Um helmingur einstæðra foreldra í leiguhúsnæði

Af heim­ilum með börn voru 22,5 pró­sent á leigu­mark­aði árið 2016 en meðal barn­lausra heim­ila var hlut­fallið hærra eða 28,8 pró­sent.

Fólk sem var eitt í heim­ili var mun lík­legra til að vera á leigu­mark­aði en á heim­ilum þar sem voru tvö full­orðin eða fleiri. Árið 2016 var 41 pró­sent ein­stak­lings­heim­ila á leigu­mark­aði, 48,3 pró­sent karla sem bjuggu einir og 32,5 pró­sent kvenna í sömu stöðu. Um helm­ingur ein­stæðra for­eldra, eða 51,8 pró­sent, bjó í leigu­hús­næði árið 2016.

Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum lífs­kjara­rann­sóknar Hagstofu Íslands fyrir árin 2004 til 2016 sem birt­ust í dag á vef­síðu stofn­un­ar­innar.

Rúmlega fjórð­ungur heim­ila, eða 26,4 pró­sent, var á leigu­mark­aði árið 2016 eða áætlað um 35.100 heim­ili. Á sama tíma voru 73,6 pró­sent heim­ila í eigin hús­næði eða um 97.500 heim­ili.

Af heim­ilum með börn voru 22,5 pró­sent á leigu­mark­aði en meðal barn­lausra heim­ila var hlut­fallið hærra eða 28,8 pró­sent.

Tekjulágir frekar á leigumarkaði

Þegar litið er á stöðu fólks í lægsta fimmt­ungi ráð­stöf­un­ar­tekna árið 2016 voru 44,2 pró­sent á leigu­mark­aði á meðan hlut­fallið var 6,6 pró­sent í hæsta tekju­fimmt­ungi. Af þessu má sjá að eftir því sem ráð­stöf­un­ar­tekjur eru hærri, því lægra hlut­fall er á leigu­mark­aði, að jafn­aði.

Þegar staðan árið 2016 er borin saman við árið 2004, þegar lífs­kjara­rann­sóknin var fyrst lögð fyrir, jókst hlut­fall leigj­enda í lægsta tekju­fimmt­ung­inum um 77 pró­sent. Hins vegar var ekki mark­tæk breyt­ing á hlut­falli leigj­enda í þeim hópi sem hafði hæstar tekjur milli áranna tveggja.

Hlutfall fólks á leigu­mark­aði árið 2016 tengd­ist einnig aldri. Hæst var hlut­fall á leigu­mark­aði meðal fólks á aldr­inum 25 til 34 ára eða 38,8 pró­sent, en lægst í elstu ald­urs­hóp­unum. Um 22,8 pró­sent barna 0 til 17 ára bjó í leigu­hús­næði árið 2016. Þetta er vöxtur um 85 pró­sent miðað við árið 2004 er hlut­fallið var 12,3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár