Leggja til að heimilt verði að setja einstaklinga í atvinnurekstrarbann

Starfs­hópur sem skoðað hefur und­ir­boð og brota­starf­semi á íslensku vinnu­mark­aði segir að brýn­asta verk­efnið sé að taka á kenni­tölu­flakki. Hópurinn leggur því til að í ákveðnum til­vikum verði unnt að setja ein­stak­linga í atvinnu­rekstr­ar­bann.

Sam­starfs­hópur, sem skip­aður var Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barna­mála­ráð­herra, hefur skilað af sér skýrslu með til­lögum um hvernig megi sporna gegn félags­legum und­ir­boðum og brota­starf­semi á íslenskum vinnu­mark­aði. Að mati hóps­ins er brýn­asta verk­efnið að taka mark­visst á kenni­tölu­flakki.

Hópurinn leggur til að rík­is­skatt­stjóra fái heim­ildir til þess að svipta þá ein­stak­linga sem telj­ast van­hæfir, vegna óverj­andi við­skipta­hátta og rök­studds grunar um refsi­verði hátt­semi í tengslum við atvinnu­rekstur, tíma­bundið heim­ild sinni til að taka þátt stjórn félags. Auk þess telur hóp­ur­inn það mik­il­vægt að komið verði upp föstum sam­ráðs­hópi stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins sem beri ábyrgð á sam­eig­in­legri stefnu­mótun um aðgerðir gegn brota­starf­semi á vinnu­mark­aði.

Engin stofnun safnar tölulegum upplýsingum um kennitöluflakk

[links] Kenni­tölu­flakk er ein birt­ing­ar­mynd skatt­und­an­skota og birt­ist einna helst í mis­notkun á félaga­formum sem byggja á tak­mark­aðri ábyrgð hlut­hafa. Kenni­tölu­flakk felst meðal ann­ars í stofnun fyr­ir­tækis í sama atvinnu­rekstri og það félag sem hefur verið úrskurðað gjald­þrota til að losa und­ir­liggj­andi rekstur undan fjár­hags­legum skuld­bind­ingum en halda eignum.

Í dag safnar engin stofnun á Íslandi tölu­legum upp­lýs­ingum um eign­ar­hald á félögum og hverjir standa þar að baki. Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dótt­ir, ferða­mála-, iðn­aðar og nýsköp­un­ar­ráð­herra, sagði í svari við fyr­ir­spurn þing­manns fyrr í mán­uð­inum að á meðan slíkar upp­lýs­ingar liggi ekki fyrir sé erfitt að meta umfang kenni­tölu­flakks hér á landi. [adspot]

Ótrúlegt sinnuleysi stjórnvalda gagnvart brotastarfsemi á vinnumarkaði

Sam­starfs­hóp­ur­inn leggur því til að rík­is­skatt­stjóri fái heim­ild til að setja for­svars­menn fyr­ir­tækja í tíma­bundið bann við þátt­töku í stjórnun félaga, með tak­mark­aða ábyrgð við til­teknar aðstæður. Í skýrsl­unni segir jafn­framt að lyk­il­at­riðið sé að komið sé á svipt­ingu rétt­inda með skjót­virkum hætti, að slík mál verði ekki með­höndluð með sama hætti og saka­mál. For­ráða­mönnum rekstrar sem sætir til­mælum eða stöðvun ætti ekki að vera heim­ilt að færa rekst­ur­inn yfir á aðra kenni­tölu á meðan á því stendur og halda þar áfram rekstri.

„Það hefur verið alveg ótrú­leg þol­in­mæði stjórn­valda og sinnu­leysi gagn­vart þessum hlutum. Að mörgu leyti hafa aðilar skellt skolla­eyrum við því sem við höfum verið að segja og upp­lýsa. Sér­stak­lega varð­andi kenni­tölu­flakkið. Þar sem við erum að tala um að rík­is­sjóður verður af millj­arða­tugum á hverju ári vegna þess að aðilar eru ein­fald­lega að nota hluta­fé­lög og einka­hluta­fé­lög til þess að ræna pen­ingum af sam­fé­lag­inu,” sagði Halldór Grönvold aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Alþýðu­sam­bands Íslands í við­tali við Morg­un­út­varpið í vik­unni, en hann var hluti af sam­starfs­hópnum.

Ríkissjóður fari á mis við milljarða vegna skattundanskota á ári hverju

Á end­anum ber almenn­ingur nefni­lega tjónið af völdum kenni­tölu­flakks, hvort sem það er í formi hærri skatta, minni opin­berrar þjón­ustu eða með öðrum hætti. Upp­lýs­ingar liggja ekki fyrir hversu miklum skatt­tekjum rík­is­sjóður hefur orðið af vegna kenni­tölu­flakks eða hvert árlegt tap rík­is­sjóðs­ins sé vegna þess. Hins vegar segir í umfjöllun Tíundar, frá jan­úar 2016, að áætl­að sé að rík­­is­­sjóður fari á mis við 80 millj­­arða króna vegna skatt­und­an­­skota á ári hverju og að kenn­i­­tölu­flakk sé hluti vand­ans.

Greint hefur verið frá því að atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­ið, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og dóms­mála­ráðu­neytið stefna að því að leggja fram frum­varp um kenni­tölu­flakk á Alþingi síðar í þessum mán­uði. Frum­varpið er afrakstur ráðu­neyt­anna eftir að hafa und­an­farin miss­eri haft til skoð­unar til­lögur Sam­taka atvinnu­lífs­ins og Alþýðu­sam­bands Íslands um leiðir til að sporna við kenni­tölu­flakki í atvinnu­rekstri.

Vilja að beitt verði þvingunarúrræðum á þau fyrirtæki sem ítrekað brjóta kjaralög

Í skýrslu starfs­hóps­ins eru fleiri til­lögur reif­aðar til að sporna gegn brota­starf­semi á vinnu­mark­aði. Hópurinn segir að til þess að fyr­ir­byggja alvar­leg og ítrekuð brot gegn starfs­mönnum þurfi að útvíkka refsi­á­byrgð lög­að­ila og fyr­ir­svars­manna. Stjórn­völdum væri þá veittar laga­heim­ildir til að beita þving­unar­úr­ræðum og stjórn­valds­sektum gegn aðilum sem brjóta kjara­lög ítrekað. Hópurinn lagði meðal ann­ars að stofnuð yrði eins­konar sér­sveit, skipuð fólki frá lög­regl­unni, Rík­is­skatt­stjóra, Vinnu­eft­ir­lit­inu og Vinnu­mála­stofnun, sem hefur það eina mark­mið að hafa eft­ir­lit með vinnu­mark­aðnum og grípa inn í. Slík sveit er meðal ann­ars starf­rækt í Noregi.

Enn fremur leggur hóp­ur­inn mikla áherslu á að bætt verði veru­lega upp­lýs­inga­gjöf til erlendra starfs­manna, þar á meðal með stofnun ráð­gjaf­ar­stofu og auk­inni upp­lýs­inga­gjöf á vef. Einnig verði skipu­lögð upp­lýs­inga­gjöf til atvinnu­rek­enda um starfs­kjör. Hópurinn lagði auk þess áherslu á að stjórn­völd beiti sér fyrir því að koma í veg fyrir brota­starf­semi á vinnu­mark­aði undir for­merkjum starfs­náms eða sjálf­boða­liða­starf­semi og mark­aður skýr rammi um hvað skuli heim­ilað undir þeim for­merkjum.

Í skýrsl­unni fjallar hóp­ur­inn einnig um að end­ur­skoða þurfi skil­grein­ingu á man­sali, að sett verði í lög bann við nauð­ung­ar­vinnu og refsi­á­kvæði til að tryggja skil­virka fram­kvæmd. Auk þess verði tryggð verði við­eig­andi aðstoð og vernd fyrir fórn­ar­lömb vinnumansals og nauð­ung­ar­vinnu.

Fastur samráðshópur stjórnvalda og aðila vinnumarkaðsins

Hópurinn leggur jafn­framt til að komið verði á form­legu sam­starfi rík­is­stjórnar, stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins um stefnu­mótun og upp­lýs­inga­skipti um brota­starf­semi á vinnu­mark­aði, sam­ráðs­hópi sem hafi það hlut­verk að hafa yfir­sýn yfir sviðið, móta stefnu og vera rík­is­stjórn til ráð­gjafar. Í sam­ráðs­hópi skuli sitja full­trúar for­sætis-, dóms­mála-, fjár­mála-, félags­mála- og atvinnu­vega­ráðu­neyt­anna, ákæru­valds, heild­ar­sam­taka stétt­ar­fé­laga Alþýðu­sam­bands Íslands, Banda­lags háskóla­manna, BSRB, o.s.frv. Samtaka atvinnu­lífs­ins, stærstu sveit­ar­fé­laga og Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og hugs­an­lega fleiri aðila.

„Sam­ráðs­hóp­ur­inn skal móta til­lögur til rík­is­stjórnar um áherslur og aðgerðir og komi þær til end­ur­skoð­unar á minnst tveggja ára fresti og sé jafn­framt til 11 eft­ir­lits og stefnu­mót­unar gagn­vart þeim stjórn­völdum sem sinna mála­flokknum. Eðlilegt er að þetta sam­starf verði undir for­ystu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.“ segir í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár