Fjögur gagnaver orðin stórnotendur raforku

Orkuþörf gagna­vera vex hratt hér á land og eru fjögur þeirra nú orðin stórnot­endur raf­orku. Samkvæmt nýrri raf­orku­spá Orku­stofn­unar verður raf­orku­notkun gagna­vera komin upp í 1260 gíga­vatt­stundir árið 2022.

Gagna­verum hefur fjölgað hratt á Íslandi á und­an­förnum árum. Nú eru fjögur þeirra orðin það stór að þau telj­ast sem stórnot­endur orku. Orku­stofnun telur að orku­þörf gagna­ver­anna muni halda áfram að aukast og að árið 2022 verði afl­þörf gagna­vera orðin 150 MW og um 1.260 GWh í orku. Eitt helsta verk­efni gagna­vera á Íslandi er að grafa eftir raf­mynt­inni bitcoin.

Raforkunotkun gagnavera meiri í fyrra en gert var ráð fyrir

Í nýrri raf­orku­spá Orku­stofn­unar fyrir árin 2019 til 2050 sem birt var fyrr í vik­unni er búið að end­ur­reikna raf­orku­spá stofn­unnar frá 2015 út frá nýjum gögnum og breyttum for­send­um. Í spánni er meðal ann­ars fjallað um að hvernig raf­orku­notkun gagna­vera hefur verið að aukast hratt á und­an­förnum árum. Sú notkun er að stærstum hluta tekin frá flutn­ings­kerf­inu (stórnot­endur) og var sú notkun um 500 gíga­vatt­stundum meiri í fyrra en spáin frá 2015 gerði ráð fyrir.

Nú eru um fjögur gagna­ver hér á landi orðin það stór að þau telj­ast stórnot­endur raf­orku. Það eru gagna­verin Verne, sem hóf starf­semi sína árið 2011, og gagna­ver Advania, en bæði eru þau í Reykja­nesbæ. Afhend­ing raf­orku til gagna­vers Advanda færð­ist frá dreifi­kerf­inu yfir til flutn­ings­kerf­is­ins, eða frá almennri notkun yfir í stórnot­enda, í árs­byrjun 2016.

Á árinu 2019 bætt­ist síðan við gagna­ver Etix á Blöndu­ósi í hóp stórnot­enda og síðar í ár mun gagna­ver Etix á Suð­ur­nesjum fær­ast frá dreifi­kerf­inu yfir til flutn­ings­kerf­is­ins.

Gagnaverin munu nota 1260 GWh árið 2022

Í nýrri raf­orku­spá Orku­stofn­unar er gert ráð fyrir að orku­notkun gagna­ver­anna fjög­urra verði um 1030 GWh í ár og um 130 MW í afli. Eftir þrjú ár , árið 2022, verður afl­þörf gagna­ver­anna komin upp í 150 MW og um 1260 GWh í orku, sam­kvæmt spánni.

Aftur á móti er gagna­verið sem rís nú á Korpu­torgi, sem eru í eigu Opinna Kerfa, Vodafone, Reikni­stofu Bankanna og Korpu­torgs ehf., ekki tekið með í útreikn­inga Orku­stofn­unnar þar sem ekki er enn búið að ljúka samn­ingum við gagna­verið. Gagna­verið á Korpu­torgi verður um 5000 fer­metrar að stærð þegar það verður full­byggt en gert er ráð fyrir að fram­kvæmdum við fyrsta áfanga gagna­vers­ins verði lokið í haust.

Líkur á aflskorti árið 2022

Landsnet gefur árlega út skýrslu um afl- og orku­jöfnuð í land­inu og í nýj­ustu skýrslu þeirra kemur fram að líkur á aflskorti hér á landi séu lágar til árs­ins 2021 en hækki svo eftir það. Samkvæmt skýrsl­unni starfar það af því að úttekt frá flutn­ings­kerf­inu mun aukast meira en áður var reiknað með, meðal ann­ars vegna notk­un­ar­aukn­ingar hjá gagna­verum.

Landsnet segir í skýrsl­unni að ef halda á líkum á aflskorti undir við­miðum þurfi að koma fleiri fram­leiðslu­ein­ingar í rekstur á tíma­bil­inu en reiknað með, eða álag að minnka. 

Guð­mundur Ingi Ásmunds­son, for­stjóri Lands­nets, sagði í við­tali við frétta­stofu RÚV í júlí að líkur séu á á tíma­bundnum aflskorti hér á landi eftir þrjú ár og að stjórn­völd þyrftu að ákveða hvernig bregð­ast ætti við. 

„Í verstu árunum þá kæmi til þess að það þyrfti að taka ákvarð­anir og draga úr notkun ef að við erum ekki komin með auka­afl inn í kerfið,“ sagði Guð­mundur Ingi. „Nú það er líka mögu­leiki að nota vara­stöðv­arnar, sem reyndar eru olíu­stöðvar, til þess að fylla í hol­urnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár