Markaðir lækka og óttinn um gervigreindarbólu heldur áfram

Met­hagn­aður Nvidia hefur ekki dugað til að slá á ótta fjár­festa um að gervi­greind­ar­bóla sé á mörk­uðum og að leið­rétt­ing sé framundan, með til­heyr­andi hruni í mark­aðsvirði tæknirisa.

Lækkun víða
Lækkun víða Hluta­bréfa­verð hefur lækkað í við­skiptum síð­asta sól­ar­hrings. Enn er ótti á meðal fjár­festa um bólu­myndun vegna offjár­fest­ingar í gervi­greind. Mynd: Kazuhiro NOGI / AFP

Tækni­fyr­ir­tæki leiddu lækk­anir á mörk­uðum um allan heim í morgun og virð­ast fjár­festar ekki hafa náð að hrista af sér ótta um gervi­greind­ar­bólu og losna við þann titr­ing sem fylgdi nýjum gögnum um banda­rískan vinnu­mark­aði. Lækk­arn­irnar drógu enn frekar úr vonum um vaxta­lækkun í Banda­ríkj­unum.

Metaf­koma örgjörvafram­leið­and­ans Nvidia, sem til­kynnt var um á mið­viku­dag, virt­ust í fyrstu ætla að draga úr áhyggjum af því að of miklu fjár­magni hefði verið veitt í gervi­greind­ar­geir­ann.

Sú gleði ent­ist þó stutt.

Sívavax­andi áhyggjur eru af því að tækni­drifið hækk­un­ar­skeið á hluta­bréfa­mörk­uðum – þar sem nokkrir helstu vísi­tölu­mark­aðir hafa náð nýjum metum og leið­andi fyr­ir­tæki slegið met í mark­aðsvirði – gæti verið að líða undir lok og leið­rétt­ing í vændum, hafa ýtt undir undir var­færni.

Við kynn­ingu á metaf­komu afkomu sagði Jensen Huang, for­stjóri Nvidia, að hann sæi enga bólu­myndun í grein­inni. „Frá okkar sjón­ar­horni, sjáum við allt annað,“ …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár