Ekki innleyst þriðjung fjárfestingar hjá neinum

Seðla­banki Ísland mátti inn­leysa þriðj­ung fjár­fest­ingar aðila sem nýttu fjár­fest­ing­ar­leið hans ef þeir urðu upp­vísir að því að brjóta gegn kvöðum sem giltu um við­skiptin. Bankinn telur engan hafa brotið gegn kvöð­unum og hefur því ekki inn­leyst neitt.

Í útboðs­skil­málum Seðla­banka Íslands vegna fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar var sér­stak­lega fjallað um kvaðir sem eiga við gjald­eyr­is­við­skiptin í lið 16. Þar sagði m.a.: „Verði brotið gegn kvöð­unum um bann við hvers kyns ráð­stöfun fjár­fest­ing­ar­innar til fimm ára skal Seðla­bank­anum vera heim­ilt að inn­leysa þriðj­ung (1/3) fjár­fest­ing­ar­innar (gjald­eyr­is­við­skipta), allt eins og greinir nánar í við­skipta­skil­málum vegna gjald­eyr­is­við­skipta sam­kvæmt fjár­fest­ing­ar­leið.“

Kjarninn spurð­ist fyrir um það hjá Seðla­banka Íslands hvort að reynt hafi á þessa útboðs­skil­mála. Þ.e. hvort bank­inn hafi inn­leyst þriðj­ung fjár­fest­ingar hjá ein­hverjum. Í svari bank­ans kemur fram að það hafi aldrei reynt ákvæðið. Samkvæmt því hefur engin brotið gegn kvöð­unum um bann við ráð­stöfun fjár­fest­inga sinna sem fjár­magn­aðar voru í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Og bank­inn því aldrei þurft að inn­leysa þriðj­ung fjár­fest­ingar ein­hvers.

Mjög umdeild leið

Fjár­fest­inga­rleið Seðla­banka Íslands, sem einnig var nefnd 50/50 leið­in, var gríð­ar­lega umdeild aðferð sem Seðla­bank­inn beitti til minnka hina svoköll­uðu snjó­hengju, krónu­eignir erlendra aðila sem fastar voru innan fjár­magns­hafta og gerðu stjórn­völdum erfitt fyrir að vinna að frek­ari losun þeirra hafta. Sam­kvæmt henni gátu þeir sem sam­þykktu að koma með gjald­eyri til Íslands skipt þeim í íslenskar krónur á hag­stæð­ara gengi en ef þeir myndu gera það í næsta banka. Mun hag­stæð­ara gengi.

Þeir sem tóku á sig „tap­ið“ í þessum við­skiptum voru aðilar sem áttu krónur fastar innan hafta en vildu kom­ast út úr íslenska hag­kerf­inu með þær. Þeir sem „græddu“ voru aðilar sem áttu erlendan gjald­eyri en voru til­búnir að koma til Íslands og fjár­festa fyrir hann. Seðla­bank­inn var síðan í hlut­verki milli­göngu­að­ila sem gerði við­skiptin mögu­leg. Líkt og verslun sem leiddi heild­sala og neyt­endur sam­an.

794 innlendir aðilar

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­­­fest­inga­­rleið­inni frá því í febr­­úar 2012 til febr­­úar 2015, þegar síð­­asta útboðið fór fram. Í gegnum þau komu um 1.100 millj­­ónir evra til lands­ins, sem sam­svarar um 206 millj­­örðum króna. Ef þeir sem komu með þennan gjald­eyri til Íslands hefðu skipt þeim á opin­beru gengi Seðla­­bank­ans, líkt og venju­­legt fólk þarf að gera, hefðu þeir fengið um 157 millj­­arða króna fyrir hann. Virð­is­aukn­ingin sem fjár­­­fest­inga­­leiðin færði eig­endur gjald­eyr­is­ins í íslenskum krónum var því 48,7 millj­­arðar króna. Af þeirri upp­hæð sem kom inn í landið kom 35 pró­sent frá inn­lendum aðilum, en alls tóku 794 slíkir þátt í leið­inni.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Seðla­banka Íslands var um 47,2 pró­sent af því fjár­magnsinn­streymi sem kom til lands­ins í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina fest í skulda­bréfum, um 40 pró­sent í hluta­bréfum, 12,2 pró­sent í fast­eignum og 0,6 pró­sent í verð­bréfa­sjóðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár