Hljómsveitarmeðlimir Sigur Rósar ákærðir fyrir skattsvik

Fjórir núver­andi og fyrr­ver­andi liðs­menn íslensku hljóm­sveit­ar­innar Sigur Rós, þeir Georg Holm, Kjartan Sveins­son, Orri Páll Dýrason og Jón Þór Birg­is­son, hafa verið ákærðir fyrir skatt­svik.

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur tekið ákvörðun um að ákæra fjóra hljóm­sveit­ar­með­limi Sigur Rósar vegna van­fram­tal­inna tekna. Skil á skatt­fram­tölum liðs­manna hljóm­sveit­ar­innar fyrir árin 2010 til 2014 hafa verið skoð­unar hjá yfir­völdum í nokkur ár. Í til­kynn­ingu frá Sigur Rós segir að hljóm­sveit­ar­með­lim­irnir harmi að málið þurfi að fara fyrir dóm en von­ast á sama tíma til þess að máls­á­stæður þeirra skýrist. Þá segir að þeir hafi ávallt haft fullan ásetn­ing til að standa í réttum skilum við skatt­yf­ir­völd og stóðu í þeirri trú að það hefði verið gert.

Ekki sérfróðir í bókhaldi

Haft er eftir Bjarn­freði Ólafs­syni, lög­manni hjá LOGOS lög­manns­þjón­ustu, í til­kynn­ing­unni að hljóm­ar­sveit­ar­mennir töldu að þessi máli væru í lagi og í höndum fag­manna.

„Hljóm­sveit­ar­með­limir eru tón­list­ar­menn og ekki sér­fróðir í bók­haldi og alþjóð­legum við­skiptum – hvað þá í fram­tals­gerð og skatt­skilum. Þess vegna réðu þeir við­ur­kennda sér­fræð­inga til að ann­ast bók­hald og öll sam­skipti við íslensk skatt­yf­ir­völd. En í ljós hefur komið að röngum fram­tölum var skilað til rík­is­skatt­stjóra og/eða þeim skilað alltof seint. Á sama tíma töldu hljóm­sveit­ar­með­limir að þessi mál væru í lagi og í höndum fag­manna. Það verður núna verk­efni Hér­aðs­sak­sókn­ara að færa sönnur fyrir því að hljóm­sveit­ar­með­limir hafi sjálfir gerst sekir um stór­fellda van­rækslu á fram­tals­skyldu sinni. Í ljósi máls­at­vika fæ ég ekki séð hvernig það verður hægt og þess vegna veldur það von­brigðum að emb­ætti Hér­aðs­sak­sókn­ara hafi tekið ákvörðun um ákærur á hendur þeim,“ segir Bjarn­freður.

Ákærðir fyrir að greiða ekki tugi milljóna í skatt

Í umfjöllun RÚV um málið segir að fjórir núver­andi og fyrr­ver­andi liðs­menn hljóm­sveit­ar­innar séu ákærðir fyrir skatt­svik. Þeir Georg Holm, Kjartan Sveins­son, Orri Páll Dýrason og Jón Þór Birg­is­son eru allir ákærðir fyrir að telja ekki fram tekjur eða arð­greiðslur.

Samkvæmt RÚV segir í ákærunni á hendur Jóni Þór Birg­is­syni, söngv­ara sveit­ar­innar, að honum sé gefið að sök að hafa komið sér undan greiðslu tekju­skatts upp á rúmar þrjá­tíu millj­ónir króna og fjár­magnstekju­skatt upp á 13 millj­ónir. End­ur­skoð­andi Sigur Rósar er jafn­framt sagður ekki hafa staðið skil á skatt­fram­tölum Jóns Þórs gjald­árin 2014 og 2015. Með því er söngv­ar­inn sagður hafa kom­ist undan greiðslu tekju­skatts upp á 22,6 millj­ónir og fjár­magnstekju­skatts upp á 10 millj­ónir.

Georg Holm, bassa­leik­ari sveit­ar­innar, er ákærður fyrir að hafa ekki greitt tekju­skatt upp á 35 millj­ónir og fjár­magnstekju­skatts upp á 9,5 millj­ónir. Kjartan Sveins­son, sem hætti í hljóm­sveit­inni fyrir sex árum, er einnig ákærður. Hann er sagður hafa kom­ist hjá því að greiða tekju­skatt upp á rúmar 18 millj­ónir vegna tekna hans.

Orri Páll Dýrason, sem hætti í Sigur Rós í októ­ber síð­ast­liðnum, er ákærður fyrir að hafa kom­ist hjá greiðslu tekju­skatts upp á 36 millj­ónir og fjár­magnstekju­skatt upp á 9,5 millj­ónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár