Íslendingar verði 437 þúsund eftir 50 ár - íbúar nú svipað margir og í Harlem

Í byrjun árs 1995 voru Íslend­ingar 266.978, árið 2005 293.577 og í byrjun þess árs var fjöld­inn kom­inn upp í 329.100. Fjölg­unin á ára­tug var 35.523 íbúar, eða sem nemur rúm­lega öllum íbúum Kópavogs. Í alþjóð­legum sam­an­burði er Ísland með allra fámenn­ustu ríkja­sam­fé­lögum heims­ins, en heildar­í­búa­fjöldi er svip­aður og í Coventry á Englandi og í Harlem hverf­inu í New York, þar sem búa 335 þús­und manns.

Stöðug fjölgun

Samkvæmt mann­fjölda­spá Hagstofu Íslands, sem birt var í morgun, mun stöðug fjölgun Íslend­inga halda áfram á næstu árum, en gert er ráð fyrir að eftir 50 ár, það er árið 2065, þá verði Íslend­ingar orðnir 437 þús­und tals­ins, sam­kvæmt svo­nefndri mið­spá. Samkvæmt lág­spánni, þá miðað við aðrar for­sendur, verða Íslend­ingar 372 þús­und á þeim tíma­punkti, og sam­kvæmt háspánni 513 þús­und. Samkvæmt mið­spánni verða Íslend­ingar 342 þús­und árið 2019, eða sem nemur tæp­lega sjö þús­und íbúum fleiri en nú.

Breytilegar forsendur að baki spá

Spáaf­brigðin byggja á mis­mun­andi for­sendum um hag­vöxt, frjó­sem­is­hlut­fall og búferla­flutn­inga. Fæddir verða fleiri en dánir á hverju ári spá­tíma­bils­ins í mið- og háspá, að því er segir í umfjöllun Hag­stof­unnar. Samkvæmt lág­spánni verða dánir hins vegar fleiri en fæddir á hverju ári frá og með árinu 2045. Meðalævi karla og kvenna við fæð­ingu mun halda áfram að lengj­ast. Nýfæddar stúlkur árið 2015 geta vænst þess að verða 83,5 ára gamlar en nýfæddir drengir 79,5 ára. Stúlkur sem fæð­ast árið 2065 geta vænst þess að verða 88,5 ára en drengir 84,3 ára.

Borgarsamfélög stækka

Sé mið tekið af mið­spá Hag­stof­unnar er gert ráð fyrir að Íslend­ingum fjölgi um 56 pró­sent á næstum 50 árum. Gera má ráð fyrir að helsti þung­inn í fjölg­un­inni verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eins og verið hefur til þessa, en ríf­lega 70 pró­sent íbúa þjóð­ar­innar búa nú á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Flestar alþjóð­legar spár gera ráð fyrir að borg­ar­sam­fé­lög muni stækka hlut­falls­lega mun meira en sem nemur hlut­falls­legri íbúa­fjölgun, sem þýðir að borgir og stærri bæj­ar­fé­lög stækka, en að sama skapi fækkar í minni byggð­ar­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár