Framlag Kjarnans á árinu 2013

Kjarninn er fimm ára í vik­unni. Af því til­efni verður rifjað upp það helsta sem hann hafði til mál­anna að leggja á hverju því starfs­ári sem hann hefur verið til, á hverjum degi í þess­ari viku. Í dag er farið yfir árið 2013.

Á fyrsta starfs­ári sínu lét Kjarninn mjög til sín finna. Í fyrstu útgáfu hans 22. ágúst 2013, sem þá var viku­rit fyrir snjall­tæki, var meðal ann­ars greint inni­haldi úttektar sem PwC hafði unnið á til­teknum þáttum í starf­semi Spari­sjóðs­ins í Keflavík. Sjóð­ur­inn hafði verið yfir­tek­inn af Fjár­mála­eft­ir­lit­inu.

Skýrslan sem PwC skil­aði var kolsvört og sýndi að ekki stóð steinn yfir steini í rekstri sjóðs­ins, en það kost­aði á end­anum rík­is­sjóð, og þar með almenn­ing, á þriðja tug millj­arða króna.

Sam­hliða umfjöll­un­inni birti Kjarn­inn skýrslu PwC um spari­sjóð­inn í heild sinni, en hún er hátt í fimm hund­ruð blað­síður að lengd. Í skýrsl­unni var að finna fjár­hags­upp­lýs­ingar um helstu lán­tak­endur og við­skipta­vini sjóðs­ins sem og upp­lýs­ingar um útlána­stöðu starfs­manna hans.

Eftir birt­ingu leyni­skýrsl­unn­ar ­fór Fjár­mála­eft­ir­litið fram á að hún yrði fjar­lægð af vef­síðu Kjarn­ans, vegna fjár­hags­upp­lýs­inga sem þar væri að finna um nafn­greinda við­skipta­vini og starfs­menn sjóðs­ins. Gefið var í skyn í bréfi eft­ir­lits­ins að birt­ing skýrsl­unnar fæli í sér brot á hegn­ing­ar­lögum sem við lægi fang­els­is­vist.

Kjarn­inn hafn­aði beiðni Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um að fjar­lægja skýrsl­una, þar sem hún ætti erindi við almenn­ing enda hafi gjald­þrot Spari­sjóðs­ins í Kefla­vík kostað almenn­ing tugi millj­arða króna.

Í þess­ari fyrstu útgáfu Kjarnans var líka ítar­legt for­síðu­við­tal við þá nýjan for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar, Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, sem hafði setið í stjórn­ar­ráð­inu í tæpa þrjá mán­uði. Þar fór hann yfir skulda­nið­ur­fell­ing­ar­á­form sín, bar­átt­una við kröfu­hafa föllnu bank­anna, ræddi boð­aða þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald­andi við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið um aðild Ísland og lækkun veiði­gjalda, svo fátt eitt sé nefnt. Þar fór Sig­mundur Davíð líka yfir skoð­anir sínar um íslenska fjöl­miðla og hélt því fram að rét­trún­aður stýrði í sífellt auknum mæli umræð­unni, sem gerði stjórn­mála­mönnum með frum­legar hug­myndir erfitt fyrir.

Spáðum bólu á fasteignamarkaði

Í lok ágúst birt­ist úttekt í Kjarn­anum að að for­sæt­is­ráðu­neytið ætl­aði ekki að fara fram á að þrír sér­fræð­ingar, sem voru for­stöðu­menn og fram­kvæmda­stjórar eigna­stýr­inga eða einka­banka­þjón­ustu, víki úr störfum sínum á meðan að þeir sátu í sér­fræð­inga­hópum um skulda­nið­ur­fell­ingar og afnám verð­trygg­ingar sem ráðu­neytið hafði þá nýverið skipað í. Meðlimir hóps­ins voru þess í stað látnir und­ir­rita dreng­skap­ar­heit um þagn­ar­skyldu.

Margir leik­endur á fjár­mála­mark­aði, og starfs­menn ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja, voru mjög hissa, jafn­vel reiðir, yfir þess­ari stöðu. Þeim fannst aug­ljóst að fjár­festar myndu ekki sitja við sama borð né hafa sama aðgengi að upp­lýs­ingum þegar full­trúar ákveð­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja sætu í hóp­unum. Þeir full­trúar myndu hafa inn­herj­a­upp­lýs­ingar er varða skulda­bréfa­markað. Jafnvel þótt að ekki þætti til­efni til að ætla að umræddir aðilar myndu mis­nota aðstöðu sína til að hjálpa fyr­ir­tækjum sínum væri aug­ljóst að aðstæð­urnar sköp­uðu van­traust á mark­aði sem myndi leiða til þess að við­skipti yrðu tor­tryggð.

Forsíða Kjarnans 12. september 2013.
Forsíða Kjarnans 12. sept­em­ber 2013.

Kjarninn hóf nær sam­stundis að fjalla mjög ítar­lega um hús­næð­is­mark­að­inn og birti ítar­lega frétta­skýr­ingu í sept­em­ber. Þar kom fram að allt benti til þess að þús­undir Íslend­inga sem væru að koma inn á fast­eigna­markað á næstu árum myndu eiga í miklum vand­ræðum með að koma þaki yfir höf­uðið. Fyr­ir­sögnin á for­síðu var „Ný bóla skrifuð í skýin“. Síðan þá hefur fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 64 pró­sent.

Hættulegasti stjórnmálamaður Íslands

Árið 2013 var Jón Gnarr enn borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Framundan voru sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar og hann hafði ekki gefið það út enn hvort hann myndi bjóða sig fram að nýju eða ekki. Kannanir bentu til þess á þessum tíma að flokkur Jóns, Besti flokk­ur­inn, ynni stór­sigur ef hann byði sig aftur fram og að Jón gæti ein­fald­lega valið hvort hann yrði borg­ar­stjóri áfram eða ekki. Í við­tal­inu sagði Jón frá því hvar og hvenær hann ætl­aði að til­kynna um ákvörðun sína. Þar sagð­ist hann líka vera hættu­leg­asti stjórn­mála­maður lands­ins.

Jón Gnarr tilkynnti haustið 2013 að hann langaði ekki lengur að vera borgarstjóri, og að hann myndi ekki bjóða sig aftur fram til að vera það.
Jón Gnarr til­kynnti haustið 2013 að hann lang­aði ekki lengur að vera borg­ar­stjóri, og að hann myndi ekki bjóða sig aftur fram til að vera það.

Í við­tal­inu sagði Jón líka að Sel­tjarn­ar­nes væri fyrir Reykja­vík „eins og þú eigir íbúð og ríki frændi þinn eigi íbúð við hliðiná þér þar sem er inn­an­gengt í þína. Hann hefur engar skyldur gagn­vart þinni íbúð en getur gengið inn í hana á skítugum skónum og étið úr ísskápnum þegar hann vill vegna þess að hann keypti íbúð­ina með þessum rétt­ind­um. Að sama skapi keyptir þú íbúð­ina þína með þessum van­kanti. Þetta setur þig og frænda þinn í sér­kenni­lega stöðu. Það er ekk­ert úti­gangs­fólk á Sel­tjarn­ar­nesi. Þar er mjög lít­ill félags­legur vandi, lág glæpa­tíðni og mikil nálægð við nátt­úru. Þetta eru lífs­gæði sem allir eiga að fá að njóta, ekki bara þeir sem hafa efni á að kaupa sér þau. Það er líka ekk­ert leik­hús á Sel­tjarn­ar­nesi. Það er engin Sin­fón­íu­hljóm­sveit Sel­tjarn­ar­ness. Það er hins vegar til staðar í Reykja­vík og er, ásamt alls konar annarri þjón­ustu, nið­ur­greitt af borg­inni. Það er því mjög ósann­gjarnt að ríkt fólk nýti sér þjón­ust­una án þess að borga fyrir hana.“ Þessi ummæli vöktu mikla athygli.

Kjarninn birti líka í fyrsta skipti sviðs­myndir sem komu til greina við upp­gjör á krónu­eignum erlendra aðila hér á landi, þar á meðal kröfu­hafa í bú föllnu bank­anna.

Mokgræddu á falli krónu

Kjarninn hélt áfram að birta úttektir sem byggðu á trún­að­ar­gögnum. Í lok októ­ber voru frum­gögn frá PwC birt sem sýndu umfangs­miklar stöðu­tökur stjórn­enda hjá Kaup­þingi gegn íslensku krón­unni. Þeir mok­græddu á falli krón­unnar, eins og sagði á for­síðu Kjarnans. Birting gagn­anna olli miklum titr­ingi og efni þeirra var helsta frétt flestra fjöl­miðla lands­ins dag­anna á eftir. Slita­stjórn Kaup­þings hót­aði að krefj­ast lög­banns en gerði síðan ekki alvöru úr þeirri hótun þegar á hólm­inn var komið.

Í nóv­em­ber birti Kjarninn enn og aftur leyni­leg gögn. Í þetta sinn um ótrú­lega atburða­rás efir að íslensku bank­arnir hrundu, þar sem stjórn­völd í Lúx­em­borg freist­uðu þess að fá fjár­fest­inga­sjóði frá Líbíu til að kaupa starf­semi bank­ans í Lúx­em­borg. Líbía var á þessum tíma enn undir stjórn Gaddafi.

Brynjar og Vigdís

Undir lok árs voru tekin tvö merki­leg við­töl við umdeilda íslenska stjórn­mála­menn. Það fyrra var við Brynjar Níelsson sem þá var til­tölu­lega nýr á þingi. Í við­tal­inu tjáði hann sig meðal ann­ars skulda­nið­ur­fell­ing­ar­á­form rík­is­stjórn­ar­innar, sem hann hafði verið gagn­rýnin á í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2013. Þar sagði Brynjar m.a.: „Ég held að það myndi nýt­ast fólki betur að losna við sam­eig­in­legar skuldir okkar, skuldir rík­is­sjóðs, sem kosta okkur tugi millj­arða króna í vexti á ári. Ég tel mik­il­væg­ara að auka ráð­stöf­un­ar­tekjur allra en að fara í nið­ur­fell­ingu á skuldum sumra. [...]Eignin mín hefur til dæmis hækkað þrefalt meira heldur en hún var þegar ég keypti 1999. Lánið hefur hækkað um ein­hverjar millj­ónir, en eignin hefur marg­fald­ast. Á ég síðan að fá nið­ur­greitt af þessum millj­ónum sem ég skulda úr sam­eig­in­legum sjóðum lands­manna? Fyrir mér er þetta auð­vitað galið.“

Þegar kosið var um lögin sem gerðu leið­rétt­ing­una að veru­leika nokkrum mán­uðum síðar var Brynjar einn tveggja þing­manna sem voru með bók­aða fjar­vist og greiddu ekki atkvæði.

Vigdís Hauks­dóttir kom einnig í við­tal við Kjarnann. Fyr­ir­sögnin var: „Elskar að vera hötuð.“

Brynjar Níelsson var opinskár og hvass í eftirtektarverðu viðtali við Kjarnann 2013.
Brynjar Níelsson var opin­skár og hvass í eft­ir­tekt­ar­verðu við­tali við Kjarnann 2013.

Ég tel mik­il­væg­ara að auka ráð­stöf­un­ar­tekjur allra en að fara í nið­ur­fell­ingu á skuldum sumra. [...]Eignin mín hefur til dæmis hækkað þrefalt meira heldur en hún var þegar ég keypti 1999. Lánið hefur hækkað um ein­hverjar millj­ónir, en eignin hefur marg­fald­ast. Á ég síðan að fá nið­ur­greitt af þessum millj­ónum sem ég skulda úr sam­eig­in­legum sjóðum lands­manna? Fyrir mér er þetta auð­vitað galið.“

Þegar kosið var um lögin sem gerðu leið­rétt­ing­una að veru­leika nokkrum mán­uðum síðar var Brynjar einn tveggja þing­manna sem voru með bók­aða fjar­vist og greiddu ekki atkvæði.

Vigdís Hauks­dóttir kom einnig í við­tal við Kjarnann. Fyr­ir­sögnin var: „Elskar að vera hötuð.“

Vigdís Hauksdóttir skóf ekki utan af hlutunum í viðtali í jólamánuðinum 2013.
Vigdís Hauks­dóttir skóf ekki utan af hlut­unum í við­tali í jóla­mán­uð­inum 2013.

Þegar árið var gert upp kom í ljós að Kjarninn var mest ívitn­aði fjöl­mið­ill lands­ins á því tíma­bili árs­ins 2013 sem hann starf­aði. Þ.e. fréttir og frétta­skýr­ingar hans voru teknar upp af öðrum miðlum í mun meira mæli en fréttir nokk­urra ann­arra íslenskra fjöl­miðla, sem gaf sterkt til kynna hversu mikið erindi efni mið­ils­ins átti við almenn­ing.

Í upp­hafi árs 2014 var Ægir Þór Eysteins­son, einn stofn­anda Kjarnans, til­nefndur til Blaða­manna­verð­launa Íslands fyrir umfjöllun sína um Spari­sjóð­inn í Keflavík. Það reynd­ist fyrsta af mörgum slíkum til­nefn­ingum sem starfs­menn Kjarnans hafa fengið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár