur áhrif á sjálfs­traustið.

Margir flytja til Dan­merkur án þess að hafa kynnt sér hvað bíður þeirra, útvegað sér hús­næði eða vinnu. Þetta er án efa hluti af ástæð­unni fyrir því að 6% Græn­lend­inga í Danmörku búi í gisti­skýlum fyrir heim­il­is­lausa. Allt að 58% Græn­lend­inga hefur á ein­hverjum tíma­punkti nýtt sér þá þjón­ustu.

Bæj­ar­starfs­menn hjá Álaborg segja Græn­lend­inga vera um fjórð­ung heim­il­is­lausra ung­menna í borg­inni. Þeir segja að margir flytji til Dan­merkur án þess að gera sér raun­hæfa hug­mynd um það hvað bíði þeirra. Þess vegna hefur Álaborg farið að bjóða nýlentum Græn­lend­ingum upp á fræðslu um það hvernig danska kerfið virki og hvernig þeir eigi að koma undir sig fót­unum í Danmörku.

Græn­lend­ingar og Danir hafna þannig í víta­hring for­dóma. Nærri helm­ingur Græn­lend­inga í Danmörku (44%) segj­ast hafa fundið fyrir for­dómum inn­fæddra Dana í sinn garð.

For­dóm­arnir brjót­ast m.a. út í nei­kvæðu við­horfi Dana til Græn­lend­inga og lít­illi til­trú, eins og sjá má í slang­ur­yrð­inu Grøn­lend­er­stiv, sem vísar til þess að vera ofurölvi. For­dóm­arnir styrkja og ýta undir útskúfun Græn­lend­inga og gerir það enn erf­ið­ara fyrir þá að koma undir sig fót­unum í nýju landi, fá vinnu eða leita sér hjálpar þegar þess er þörf. Hjálp­ar­leysi Græn­lend­ing­anna, og hin sýni­legu ein­kenni útskúf­un­ar­innar styrkja aftur for­dóma Dananna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár