Rússneskir hakkarar birtu lyfjagögn um Biles og Williams systur

Rússnesk yfir­völd eru sökuð um að standa á bak við tölvu­árás á Alþjóða­lyfja­eft­ir­litið. Þau harð­neita.

Rúss­neskir tölvu­hakk­arar, undir við­ur­nefn­inu Fancy Bears, komust yfir gögn um lyfja­inn­töku banda­rískra íþrótta­manna á Ólymp­íu­leik­unum í Ríó í Brasilíu, og segja í opin­berun sinni að gögnin sýni ótví­rætt að „banda­rískir íþrótta­menn kom­ist upp með að svindla“.

Alþjóða­lega lyfja­eft­ir­litið (WADA) hefur harð­lega gagn­rýnt tölvu­inn­brotið og birt­ing­una á gögn­unum. Jafn­framt segir eft­ir­litið í yfir­lýs­ingu, sem vitnað er til í umfjöllun breska rík­is­út­varps­ins BBC, að það sé ekki til þess fallið að auka traust á rúss­neskum yfir­völdum og íþrótta­hreyf­ing­unni í Rúss­landi, en eins og kunn­ugt er þá var fjöl­mörgum rúss­neskum íþrótta­mönnum meinað að keppa í Ríó eftir að upp komst um kerf­is­bundið lyfja­mis­ferli í rúss­nesku íþrótta­hreyf­ing­unni, sem stjórn­völd þar í landi vissu um og skipu­lögðu.

Ekki voru þó allir rúss­neskir íþrótta­menn þátt­tak­endur í mis­ferl­inu.

Í gögn­unum sem rúss­nesku hakk­ar­arnir komust yfir segir meðal ann­ars að sumir banda­rísku íþrótta­mann­anna, þar á meðal fim­leika­drottn­ingin Simone Biles tenn­is­kon­urnar og Serana og Venus William, hafi neitt ólög­legra lyfja en kom­ist upp með það, þar sem það hafi verið sam­þykkt. Í gögn­unum kemur einnig skýrt fram, að íþrótta­menn­irnir hafi farið eftir reglum, og notkun lyfja hafi verið í sam­ræmi við lækn­is­ráð á hverjum tíma.

Biles tjáir sig um málið á Twitter-síðu sinni, og seg­ist þurfa á lyfjum að halda vegna þess að hún sé með ADHD og hafi tekið inn lyf sökum þess frá því hún var krakki. Hún ítrekar síðan að hún hafi ekk­ert rangt gert og styðji heið­ar­lega fram­göngu í íþróttum í hví­vetna. Það sama hafa for­svars­menn íþrótta­hreyf­ing­ar­innar í Banda­ríkj­unum gert, og segja tölvu­árás­ina og birt­ing­una á gögn­unum, undir því yfir­skini að íþrótta­fólkið hafi sýnt af sér óheið­ar­leika, vera „heig­uls­hátt“ af verstu sort.

Travis Tygart, yfir­maður lyfja­eft­ir­lits­ins í Banda­ríkj­unum, segir að íþrótta­fólkið hafi gert allt eðli­lega og heið­ar­lega, og að lyfja­inntakan hafi verið í fullu sam­ræmi við lög og reglur.

Stjórn­völd í Rúss­landi hafa alfarið neitað því að hafa verið viðrin tölvu­inn­brotið. Dmitry Peskov, tals­maður stjórn­valda í Kreml, sagði ásak­anir um að rúss­nesk stjórn­völd hafi komið að inn­brot­inu verða fjar­stæðu­kenndar og í engu sam­ræmi við veru­leik­ann. Leita yrði annað eftir skýr­ingum á þessum athöfnum glæpa­manna en hjá stjórn­völdum í Rúss­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lyfjamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár