Gerði athugasemdir við svarleysi og seinagang menntamálaráðuneytisins

Umboðs­maður Alþingis sendi mennta­mála­ráð­herra bréf í fyrra og gerði athuga­semdir við að ítrekað hefðu orðið tafir á því að ráðu­neyti hennar svar­aði fyr­ir­spurnum emb­ætt­is­ins.

Umboðsmaður Alþingis gerði athugasemdir við að ráðuneyti Lilju Alfreðsdóttur svaraði fyrirspurnum seint og illa. Ráðuneytið mun hafa brugðist við með skipulagsbreytingum og mannaráðningum.
Umboðs­maður Alþingis gerði athuga­semdir við að ráðu­neyti Lilju Alfreðs­dóttur svar­aði fyr­ir­spurnum seint og illa. Ráðu­neytið mun hafa brugð­ist við með skipu­lags­breyt­ingum og manna­ráðn­ingum. Mynd: Pressphotos / Mbl.is

Umboðs­maður Alþingis sendi Lilju D. Alfreðs­dóttur mennta­mála­ráð­herra bréf í fyrra og gerði athuga­semdir við að ítrekað hefðu orðið tafir á því að ráðu­neyti hennar svar­aði fyr­ir­spurnum emb­ætt­is­ins. Á þeim tíma var beðið eftir svörum vegna 11 mála auk þess sem borist höfðu kvart­anir og ábend­ingar um tafir og ófull­nægj­andi svör ráðu­neyt­is­ins. Þetta kemur fram í árs­skýrslu umboðs­manns Alþingis fyrir 2018.

„Ég ítrek­aði síðan með yfir­liti sem ég sendi ráðherra í sept­em­ber 2018 að enn skorti á að svör bær­ust frá mennta- og menn­ing­armála-ráðuneyt­inu,“ skrifar hann. „Samhliða þessum upplýsingum sem ég sendi til ráðuneyt­is­ins á árinu átti ég samtöl við ráðherra um úrbætur á starfsháttum ráðuneyt­is­ins að þessu leyti.“

Umboðs­maður kom á fram­færi bréf­legum athuga­semdum við seina­gang­inn sem hafði verið á svörum þess og brýndi fyrir ráðu­neyt­inu að tryggja að ekki yrði fram­hald á þessum starfsháttum. Ráðherra hafði svo frum­kvæði að því í apríl 2019 að óska eftir fundi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár